Morgunblaðið - 16.12.2013, Page 1
M Á N U D A G U R 1 6. D E S E M B E R 2 0 1 3
STÍFARI ÆFINGAR
SKILUÐU SÉR
Á STÓRMÓTINU
ÍSLENSKUR
DJASS Í HÆSTU
HÆÐUM
GEFUR GÖMLUM
ÞVOTTAVÉLUM
NÝTT LÍF
NÝJAR DJASSSKÍFUR 34 SINH ER FRELSINU FEGINN 10EYGLÓ ÓSK ÍÞRÓTTIR
ÁRA
STOFNAÐ
1913
EVRÓPA FRÁ 31.900 KR.
eða 27.900 Vildarpunktar og 12.000 kr.
NORÐUR-AMERÍKA FRÁ 54.900 KR.
eða 47.900 Vildarpunktar og 22.000 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
65
59
7
11
/1
3
+ Nánar á icelandair.is
dagar til jóla
8
Askasleikir
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
Morgunblaðið/Kristinn
Í Þingholtunum Verðtrygging lána hefur
mikið verið til umræðu í þjóðfélaginu.
Verðtrygging er einn af þeim val-
kostum sem bjóðast þegar tekin eru
lán til langs tíma, til dæmis vegna
kaupa á húsnæði. Bann við verð-
tryggingu felur því í sér að val-
kostum fækkar og fækkun valkosta
leiðir jafnan til minni velferðar.
Þetta kemur fram í grein sem Lúð-
vík Elíasson, hagfræðingur og
starfsmaður fjármálastöðug-
leikasviðs Seðlabanka Íslands, skrif-
ar í rit bankans, Efnahagsmál. Þeim
ríkjum hefur fjölgað sem gefa út
verðtryggð skuldabréf og hlutur
verðtryggðra bréfa hefur aukist ár
frá ári í nokkrum löndum. Sér-
fræðinefnd ríkisstjórnarinnar um
afnám verðtryggingar neytendalána
skilar tillögum sínum í janúar. »20
Bann við verðtrygg-
ingu minnkar val og
dregur úr velferð
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samtök atvinnulífsins kynna í dag
samningstilboð sem kemur til móts
við kröfur um sérstaka hækkun
lægstu launa. Viðbrögð verkalýðs-
félaga koma fram á samningafundum
en fulltrúar félaga úti um landið hafa
verið beðnir um að vera í startholun-
um með að koma í bæinn, ef tillög-
urnar gefa tilefni til að ætla að samn-
ingar komist aftur á skrið.
Frá því að upp úr viðræðum SA og
ASÍ slitnaði vegna þess að of mikið
bar á milli tillagna um launahækkanir
til lægst launaða fólksins hafa farið
fram viðræður á vettvangi landssam-
banda. Jafnframt hafa verið óform-
legar viðræður forystumanna, nú síð-
ast um helgina.
„Það verður látið á það reyna [í
dag] hvort unnt er að ná einhverju
saman. Við erum að spila út hug-
myndum sem við teljum koma til
móts við lægsta endann. Hins vegar
teljum við að krafa félaganna um
grunnhækkun launa sé allt of há til að
geta samrýmst forsendum um verð-
lagsstöðugleika,“ segir Þorsteinn
Víglundsson, framkvæmdastjóri SA.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að hreyfing þurfi að komast á
málin til þess að hægt sé að setjast að
samningum á ný. Það komi væntan-
lega í ljós á fundum sem ríkissátta-
semjari hefur boðað til í dag. Samn-
inganefnd ASÍ meti stöðuna í kjölfar
þeirra.
ASÍ og SA vilja að ríkisvaldið
breyti forsendum fjárlagafrumvarps,
meðal annars til að draga úr áhrifum
þess á verðlagsþróun. Þá hefur verið
óskað eftir annarri útfærslu á tekju-
skattslækkun.
Nýtt útspil SA
væntanlegt í dag
Breytingar í þágu láglaunafólks en dregið úr grunnhækkun
Jólasveinarnir eru nú farnir að tínast til byggða
einn af öðrum og vekja þeir lukku hvar sem til
þeirra sést. Krakkarnir á jólaballi Landhelgis-
gæslunnar urðu ekki fyrir vonbrigðum þegar
jólasveinarnir heimsóttu ballið. Sveinarnir höfðu
nefnilega útvegað sér nútímalegri fararskjóta en
börnin hafa áður vanist, því þeir komu á jólaball-
ið í þyrlu en skildu hreindýrið Rúdólf eftir
heima. Forvitnin og spennan leynir sér ekki í
andliti krakkanna, en þau létu það ekki á sig fá
þótt þyrlan feykti snjó í andlit þeirra enda fylgir
jólasveinum oftast góðgæti og hamingja.
Jólasveinarnir skipta út hreindýrum fyrir þyrlu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spennandi jólaball Landhelgisgæslunnar
Rannsóknarboranir vegna jarð-
ganga undir Fjarðarheiði hefjast
næsta sumar. Meirihluti fjár-
laganefndar Alþingis samþykkti að
veita 30 milljónir kr. til verkefn-
isins. „Við erum mjög ánægð með
þetta,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir,
forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði.
Hún segir að unnið hafi verið að yf-
irborðsrannsóknum en nú verði
hafist handa við að bora í jarðlögin,
meðal annars til að staðsetja
gangamunna. »4
Undirbúningur jarð-
gangagerðar hefst
Seyðisfjörður Göng styrkja byggð.
292. tölublað 101. árgangur