Morgunblaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sérhver vá nefnist nýútkomin sóló-
plata gítarleikarans Rúnars Þór-
issonar en hann hefur áður sent
frá sér sólóplöturnar Ósögð orð og
ekkert meir (2005) og Fall (2010).
Rúnar er höfundur allra laga og
texta plötunnar, flytjandi þeirra,
upptökustjóri og
útsetjari. Með
honum leika á
plötunni m.a.
Guðni Finnsson
bassaleikari og
Arnar Þór Gísla-
son trommuleik-
ari og dætur hans, Lára og Mar-
grét, syngja með honum ásamt
hópi kvenna úr Kvennakór
Reykjavíkur. Upptökur og hljóð-
blöndun fóru að stóru leyti fram í
Sundlauginni þar sem Birgir Jón
Birgisson var við stjórnvölinn.
Rúnar gefur plötuna sjálfur út.
Framsækið og melódískt
„Yfirleitt hef ég nú verið kennd-
ur við að vera frekar framsækinn
en þetta er nú tiltölulega mel-
ódískt og kannski melódískara en
hefur verið á fyrri sólóplötum mín-
um,“ svarar Rúnar, spurður að því
hvernig plata Sérhver vá sé.
„Þetta er svona popprokk, pínulítið
framsækið og melódískt,“ bætir
hann við.
– Þú ert á ljúfum nótum á plöt-
unni og kvenraddir eru mjög áber-
andi á henni. Þú ert heppinn að
eiga tvær dætur sem eru söng-
konur, það hlýtur að koma sér vel
þegar þú ert að gera plötu?
„Já, það er heppni að eiga þær
og það kemur sér vel, það er rétt
hjá þér. Það er bæði ástæðan að
þetta liggur vel við höggi og hitt er
að ég er að reyna að fegra sjálfan
mig í þeirra röddum,“ segir Rúnar
kíminn. „Ég er að prófa það í
fyrsta skipti að syngja sjálfur eigið
efni, syng átta lög af tólf. Tvö eru
„instrumental“ og síðan syngja
þær sitt lagið hvor. Reyndar finnst
mér alltaf mjög flott að krydda
karlaraddir með kvenröddum, eins
og Nick Cave gerir mikið og fleiri.
Mér finnst það rosalega fallegt og
ég er reyndar ekki bara með þær
tvær því í nokkrum lögum er ég
líka með tíu söngkonur úr Kvenna-
kór Reykjavíkur.“
Alla leið Rúnar Þórisson
– Hvað kom til að þú ákvaðst að
syngja í fyrsta sinn?
„Mér finnst það alltaf hafa háð
mér í mínu sólóefni að hafa ekki
getað sungið lögin mín sjálfur. Það
er þá meira eins og „production of
Rúnar Þórisson“ heldur en „alla
leið Rúnar Þórisson“,“ segir Rún-
ar.
Hvað lagatextana varðar segist
hann semja þá af miklum metnaði
og tengja í þeim við sín hugð-
arefni, það sem honum sé kært.
„Ef þú myndir lesa textana kæm-
ist þú kannski að því að hluti
þeirra er ortur til fjölskyldunnar;
eiginkonu, barna og barnabarna.
Það eru m.a.s. tvær vögguvísur
þarna, ef grannt er skoðað. Þetta
er persónulegt og kannski kitlaði
það mig pínulítið að syngja þetta.
Það var erfitt fyrir mig að taka
þessa ákvörðun,“ segir Rúnar.
Plötuna tileinkar hann eiginkonu
sinni Örnu og öllu því sem þau
eiga og hafa skapað saman, eins og
segir í texta í plötubæklingi.
Röddin krydduð
með kvenröddum
Sérhver vá nefnist þriðja sólóplata Rúnars Þórissonar
Ljósmynd/Spessi
Syngur Rúnar syngur lögin sín sjálfur í fyrsta sinn á Sérhverri vá.
Það er ekki ofsagt að í ritinusé fjallað á einstaklega að-gengilegan og lipran háttum ástir Íslendinga á
tímabilinu 870–1300.
Úrvinnslan á efninu er vel heppn-
uð. Höfundi tekst að bera fræðilegt
efni á borð fyrir lesendur á einfald-
an og skemmtilegan hátt. Slíkt ætti
ekki að koma á óvart enda Gunnar
Karlsson sagn-
fræðingur þraut-
reyndur á sviði
kennslubóka- og
fræðibókaskrifa.
Líkt og titill
bókarinnar gefur
til kynna er
fjallað um ástir
Íslendinga að
fornu. Þó hann sé
lýsandi hefði að ósekju mátt finna
meira grípandi titil.
