Morgunblaðið - 20.12.2013, Síða 14

Morgunblaðið - 20.12.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18 TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í 17 ÁR FRÍ SJÓNMÆLING Klippið út auglýsinguna DAGLINSUR Verð frá 2.500 kr. Mu nið gja fab réfi n MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR LINSUMÁTANIR FRÁBÆR TILBOÐ Í GANGI UMGJARÐIR+GLER FRÁ 19.900,- Baldur Arnarson baldura@mbl.is Landsbankinn spáir því að raunverð fasteigna hækki um 5,7% á næstu þremur árum. Spáir bankinn því að hækkunin verði 1,3% á næsta ári, 2,5% árið 2015 og 1,8% 2016. Eins og rak- ið er í greininni hér fyrir ofan spá greiningardeildir Arion banka og Íslandsbanka um 4% verðbólgu á næsta ári. Verðbólgan kemur fram í verð- bótum á verðtryggðum íbúðalánum en þau eru nú um 1.230 milljarðar. Verði verðbólgan 4% á næsta ári verða verðbæturnar því um 50 milljarðar. Heimilin hafa því hag af því að verðbólgan sé lítil. Til samanburðar eru óverð- tryggð íbúðalán um 130 milljarðar. Spá undir 4% verðbólgu Að sögn Gústafs Steingríms- sonar, hagfræðings hjá Hag- fræðideild Landsbankans, spáir bankinn því að verðbólgan verði 3,9% á næsta ári og er þá vísað til breytinga milli ársmeðaltala áranna 2013 og 2014. Spurður hvort ætla megi út frá verðbólguspám og spám um þróun fasteignaverðs að eigið fé heimila í fasteignum aukist á næsta ári segir Gústaf að almennt megi draga þá ályktun að það muni styrkjast. Í takt við spár um kaupmátt „Við spáum því að raunverð fasteigna hækki á næstu árum. Það eitt ætti að auka eigið fé heimila og fjölga heimilum með jákvætt eigið fé í fasteign,“ segir Gústaf. Hann bendir jafnframt á að 5,7% raunhækkun fasteignaverðs á næstu þremur árum sé í nokkru samræmi við spár Hagfræðideildar Landsbankans um vöxt kaup- máttar. Þá bendir Gústaf á að þótt raunverð hækki kunni mörg heimili að vera áfram í greiðsluvanda vegna íbúðalána. Einnig geti mörg heimili áfram verið með neikvætt eigið fé jafnvel þótt eiginfjárstaðan batni. Vikið er að þróun neikvæðs eiginfjár hjá fjölskyldum sem svo er ástatt um í grafinu hér fyrir ofan. Eigið fé í húsnæði aukist á næsta ári  Hagfræðingur spáir verðhækkun Gústaf Steingrímsson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Greiningardeildir bankanna spá því að verðbólga verði um 4% á næstu tveimur árum og að eiginfjárstaða heimila í húsnæði muni styrkjast. Hafsteinn Gunnar Hauksson, sér- fræðingur hjá greiningardeild Arion banka, segir inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaðinn stuðla að því að verðbólgan haldist á þessu bili. „Frá því í maí sl. hefur Seðlabanki Íslands rekið svonefnda stýrða flot- gengisstefnu. Hún gengur út á að Seðlabankinn beitir inngripum til að styðja við krónuna, þannig að hann vinni bæði gegn styrkingu eða veik- ingu. Markmiðið er að halda gengi krónunnar sem stöðugustu. Menn höfðu mismikla trú á þessu í upphafi. Við hjá greiningardeild Ar- ion banka vorum t.d. gagnrýnin á þessa stefnu og höfðum áhyggjur af því að það gæti reynst erfitt að ná þessu markmiði, ef þrýstingur á krónuna yrði mjög mikill. Raunin hefur hins vegar orðið sú að þetta hefur gengið vel, enn sem komið er. Krónan hefur haldið sjó og er óvenjusterk miðað við árstíma. Það gæti verið að þetta væri farið að veita væntingum um gengisþróun einhverja kjölfestu og að verðbólgan sé orðin skaplegri þess vegna.“ Spá undir 3% verðbólgu í mars Spurður um verðbólguhorfur á næsta ári segir Hafsteinn að Arion banki spái undir 3% verðbólgu í febr- úar en 3,3% í mars, þegar áhrifa kjarasamninga fari líklega að gæta. „Við reiknum með því að verðbólg- an verði að meðaltali 3% á næsta ári en um 4% árið 2015. Er hér gert ráð fyrir töluvert miklum launahækkun- um og áhrifum vegna hækkana á fasteignamarkaði,“ segir Hafsteinn sem telur að eigið fé heimila í hús- næði muni aukast á næsta ári í takt við hækkun raunverðs fasteigna. