Morgunblaðið - 16.12.2013, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er til lítils að hafa mörg orð
um hlutina ef þeim fylgja engar athafnir.
En í dag vilja allir vita hvað gerir þig
svona ofsalega glaða/n.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kynnist nýjum einstaklingi sem
mun hafa mikil áhrif á líf þitt seinna meir.
Einbeittu þér að aðalatriðunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Leiðin upp á tindinn getur stund-
um verið löng og snúin. Samt tekur þú því
vel. Reyndu að uppfylla eigin þrár.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að vinna í því að ná tök-
um á tilfinningum þínum. Ef þú ert ekki
spennt/ur verður enginn annar það. Allt
sem tengist heilbrigðiskerfinu eða
skemmtanaiðnaði er heppilegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fátt er dýrmætara í lífinu en að eiga
góða vini svo leggðu þig fram um að
halda þeim. Vertu ekki hrædd/ur þótt ein-
hverjir erfiðleikar kunni að verða á vegi
þínum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Stundum skjóta gamlir draugar
upp kollinum og hafa áhrif á okkur. Gættu
þess samt að misnota ekki aðstöðu þína
sem mundi valda öðrum sársauka.
23. sept. - 22. okt.
Vog Skapandi og frumleg viðfangsefni fela
í sér spennu því verið er að kanna
ókunnar slóðir. Gríptu það áður en einhver
annar gerir það. En sá sem hjálpar öðrum
verður að sýna mikinn trúnað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það kostar sitt að koma sér
áleiðis. Stundum er það best gert með því
að taka þátt í því að láta öðrum líða vel,
en ekki í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er allt í lagi að bregða fyr-
ir sig spaugi en farðu varlega gagnvart
þeim sem gætu átt það til að taka þig al-
varlega. En þar sem þú ert viðkvæm/ur
svarar þú í samræmi við það.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þeim mun meiri orku sem þú
setur í samband, þeim mun betur tengist
þið. Sérstakar aðstæður verða til þess að
varpa ljósi á dulda hæfileika þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Forgangsraðaðu og settu niður
á blað. Ef þú undirbýrð þig vel muntu
njóta ríkulega í fyllingu tímans.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki vera of upptekin/n af því sem
aðrir á vinnustaðnum segja eða gera.
Reyndar ákveður þú að hlakka bara til.
Ólafur Stefánsson segist á Leirn-um hafa komist á stórmarkað
á miðvikudaginn, þar sem jafnt var
höndlað með andleg verðmæti og
ket og smér. – „Þar var á borði, inn-
an um annað góðgæti, Fjórða Dav-
íðsbók, og lét ekki mikið yfir sér.
Ég fór að vekja athygli á bókinni
við nærstadda og hrósaði höfundi í
hástert. Lýðurinn hópaðist að mér
með eyrun sperrt, bæði handverks-
menn og húsfreyjur, og svo fór að
þrjú eintök af bókinni lentu í inn-
kaupakörfum, meðan ég stóð við.“
Sem agent Davíðs drjúgur er,
- dátt er á milli vina –
er keppir hann við ket og smér,
kappann Guðna og hina.
Hafsteinn Reykjalín hefur sjó-
mannsblóð í æðum, svo að ekki er
að undra, þótt „Kolgrafar-síldin“
hafi orðið honum að yrkisefni:
Í Kolgrafar síki fannst síldin,
saklaus og hólpin og drýldin.
En gammarnir bíða
með ginið allvíða
af grimmd þeirra var hún þar kýld inn.
Kolgrafar-síldin er snúin
og sjógreifa vertíðin búin.
En gammarnir bíða
með ginið allvíða
og gæslan með sprengjurnar flúin.
Guðmundur Guðmundsson bók-
sali var í hópi bestu hagyrðinga og
margar vísur hans urðu fleygar. Ég
raula oft með sjálfum mér:
Lausavísur liðugar,
léttar, nettar, sniðugar
örva kæti allsstaðar
eins og heimasæturnar.
Hér er vitaskuld átt við vísur
undir rímnaháttum. En eins er um
limrurnar, þótt nýjar séu af nálinni.
Þær hafa unnið sér þegnrétt í sam-
félagi íslenskra vísnasmiða því-
líkan, að nú getum við talað um
„lausa-limrur“ engu síður en
„lausa-vísur“, sem ortar eru um at-
vik eða uppákomur í daglega lífinu.
Hjálmar Freysteinsson yrkir:
Sá vandi er næstum því nýr
að nytin í Búkollu er rýr.
Þá gerist það eitt
að Guðna er breytt!
Nú kyssir hann írskar kýr.