Efnið fjallar um rétt landsmanna
til að elska, hömlur á þeim rétti,
frjálsar ástir, makaval, festar og
brúðkaup, hjónaskilnaði, frillulíf,
stöðu óskilgetinna barna og ást á
eigin kyni, og fleira. Heimildirnar
eru ýmsir miðaldatextar, m.a. forn
kvæði, lögbækur, Íslendingasögur,
Sturlunga og biskupasögur.
„[É]g vil kanna tilfinningarnar
sjálfar og sjálfra sín vegna. Ekkert
er mikilvægara en tilfinningar,“ (42)
skrifar Gunnar um tilurð og efni
verksins. Verðugt verkefni það en
rauði þráðurinn er réttarstaða ást-
arinnar.
Bygging bókarinnar er grein-
argóð, efninu er skipt niður í 20
kafla og undirkafla eftir þemum. Í
þeim síðasta eru meginniðurstöður
reifaðar. Í fyrstu köflunum er farið
yfir kenningar margra fræðimanna
sem skrifað hafa um ástina, í breið-
um skilningi þess orðs, m.a. frá eðl-
ishyggju til póstmódernískra fræða.
Þeir kaflar eru í senn fræðandi og
skemmtilegir. Sjarminn við þá er að
höfundurinn talar gjarnan í fyrstu
persónu. Slíkt staðsetur lesandann
vel gagnvart efninu og það er eins
og hann sé staddur í kennslustund
hjá Gunnari.
Kaflinn „Að elska eigið kyn“ er
ekki síst áhugaverður en staða
þessa hóps var sýnu verst. Þar
bendir Gunnar á að sér þykir fræði-
menn hafa stundum gengið full-
langt í að lesa aðdróttanir um sam-
kynhneigð út frá frásögnum í
fornritum. Þá fer hann yfir hugtök
eins og ergi og vandkvæði sem
fylgir notkun þess.
Eins og fram kemur í nið-
urstöðum Gunnars í bókarlok er
erfitt að greina þróun í sögu ást-
arinnar hér á landi. Þrátt fyrir það
nær hann að draga fram ólíka
þræði og varpa upp heildstæðri
mynd.
Verkið er í senn virkilega vandað
og skemmtilegt. Þeir sem hafa
áhuga á sögu Íslendinga ættu ekki
að láta það framhjá sér fara.
Við lestur tileinkunnarorðanna á
tiltilsíðu er tónninn sleginn; lesand-
inn veit að hjartað réð för. Skrifin
bera þess líka glögg merki.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sagnfræðingurinn Bók Gunnars
Karlssonar er vönduð og skemmti-
leg, segir gagnrýnandi.
Fræðileg og
fjörleg saga
ástarinnar
Fræðibók
Ástarsaga Íslendinga að fornu
bbbbn
Eftir Gunnar Karlsson.
Forlagið, 2013. Óinnbundin, 381 bls.
ÞÓRUNN
KRISTJÁNSDÓTTIR
BÆKUR
Óperukórinn í Reykjavík mun
ásamt kunnum einsöngvurum og
hljómsveit flytja Sálumessu Moz-
arts í Langholtskirkju eftir mið-
nætti í kvöld, aðfaranótt fimmta
desember. Hefjast þeir kl. 00.30.
Einsöngvarar á tónleikunum
verða þau Þóra Einarsdóttir sópr-
an, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
mezzó-sópran, Garðar Thór Cortes
tenór og Kristinn Sigmundsson
bassi. Stjórnandi er Garðar Cortes.
Þetta er níunda árið sem Óp-
erukórinn flytur Sálumessuna á
dánarstund Mozarts sem lést árið
1791, aðeins 35 ára að aldri. Hann
lagði síðustu krafta sína í að ljúka
tónsmíðinni, en það tókst ekki, og
eru því lokakaflarnir samdir af
nemanda hans Syßmayr. Tónleik-
unum mun ljúka á síðustu tónunum
sem Mozart samdi og skráði.
Tónleikarnir eru að vanda helg-
aðir minningu Mozarts og íslenskra
tónlistarmanna sem látist hafa á
liðnu ári.
Söngstjörnur Julian Hewlett píanóleikari, Garðar Cortes stjórnandi og söngvararnir Þóra
Einarsdóttir, Kristinn Sigmundsson, Garðar Thór Cortes og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.
Flytja Sálumessuna á dánarstundinni
Morgunblaðið/Eggert
Dualit handþeytari
• 5 hraða stilling
• Auðvelt að þrífa
• Inndraganleg snúra
• Þrjár gerðir af þeytispöðum
Kr. 16.900,-
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn
KLÁR Í JÓLAÞEYTINGINN