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, telur að- spurður að verðbólgumarkmið SÍ (2,5%) náist ekki árin 2014 og 15. „Á næstu mánuðum mun 12 mán- aða verðbólga halda áfram að ganga niður og fara undir 3% í febrúar á næsta ári. Eftir það hækkar hún að nýju og verður 3,5%-4% út árið 2014 og 2015. Við teljum því að verðbólgu- markmiðið náist ekki á næstu tveim- ur árum,“ segir Ingólfur. Eiginfjárstaðan að batna Spurður hvernig eiginfjárstaða heimila með verðtryggð íbúðalán muni þróast, gangi verðbólguspáin eftir, segir Ingólfur að verðbólgan muni hækka verðtryggðar skuldir heimilanna. „Þetta eykur hins vegar einnig verðtryggðar eignir þeirra í t.d. lífeyrissjóðum. Þá spáum við því að íbúðaverð haldi áfram að hækka og umfram verðbólgu sem merkir að eiginfjárstaða heimilanna í húsnæði ætti að batna.“ Ingólfur víkur að fyrirhugaðri 80 milljarða niðurfærslu höfuðstóls verðtryggðra íbúðalána og áhrifa þeirra á verðbólgu. Það dragi úr verðbólguáhrifum aðgerðarinnar að greint hafi verið frá fyrirhugaðri sölu 103 milljarða skuldabréfs í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands. Sú sala geti dregið úr lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja og kerfisins í heild og þannig haft mótvægisáhrif á boðaða leiðréttingu. Spurður hvort einhver stærri verkefni séu á sjóndeildarhringnum sem geti ýtt undir eftirspurn í hag- kerfinu á næstu misserum segir Ing- ólfur að svo sé ekki. T.d. séu líkurnar á álveri í Helguvík orðnar hverfandi í bráð a.m.k. Hins vegar hafi ör vöxtur ferðaþjónustu ýtt undir hagvöxt. „Það eru slæmar fréttir að það séu engin meiriháttar verkefni í pípun- um og að það verði líklega ekki af þeirri erlendu fjárfestingu sem var fyrirhuguð í Helguvík. Hagkerfið mun, þrátt fyrir þann missi, að okkar mati sigla áfram upp á við … Við reiknuðum með því í okkar síðustu þjóðhagsspá sem birt var í október sl. að slakinn yrði farinn úr hagkerf- inu á síðari hluta árs 2015. Við spáðum þá 2,6% hagvexti á næsta ári og 2,7% hagvexti 2015. Þó að ýmislegt hafi breyst í forsendum spárinnar síðan er ekki ólíklegt að það rætist að slakinn hverfi á næstu tveimur árum. Fyrir rúmu ári vorum við hjá Íslandsbanka bjartsýnni um hagvaxtarhorfur en við erum núna. “ Gengisstefna haldi verðbólgu niðri  Sérfræðingur hjá Arion banka telur stýrða flotgengisstefnu SÍ hafa stuðlað að minni verðbólgu  Forstöðumaður hjá Íslandsbanka telur skuldabréfakaup SÍ vinna gegn verðbólguáhrifum afskrifta Þróun verðbólgu 2008-2013 Verðbólgumarkmið Seðlabanka ÍslandsVerðbólga 20 18 16 14 12 10 8 6 4 2 0 2008 Heimild: Seðlabanki Íslands 2009 2010 2011 2012 2013 5,8 3,7 18,6 1,8 Breyting á árinu: 12,3 -11,1 -4,1 3,5 -2,3 -0,5 * *Verðbólga í nóvember 2013 Fjöldi fjölskyldna með neikvætt eigið fé í fasteign Samanburður við þróun eiginfjár hjá einstaklingum* 2008 15.746 1.720.541 739.640 2.460.181 1.309.781 3.030.324 43,22% 2009 20.403 1.562.223 547.935 2.110.158 1.343.375 2.905.597 46,23% 2010 25.270 1.253.330 452.762 1.706.091 1.323.442 2.576.772 51,36% 2011 21.229 1.456.921 470.898 1.927.819 1.232.452 2.689.372 45,83% 2012 17.780 1.604.028 443.049 2.047.077 1.223.532 2.827.560 43,27% *Hér er um að ræða heildartölur fyrir alla þjóðina. Allar tölur framreiknaðar til ársloka 2012. **Heimild: Hagstofa Íslands.Verðmæti samkvæmt fasteignamati. Fjöldi fjölskyldna með neikvætt eigið fé í fasteign** Eigið fé í fasteign framreiknað til ársloka 2012** Eigið fé annað framreiknað til ársloka 2012** Samtals eigið fé** Skuldir vegna íbúðakaupa** Verðmæti fasteigna** Hlutfall skulda af verðmæti fasteigna** Ingólfur Bender Hafsteinn Gunnar Hauksson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grafarholt Íbúðaverð er að hækka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.