Morgunblaðið - 20.12.2013, Side 17

Morgunblaðið - 20.12.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 Rætt var um mikilvægi þess að Rússar yrðu aðilar að samkomu- lagi um stjórnun úthafskarfaveiða á Reykjaneshrygg, á fundi sam- starfsnefndar Íslands og Rúss- lands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegsmála í Moskvu í vikubyrjun. Af hálfu Íslands var lögð áhersla á að veiðistjórnun karfastofnanna á Reykjaneshrygg byggðist á bestu vísindalegu þekk- ingu og ráðgjöf sem fyrir lægi. Ákveðið var að tillögu Rússa að stefna að sérstökum fundi ís- lenskra og rússneskra vísinda- manna á næsta ári til að efla vís- indasamstarf ríkjanna um úthafs- karfa og fleiri sameiginlega stofna. Frekara samstarf Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um fram- kvæmd samningsins frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórna Íslands, Noregs og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávar- útvegs (Smugusamningur). Samningar um veiðar íslenskra skipa 2014 náðust og koma alls 9.076 tonn af þorski í rússneskri lögsögu í hlut Íslands á grundvelli samnings ríkjanna tveggja en þar af eru 5.672 tonn sem úrhlutað er beint. Meðaflaheimild í ýsu vegna þess magns verður 8% eða sem nemur 450 tonnum. Meðaflaheim- ild í öðrum tegundum er líkt og áður 30% aflaheimilda í þorski að frádreginni ýsu. Eftir er að semja um verð og meðaflaheimildir vegna 3.404 tonna sem íslenskar útgerðir hafa rétt til að kaupa af Rússum. Einnig ræddu ríkin um frekara samstarf á sviði sjávarútvegsmála á fjölþjóðlegum vettvangi þar sem áherslur og hagsmunir ríkjanna tveggja fara iðulega saman, segir í frétt á heimasíðu sjávarútvegs- ráðuneytisins. Formaður íslensku sendinefndarinnar var Jóhann Guðmundsson skrifstofustjóri. Vísindamenn fjalla um karfann Morgunblaðið/Jim Smart Á karfa Rússnesk skip í Hafnarfirði.  Samkomulag um veiðar íslenskra skipa í rússneskri lögsögu á næsta ári Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu lögmanna Guðmundar Hjaltasonar og Þorleifs Stefáns Björnssonar um að vísa beri máli slitastjórnar Glitnis á hendur þeim frá dómi. Málið heldur því áfram fyrir dómstólnum eftir áramót. Slitastjórnin stefndi Lárusi Weld- ing, fyrrverandi bankastjóra Glitn- is, Guðmundi Hjaltasyni, fyrrver- andi framkvæmdastjóra fyrir- tækjasviðs bankans, Guðnýju Sigurðardóttur, fyrrverandi við- skiptastjóra bankans, og Jakobi Valgeiri Flosasyni og Þorleifi Stef- áni Björnssyni sem voru stjórn- armenn í Stími en Þorleifur var einnig framkvæmdastjóri félagsins. Í skaðabótamálinu krefst slita- stjórn Glitnis þess að fimmmenn- ingarnir greiði 366 milljónir króna sem eru eftirstöðvar láns upp á 725 milljónir króna sem Stím var veitt í janúar 2008. Kröfu um frávísun var hafnað Lítið var um fiðrildi í sumar í Keldu- hverfi og Mývatnssveit, en fiðrilda- gildrur Náttúrustofu Norðaustur- lands voru teknar niður 5. nóvember eftir að hafa verið uppi í 29 vikur. Í Ási í Kelduhverfi hefur fiðrilda- gildra verið starfrækt frá árinu 2007 eða í samtals 7 ár. Í gildruna bárust á þessu ári 1.556 fiðrildi af 23 teg- undum. Þetta er næstminnsti fjöldi sem komið hefur í gildruna á einu ári en að meðaltali hafa þau verið um 4.400. Tegundum hafði þó ekki öllum fækkað og má nefna skrautfeta sem dæmi um tegund í sókn en af honum hafa einungis einu sinni komið fleiri eintök. Þrjár nýjar tegundir Á Skútustöðum í Mývatnssveit hefur ljósgildra verið starfrækt í fimm ár eða frá árinu 2009. Árið í ár er það slakasta frá upphafi ef litið er til fjölda fiðrilda en aðeins bárust 383 eintök í gildruna sem er innan við helmingur þess sem vanalega gerist. Í aflanum á Skútustöðum í ár hafa verið greindar 14 tegundir sem er það minnsta frá upphafi. Þrátt fyrir fáar tegundir þá eru þrjár nýjar sem ekki hafa komið í gildruna áður. Þetta eru tegundirnar hringygla, kálmölur og skógvefari, segir á vef Náttúrustofunnar. Ljósmynd/Yann Kolbeinsson Snjór Það var vetrarlegt í vor þegar gildran var sett upp við Skútustaði. Lítið um fiðrildi fyr- ir norðan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.