Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1
mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingran-
na. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að
sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn
eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þun-
guð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki,
háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan púls, er-
fiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota
lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Stórkostlegt 8 hesta hús
í Faxabóli á félgasvæði Fáks.
Fæst á mjög sanngjörnu verði.
Til sölu
Jón Egilsson hrl., sími: 568 3737 – 896 3677
Tímamót nálgast,
uppgjör, hinu gamla er
hent. Nýir siðir teknir
upp, heit unnin, hug-
urinn stór. Eftirvænt-
ing! Tregi, örvænting,
hræðsla. Hvað verður?
Fylgi ég með? Verð ég
skilinn eftir? Er ég
tilbúinn? Get ég eitt-
hvað gert? Er ég að
missa af einhverju?
Markmið eru sett,
áföngum er náð, tímamót verða.
Fjallið er klifið, toppnum er náð. Þá
koma í ljós nýir toppar, ný markmið,
nýir áfangar.
Þrátt fyrir öll tímamót og fjarlæg
markmið sem oft virðast eins og
lokatakmark þá heldur lífið áfram.
Þrátt fyrir allt mótlæti, torfærur og
brekkur, baráttu og ósigra, og jafn-
vel þótt ævinni ljúki, já jafnvel þrátt
fyrir sjálfan dauðann, sem eru sann-
kölluð tímamót, þá heldur lífið
áfram. Og ekkert fær það stöðvað.
Hamingjan er handan
við hornið
Þú sem veist hvað þú hefur en
veist ekki hvað verður,
forðastu ekki framtíð-
ina, sláðu henni ekki á
frest. Hafðu djörfung
til að stíga inn í hana.
Því kyrrsetu og stöðn-
un fylgir dauði en
hreyfingu líf. Þú veist
hvað þú hefur en veist
ekki hvað verður, vittu
hver þú ert og hvað þú
vilt. Vittu hvert þú vilt
strefna. Sláðu hamingj-
unni ekki á frest, hún
bíður þín handan við
hornið.
Demantsperlur
Staldraðu við, eitt augnablik og
líttu um öxl. Taktu svo reynslu þína,
allt það neikvæða og sára sem yfir
þig hefur gengið og allt hið ljúfa og
jákvæða sem þú hefur upplifað.
Settu það síðan í pott minninganna,
hrærðu vel í, við rétt hitastig og út-
koman verður gegnheilar, gulli-
slegnar demantsperlur sem ekkert
fær afmáð eða eytt.
Perlur sem gera þig að veðraðri
og þroskaðri manneskju sem kölluð
er til þess hlutverks að miðla í um-
hverfinu og til komandi kynslóða.
Slípaðar, óafmáanlegar, fallegar og
dýrmætar demantsperlur.
Festumst ekki í fortíðinni
Ekkert ár er án áfalla og ekkert
ár er gleðisnautt. Þótt áföllin séu
erfið og sár á meðan þau ganga yfir
og skilji eftir illgræðanleg sár eða í
besta falli ör bæði ljúfra og sárra
minninga, þá geta þau engu að síður
oft orðið að dýrmætri reynslu þegar
frá líður. Minningum sem þú átt og
getur byggt framtíðina á og enginn
og ekkert megnar frá þér að taka.
Gættum þess bara að festast ekki í
fortíðinni.
Friðarins Guð færi þér framtíð
bjarta og eilíft sumar í hjarta.
Vertu ekki feiminn
við framtíðina
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Forðumst ekki fram-
tíðina, sláum henni
ekki á frest. Höfum
djörfung til að stíga inn í
hana. Kyrrstöðu og
stöðnun fylgir dauði en
hreyfingu líf.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og
rithöfundur.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Gott start hjá Bridsfélagi
Kópavogs
Hjá Bridsfélagi Kópavogs hófst
nýja árið með þriggja kvölda Mon-
rad-tvímenningi á 10 borðum. Tvö
bestu kvöldin gilda til verðlauna og
því geta þau pör sem ekki komust
fyrsta kvöldið komið inn næst og lát-
ið til sín taka. Staða efstu para er
þessi.
Kristín Þórarinsd. – Loftur Pétursson
58,9%
Kristján Snorras. – Ásm. Örnólfss. 58,9%
Guðm. Pásson – Ágúst Sigurðsson 58,3%
Björk Jónsd. – Jón Sigurbjörnss. 57,6%
Björn Halldórss. – Þórir Sigursteinss.
56,3%