Morgunblaðið - 04.01.2014, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Eggert
Jöklafræðingurinn Helgi Björnsson sést hér við rannsóknir í Múlakvísl í kjölfar hlaups sem þar varð.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Jöklafræðingurinn og vís-indamaðurinn Helgi Björns-son hlaut heiðursverðlaunúr Verðlaunasjóði Ásu Guð-
mundsdóttur Wright í lok síðasta
árs. Verðlaunin þykja ein mesta við-
urkenning sem vísindamanni hlotn-
ast á Íslandi og af kunnum braut-
ryðjendum sem þegið hafa
verðlaunin má nefna Sigurð Nordal,
Sigurð Þórarinsson og Þorbjörn
Sigurgeirsson.
„Ég er mjög sæll og stoltur af
því að jöklarannsóknir hljóti þessa
viðurkenningu og bjóst ekki við því
að ég fengi hana,“ segir Helgi en
hann fékk verðlaunin fyrir rann-
sóknir sínar á jöklum í áratugi. Um
niðurstöður þeirra hefur hann birt
yfir 130 ritrýndar greinar í vís-
indaritum. Helgi hefur aflað grunn-
gagna um alla helstu jökla Íslands,
landslag undir þeim, afkomu þeirra,
hreyfingu og afrennsli jökulvatns.
Ásusjóður var stofnaður á
hálfrar aldar afmæli Vísindafélags
Íslendinga 1. desember 1968. Sjóð-
inn stofnaði Ása til minningar um
eiginmann sinn, ættingja og aðra
venslamenn. Ása sem fæddist í
Laugardælum í Flóa 12. apríl 1892
gekk ung að eiga enska lögmanninn
dr. Henry Newcomb Wright.
Góður grunnur á Íslandi
Helgi hefur unnið að rann-
sóknum og kennslu við Háskóla Ís-
lands í rúm 40 ár. Ennfremur hefur
hann verið gistifræðingur við Bri-
stolháskóla 1973-75, við Stokk-
hólmsháskóla 1980, Óslóarháskóla
1986-87, við Institute of Arctic and
Alpine Research í Boulder í Colo-
rado árið 1996, British Antarctic
Survey og Scott Polar Research
Institute í Cambridge árið 1997 og
University of British Columbia í
Vancouver í Kanada árið 2005. Þá
var hann prófessor í hlutastarfi við
Óslóarháskóla árin 1994 til 2004.
Hann hefur því góðan samanburð af
kennslu og rannsóknum í öðrum
löndum. „Það besta sem unnið er
hér á landi er algerlega sambærilegt
Náttúran, fjöllin og
jöklarnir heilluðu
Helgi Björnsson jöklafræðingur hlaut á dögunum eina eftirsóttustu vísindavið-
urkenningu á Íslandi. Hann segir að jöklarnir hafi mikil áhrif á líf okkar hér á
landi og margt þurfi að rannsaka. Íslendingar jafnt sem útlendingar hafa upp-
götvað töfra jöklanna og sífellt fjölgar þeim sem leggja þangað leið sína.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Vetraheftið
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í níu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári
— vetur, sumar, vor og haust.
Tímaritið fæst í lausasölu í helstu
bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum,
en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140.
Lærið að föndra ýmsar persónur úr
ævintýrum Disney í öllum stærðum
og gerðum. Á þessari heimasíðu er
að finna ógrynni af hugmyndum
um hvernig föndra megi einfalda
hluti. Kjörið að sækja sér inn-
blástur t.d. fyrir barnaafmæli þar
sem oftar en ekki ákveðið þema
ræður ríkjum.
Ótal hugmyndir er að finna um
það hvernig útbúa megi prinsessur
úr ævintýrum Disneys á ýmsan
máta, t.d. frá dúkkulísum til köku-
skreytinga úr marsípani. Þá eru
leiðbeiningar um hvernig föndra
megi nælu með nýjasta meðlim í
Disney-ævintýrinu Frosinn.
Leiðbeiningar eru nákvæmar og
settar fram á myndrænan hátt. Á
síðunni er einnig að finna upp-
skriftir að ýmislegu prjónlesi; frá
fígúrum til nytjafatnaðar eins og
húfum og vettlingum.
Vefsíðan www.spoonful.com
Dvergarnir sjö Á síðunni er sýnt hvernig útbúa skal þessa herramenn.
Föndrið persónur úr ævintýrum
Þrettándagleði Grafarholts verður
haldin mánudaginn 6. janúar kl. 20 í
Leirdalnum.
Blysför fer frá Framheimilinu í Úlf-
arsárdal kl. 19.15 og kl. 19.30 frá
Guðríðarkirkju.
Skólahljómsveit Grafarvogs og
Grafarholts gengur í broddi fylkingar.
Kyndlar verða seldir við kirkjuna og
Framheimilið.
Brennukóngur tendrar í brennunni
kl. 20 og síðan koma jólasveinar og
aðrar kynjaverur koma í heimsókn.
Gleðinni lýkur með glæsilegri flug-
eldasýningu frá Knattspyrnufélaginu
Fram.
Þrettándagleði Grafarholts
Fagnaður í
Leirdalnum
Þrettándinn Blysum brugðið á loft.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift