Morgunblaðið - 04.01.2014, Side 36
Húsvörður
Húsvörð vantar í stórt fjölbýlishús
Starfið felst í eftirliti með húsi og tækjum,
þrifi á sameign og lóð og smá-viðhaldi.
Iðnmenntun væri kostur. Upplagt fyrir sam-
hent hjón. Reglusemi skilyrði. Íbúð fylgir
starfinu. Búseta á staðnum skilyrði.
Áhugasamir sendi upplýsingar um aldur,
menntun og fyrri störf ásamt meðmælum
og hjúskaparstöðu á box@mbl.is, merkt:
,, H – 25566”.
Haft verður samband við alla. Ráðningartími
í febrúar eftir samkomulagi.
Nýtt hljóðstúdíó auglýsir
Demódiskar - Hljóðupptökur - Hljóðbækur - Útgáfa
Tækni- hljóðupptöku-
stjórnandi
óskast í hlutastarf
Ferilskrá óskast
Góð enskukunnátta algjörlega nauðsynleg
Farið verður með umsóknir og gögn sem
trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur til 15. janúar 2014.
Umsókn sendist í pósthólf 1161,
121 Reykjavík merkt Ráðtak ,,Hljóðver”
Getum bætt við okkur 2-3 löggiltum
fasteignasölum eða sölufulltrúum
Við leitum að jákvæðum, sjálfstæðum,
árangursdrifnum einstaklingum í fullt starf
til að sinna fjörugum fasteignamarkaði.
Menntun og hæfniskröfur
• Brennandi áhugi og farsæl reynsla af sölu og þjónustu
• Keppniskap og metnaður til að ná árangri
• Hæfni í mannlegum samkiptum
• Rík þjónustulund og nákvæmni í vinnubrögðum
Ráðningar standa yfir núna.
Sendið starfsferilsskrá á atvinna@domusnova.is
Nýbýlavegi 8 - 200 Kópavogi
Grétar Hannesson hdl., löggiltur fasteignasali
Atvinnuauglýsingar 569 1100
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
✝ Jón Krist-mannsson, fv.
verkstjóri, fæddist
á Ísafirði 12. maí
1933. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísa-
firði 22. desember
2013.
Foreldrar hans
voru hjónin Krist-
mann Jónsson, f.
1. janúar 1906, d.
28. apríl 1961, og Björg S.
Jónsdóttir, f. 13. júlí 1911, d.
26. september 1995. Bræður
Jóns eru: Guðbjörn, f. 19. októ-
ber 1935, Kristmann, f. 24.
desember 1939, og Jens Sig-
urður, f. 14. febrúar 1941.
Hinn 31.12. 1957 kvæntist
Jón eftirlifandi eiginkonu
sinni, Helgu Huldu Jónsdóttur,
f. 23. júlí 1934. Dætur þeirra
eru: 1. Kristín, f. 6.5. 1955,
eiginmaður hennar er Guðm.
Stefán Maríasson og dætur
þeirra eru a) Íris María, f.
1979, maki Hrafnkell Mark-
ússon, og börn þeirra eru
Katla Kristín, f. 2009, og Ari,
ulding. c) Gautur Arnar, f.
1993. 4. Margrét Brynja, f. 1.9.
1965. 5. Þórdís, f. 21.2. 1974.
Maki hennar er Höskuldur
Bragason og dætur þeirra eru
a) Aldís Huld, f. 1998, b) Haf-
dís Bára, f. 2002. c) Brynja
Dís, f. 2005. Barn Höskuldar
er Elva Björk, f. 1991.
Jón ólst upp við Tangagöt-
una á Ísafirði. Gagnfræðingur
frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar.
Hann var síðan á sjó og starf-
aði sem lögreglumaður á Ísa-
firði frá 1955 til 1961. Þá réð
hann sig sem verkstjóri hjá Ís-
húsfélagi Ísfirðinga og starfaði
þar uns hann lét af störfum ár-
ið 1999. Jón var virkur félagi í
Oddfellow-reglunni í áratugi
og naut þess að starfa í þeim
félagsskap. Þá var hann í rúm
40 ár félagi í Sunnukórnum á
Ísafirði og síðan einnig í
kirkjukórnum. Hann var mikið
í íþróttum á yngri árum og var
með hesta í mörg ár. Jón var
mikill Harðar-púki og lék
knattspyrnu fyrir Hörð og ÍBÍ.
Hann sat í stjórn Harðar um
árabil. Árin 1994-2004 var
hann formaður Körfuknatt-
leiksfélags Ísafjarðar og vann
ötult starf við uppbyggingu
körfuknattleiksins á Ísafirði.
Útför Jóns fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag, 4. janúar
2013, kl. 11.
f. 2013. b) Sara
Jóna, f. 1983. Eig-
inmaður hennar er
Garðar Örn Hin-
riksson og eiga
þau Stefán Inga, f.
2013. Barn Garð-
ars er Birta Dögg,
f. 1999. 2. Helga
Birna, f. 11.3.
1960. Maki hennar
er Gunnar Bjarni
Ólafsson. Börn
þeirra eru a) Helga Guðrún, f.
1980, maki Vilhelm Harðarson.
