Morgunblaðið - 04.01.2014, Side 1
L A U G A R D A G U R 4. J A N Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 3. tölublað 102. árgangur
SKÓLAR OG
NÁMSKEIÐ
SIGURGEIR
AFHENDIR BÆNUM
MYNDASAFNIÐ
32 SÍÐNA AUKABLAÐ UM NÁM
OG NÁMSMÖGULEIKA SUNNUDAGUR
Boðaði endurskoðun
» Ríkisstjórnin lýsti því yfir að
hún myndi við samþykkt kjara-
samninga endurskoða til lækk-
unar vissar breytingar á gjöld-
um sem samþykktar hafa verið
í tengslum við fjárlög 2014.
» Þannig myndi hún stuðla að
því að halda verðbólgu niðri.
Ómar Friðriksson
Baldur Arnarson
„Stóri prófsteinninn er strax í næsta
mánuði. Ef febrúarmæling vísitölu
neysluverðs verður umtalsvert
minni en fyrir ári, eins og allar for-
sendur eru fyrir núna, munum við
jafnvel sjá tólf mánaða takt verð-
bólgunnar fara strax niður fyrir 3%,“
segir Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, í áskorun til stjórnenda fyrir-
tækja í tilefni kjarasamninga.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir að ýmis
opinber gjöld hafi ekki breyst um
áramót. Ástæðan sé viðleitni stjórn-
valda til að halda aftur af verðbólgu.
„Það er alls ekki svo að öll gjöld
sem ríkið innheimtir hækki um ára-
mót. Krónutöluskattar á áfengi, tób-
ak og eldsneyti fengu verðlagsupp-
færslu, en einnig voru ýmsar
breytingar gerðar um áramótin sem
draga úr áhrifum hækkana. Þannig
eru áhrif fjárlaganna í heild á ráð-
stöfunartekjur heimilanna jákvæð.
Hvað eldsneytisgjaldið varðar sér-
staklega get ég nefnt sem dæmi
frumvarpið um íblöndunarefni í elds-
neyti. Það mun leiða til tekjutaps
fyrir ríkið sem er metið á jafnháa
fjárhæð og hækkunin af eldsneytis-
gjöldum. Þannig munu tekjur ríkis-
ins af eldsneytisgjöldum ekkert
hækka á þessu ári,“ segir Bjarni og
nefnir að ýmis gjöld breytist ekki um
áramót, þ.m.t. dómsmálagjöld, þing-
lýsingargjald og ýmis leyfisgjöld.
MKjaramál »16 og 20
Prófsteinn fyrir fyrirtækin
Framkvæmdastjóri SA skorar á stjórnendur fyrirtækja að sýna ábyrgð í vor
Verðhækkanir kyndi verðbólgubál Fjármálaráðherra segir ríkið hafa gert sitt
Særður fálki dvaldi yfir áramótin hjá góðviljaðri
fjölskyldu á Höfn í Hornafirði áður en hann var
fluttur á Dýraspítalann í Víðidal til aðhlynningar.
Hann er allur að koma til, segir læknirinn hans,
og var í gær sóttur af starfsmanni Húsdýragarðs-
ins, þar sem hann mun dvelja næstu daga. »4
Særður fálki í góðum höndum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fékk sýklalyf og kattamat á dýraspítalanum í Víðidal
Alls 125 konur
og 97 börn
dvöldu í Kvenna-
athvarfinu á síð-
asta ári. 59 kon-
ur, um 47%, voru
af erlendum upp-
runa. Auk þeirra
kvenna sem
dvöldu í athvarf-
inu sóttu 225 ráðgjöf og stuðning
vegna ofbeldis í samböndum. Karl-
arnir sem konurnar eru að flýja eru
í flestum tilvikum Íslendingar, eða
um 80%.
Sigþrúður Guðmundsdóttir,
framkvæmdastýra Kvenna-
athvarfsins, segir konur af erlend-
um uppruna í erfiðustu stöðunni
þar sem þær hafi mjög takmarkað
félagslegt bakland og það taki oft
langan tíma að koma undir sig fót-
um á ný. »12
125 konur dvöldu í
Kvennaathvarfinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðsmaður Sölvi Geir Ottesen
leikur með FC Ural í Rússlandi.
Sölvi Geir Ottesen, landsliðsmaður
í knattspyrnu, hefur lengi glímt við
þrálát meiðsli í baki og notar
mögnuð úrræði til að halda sér
góðum. „Það er tekið blóð úr mér
og hvítu blóðkornin einangruð.
Þeim er síðan sprautað í bakið á
mér, 20 sprautur hvorum megin við
mjóhrygginn. Ég geri þetta einu
sinni í viku. Þetta gerir mér gott
og er alveg löglegt. Þetta er ekki
eins og hjólreiðakarlarnir eru að
gera – langt frá því,“ segir hann.
Sölvi leikur nú með FC Ural í
Rússlandi og býr einn, þar sem eig-
inkona hans og þrjú börn fluttu
heim til Íslands eftir að Sölvi hætti
að leika með FCK í Kaupmanna-
höfn á síðasta ári. Skýringin er sú
að eitt barna þeirra hjóna er ein-
hverft og fær mun betri stuðning
hér heima en í Rússlandi. „Það má
margt segja um Ísland en kerfið
hér er frábært og hérna heima fær
sonur minn þá þjónustu sem hann
þarf.“ Hann segir erfitt að vera
svona langt frá fjölskyldunni en
Skype létti sér þó lífið.
Rætt er við Sölva Geir í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Fær tuttugu sprautur í bakið
einu sinni í hverri viku
Hvítu blóðkornin einangruð og síðan sprautað aftur inn
Hægt er að bæta mjög rásfestu
Herjólfs með breytingum á skipinu,
að mati þýskra sérfræðinga sem
Siglingastofnun fékk til að skoða
hvernig stendur á því að Herjólfur
snýst svo mjög fyrir utan innsigl-
inguna að Landeyjahöfn.
Þýsku sérfræðingarnir telja að
unnt sé að bæta úr ágöllum skipsins
með því að breyta perustefni þess,
færa slingubretti aftar og lengja
kjölinn með skeggi við skut. Þessar
ábendingar hafa raunar áður kom-
ið fram, frá skipstjórum skipsins og
fleirum. »14
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stefni Með því að gera breytingar á
skrokki skipsins má gera það rásfastara.
Breyti Herjólfi til að
hann snúist síður
Persónuvernd
er líklega ein af
fáum stofnunum
ríkisins sem geta
státað af því að
fá helmingi
hærri fjár-
framlög árið
2014 en þær
fengu árið 2013.
Samkvæmt fjár-
lögum fær Per-
sónuvernd 92,5 milljónir á þessu
ári, 30 milljónum meira en í fyrra.
Hörður Helgi Helgason, forstjóri
Persónuverndar, segir að síðustu
ár hafi stofnunin ekki getað sinnt
nema allra brýnustu verkefnum. Sí-
fellt hafi verið bætt við skyldur
hennar með nýjum lögum en engin
fjárframlög fylgt. »26
Persónuvernd fær
helmingi meira
Leyndarmál Sumt
á ekki að fara lengra.