Morgunblaðið - 20.12.2013, Page 21

Morgunblaðið - 20.12.2013, Page 21
reitunum á næsta ári og við viljum ekki að þetta verði í uppbyggingu í tíu ár.“ Verða einhverjar tímakvaðir á framkvæmdunum? „Nei, ég held að þess þurfi ekki. Mér virðist vera áhugi á að byggja þetta markvisst og hratt upp. Ég held að það sé hagur allra.“ Skortir skýringar á réttarstöðu Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði hafa gagnrýnt samskipti Reykjavíkurborgar við lóðarhafa og segja lagalega óvissu vera varðandi núverandi fyrirætlanir. „Ein lóðanna, sú sem er næst Lækjartorgi, mun minnka um 4.500 fermetra vegna þessara breytinga á gatnamótum og sú sem gegnt henni mun stækka,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson sem sit- ur í borgarráði fyrir hönd Sjálfstæð- isflokksins. Þessar umræddu lóðir eru merktar á meðfylgjandi korti, sú sem minnkar er nr 2 og sú sem stækkar er nr 6. „Lagalega óvissan felst í því að engir samningar, hvorki samningsdrög né fundargerðir, hafa verið lagðir fyrir skipulagsráð eða borgarráð sem sýna hver réttarstaða borgarinnar getur orðið varðandi það að minnka lóðina,“ segir Júlíus. „Lóðin handan Geirsgötu er í eigu [byggingarfélagsins] Sítusar og mun stækka við þessar breytingar. Því hefur verið haldið fram að sala byggingarréttar á henni komi til með að skila meiri peningum til borg- arinnar með samningum við Sítus en ráð var fyrir gert. Það hljóta að verða að vera einhverjir samningar um það á milli Reykjavíkurborgar og Sítusar, en þá hef ég ekki séð.“ Of margir óvissuþættir „Það er óvenjulegt að kjörnir fulltrúar gangi erinda einstakra lóð- arhafa,“ segir Dagur um þessa gagn- rýni Júlíusar. Er verið að því? „Já, það get ég ekki betur séð. Við höfum átt góð samskipti og samráð við lóð- arhafa og munum halda því áfram og finna út úr þeim málum sem leiða af breyttu skipulagi.“ Júlíus segir að þarna séu of margir óvissuþættir sem vel hefði verið hægt mátt komast hjá með betri undirbún- ingi og vinnubrögðum. „Ég er ekki að segja að það sé ekki hægt að ganga frá málinu, en áður en menn taka ákvarðanir um að ganga frá deili- skipulagi á að vera búið að ná sam- komulagi, allir samningar að vera á hreinu. Samningsstaða borgarinnar eftir að deiliskipulag hefur verið aug- lýst er ekkert sérstaklega sterk. Nái menn ekki viðunandi samningum er viðbúið að auglýsa þurfi skipulagið að nýju og þannig tefjum við hugsanlega fyrir framkvæmdaraðilum á svæðinu. En það er mikilvægt að það verði ekki gert.“ Dagur segir samningsstöðu borg- arinnar ótvíræða í þessum efnum. „Núna auglýsum við þetta skipulag í góðu samstarfi og greiðum úr þeim flækjum sem hugsanlega kunna að skapast.“ Byggingar Ásýndir nokkurra bygginga sem fyrirhugað er að reisa við Austurhöfn. Þær eru merktar þeim reitum þar sem þær munu standa, þarna eru m.a. hótel, skrifstofur og íbúðir. Meðal breytinganna sem felast í endurskoðun deiliskipulagsins er að byggingar voru lækkaðar, í flestum tilvikum um eina hæð. Litið inn í framtíðina Svona verður umhorfs, horft eftir Geirsgötunni, verði þær tillögur sem afgreiddar voru út úr borgarráði í dag að veruleika. Verslanir, íbúðir og hótel » Á kortinu hér til hliðar sjást breytingar á núverandi og fyr- irhuguðu deiliskipulagi. » Sjá má að reitur 2 minnkar og reitur 6 stækkar. Á báðum reitum er fyrirhuguð verslunar- og þjónustustarfsemi. » Á reit 1 er gert ráð fyrir íbúðum, verslunar- og þjón- ustustarfsemi og reitur 5 er ætlaður hótelbyggingu og íbúðum. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.