Guðmundur bóksali orti um sjálf-
an sig:
Hamförum minn hugur fer
um heima alla og geima
en langbest samt hann leikur sér
að lausavísum heima.
Halldór Blöndal.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lausalimran er í fylgd
með lausavísunni
Í klípu
„ÞEIR ERU SVO SÆTIR OG
SAKLAUSIR ÞEGAR ÞEIR SOFA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VILTU VINSAMLEGAST BIÐJA MÓÐUR ÞÍNA
UM AÐ SITJA MÍN MEGIN Í BÍLNUM?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að komast að
einhverju nýju, þegar
þið hélduð að þið vissuð
allt hvort um annað.
ÞETTA GETUR
ÞÚ EKKI!
ÖFUND-
SJÚKUR?
SÝNIST
HÆTTU-
LEGT.
ÞAÐ ER
REYNDAR
ALVEG
SATT!
HVERT
ERT ÞÚ AÐ
FARA?
AÐ HITTA ATLA HÚNAKONUNG
TIL AÐ RÆÐA MÖGULEIKANN Á
AÐ UNDIRRITA VOPNAHLÉ.
TIL HVERS ERU
ÞÁ ÖLL ÞESSI
VOPN?
KANNSKI VILL
HANN EKKI
UNDIRRITA.
Víkverji lenti í bílveseni umhelgina. Ekki í fyrsta sinn og
varla í það síðasta. Bilanir í bifreið-
um eru vitaskuld misalvarlegar, og
verða á misóheppilegum tímum.
Að þessu sinni varð bíllinn vélar-
vana með framendann úti á frekar
fjölförnum gatnamótum. Um kvöld-
matarleyti á laugardagskvöld, með
betri helminginn og lítið barn í bíln-
um. Í huga Víkverja er þetta akk-
úrat lýsingin á frekar miklu veseni,
og ekki bætti úr skák að öll verk-
stæði voru lokuð fram yfir helgi.
Sem betur fer býr Víkverji hins
vegar svo vel að þekkja gott fólk.
Eftir eitt símtal kom á staðinn góð-
ur vinur sem, auk þess að vera sér-
lega bóngóður, er menntaður í við-
haldi og viðgerðum bíla.
Bíll Víkverja var því dreginn inn í
skúr, ekki langt frá, og næstu fimm
klukkutíma máttu hann og vinurinn
bisa við að koma bílnum í gang aft-
ur, sem tókst að lokum. Vinurinn
þáði lítið annað en góðar þakkir fyr-
ir hjálpina, og kvaddi með bros á
vör.
x x x
Sífellt færri ungmenni sækja nú íiðnnám. Margir telja að iðnnám
hafi í raun verið talað niður, nánast
verðfellt, á kostnað bóknáms. Því
telji ungt fólk meiri virðingu fólgna
í því að leggja stund á bóknám.
Víkverji man sjálfur eftir því að
hafa verið ráðið frá því að leggja
stund á iðnnám, á þeim forsendum
að einkunnir hans væru ekki svo
slæmar. Sögur segja að það viðhorf
þekkist enn – iðnnám er fyrir þá
sem eiga erfitt með að læra, aðrir
fara í bóknám.
Ekki veit Víkverji hvort það sé
ávísun á betri húsasmiði eða raf-
virkja að þeim hafi gengið illa í
grunnskóla. Ef einhver rannsókn er
til sem sýnir fylgni þar á milli hefur
Víkverji ekki séð hana. Hann er
hins vegar þakklátur fyrir að enn
sæki einhverjir í iðngreinarnar, sýni
þeim áhuga og verði fullnuma. Því
þó svo að Víkverji þekki líka margt
gott fólk sem hefur lesið flókin
fræði og merkileg, þá hefðu allir
heimsins doktorar gert Víkverja
minna gagn um helgina en einn góð-
ur bifvélavirki. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þið þekkið náð Drottins vors Jesú
Krists. Hann gerðist fátækur ykkar
vegna, þótt ríkur væri, til þess að þið
auðguðust af fátækt hans.
(Síðara Korintubréf 8:9)
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
Allt til listmálunar
Strigar, penslar, olíulitir,
acryllitir, trönur, pallettur,
spaðar, svampar, lím,
íblöndunarefni, varnish,
þekjulitir, teikniblokkir,
pappír og arkir
Mikið úrval
af listavörum
Trönur á gólf
7.995
frá 7.995
Verðmætaskápar
frá 4.995
Hleðslu-
tæki
frá 24.995
Airbrush lofdæla
m. þrýstijafnnara
15.995
Mössunarvél
frá 795
Verkfæratöskur,
mikið úrval
frá 4.995
Mikið úrval af
verkfærasettum