Börn þeirra eru Tómas Elí, f.
2006 og Sigrún Helga, f. 2011.
b) Jón Ólafur, f. 1985, maki
Hrafnhildur Ýr Rafnsdóttir.
Börn þeirra eru Mikael Rafn,
f. 2010, og Helga Birna, f.
2011. c) Atli Þór, f. 1993. 3.
Björg Bryndís, f. 12.6. 1962,
maki Guðjón Már Þor-
steinsson. Börn þeirra eru a)
Kristín Hulda, f. 1980, maki
Jakob Einar Úlfarsson. Börn
þeirra eru Haukur Rafn, f.
2000, Logi Hrafn, f. 2009, og
Arnar Thor, f. 2011. b) Thelma
Björk, f. 1982, maki Neil Mo-
Í dag kveð ég ástkæran föður
minn og langar mig að minnast
hans með orðum Hugrúnar skáld-
konu
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Guð veiti mömmu og allri fjöl-
skyldunni styrk í sorginni.
Hvíl í friði, elsku pabbi.
Kristín (Kiddý).
Elsku pabbi minn. Takk fyrir
allar góðu stundirnar sem við átt-
um, hvort sem það var heima á
Seljalandsveginum, í Hestfirðin-
um fagra, fyrsti laxinn minn eða
fræga hestaferðin okkar með
Fagranesinu. Ég er ævinlega
þakklát fyrir þær yndislegu
stundir sem ég átti með þér.
Nú á kveðjustund þakka ég allt
er þú hefur kennt mér á lífsleið-
inni og vona að þú öðlist eilífan
frið. Bið góðan Guð að veita
mömmu styrk og frið á þessum
erfiðu tímum.
Guð geymi þig, elsku pabbi.
Þín dóttir, Þórdís.
Elsku pabbi, nú er komið að
kveðjustund. Það er margs að
minnast, sem væri of langt til að
setja hér á blað. Ég mun ævinlega
vera þakklát fyrir að hafa átt þig
sem föður sem ávallt var til staðar
fyrir mig og mína, þú varst alltaf
tilbúinn að hjálpa þegar á þurfti að
halda, og einnig varstu ávallt
tilbúinn að leiðbeina þegar þess
var þörf.
Við vorum mjög lík ég og þú,
þrjósk og áttum erfitt með að gefa
eftir, en á milli okkar ríkti alltaf
gagnkvæm ást og virðing. Ég mun
varðveita þinn karakter, gera
hann að mínum og nota til fram-
tíðar.
Elsku pabbi minn, þú tókst á
við erfiðan sjúkdóm og barðist við
hann eins og þín var von og vísa.
Þar kom upp íþróttamaðurinn,
formaðurinn og yfirverkstjórinn
sem var alltaf til staðar og hikaði
ekki við að láta vita af sér. Svo fór
að sjúkdómurinn hafði betur en
aldrei gafst þú upp. Við áttum góð
samtöl síðustu vikurnar og mun
ég ekki gleyma þeim og þínum
ráðleggingum.
Ég elska þig, pabbi minn, og á
eftir að sakna þín mikið.
Þín dóttir, Bryndís.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð.
Sú þraut var hörð en hljóður nú,
í hinsta draumi brosir þú.
(J. Jónasson)
Björg Bryndís Jónsdóttir.
Ástkær tengdafaðir, vinur og
veiðifélagi er fallinn frá eftir stutt
en erfið veikindi. Þessi myndar-
legi, sterki og gegnheili maður er
minnisstæður öllum þeim sem
kynntust honum á lífsleiðinni.
Ég var bara smá púki er ég
hitti hann fyrst í Íshúsfélaginu.
Það myndi líklegast kallast
barnaþrælkun í dag en var sjálf-
sagður hlutur þá að við púkarnir
færum að vinna snemma ef kost-
ur var.
Fyrir 40 árum fór ég í alvöru að
stíga í vænginn við Kristínu, frum-
burð hans. Ég er alveg viss um
það að ég var langt því frá að vera
fyrsti valkostur hans sem tengda-
sonur. Þau Hulda og Jonni tóku
mér þó vel og frekar fljótt fór að
skapast gagnkvæm virðing sem
síðan þróaðist í vinskap.
Það er ógleymanlegt hvernig
þau hlúðu að barnabörnunum og
dætur okkar Kristínar áttu ynd-
islegar stundir þegar þær gátu
verið á Ísafirði á sumrin. Toppur-
inn var að komast á hestbak og
svo má ekki gleyma sumarbú-
staðnum í Hestfirði en þar höfum
við átt yndislegar verslunar-
mannahelgar í meira en 30 ár.
Þess hafa barnabörnin og barna-
barnabörnin notið til fullnustu.
Þau Hulda og Jonni voru alltaf til
staðar og ávallt var tími til að leika
við þau litlu. Það var alltaf sjálf-
sagt að taka á móti þeim og vera
með þeim í lengri eða skemmri
tíma. Jonni var heilsteypt per-
sóna, virtur af öllum sem þekktu.
Það mátti alltaf treysta því sem
hann sagði. Hann var þrjóskur og
ekki alltaf hægt að rökræða mikið
við hann. Það endaði oftar en ekki
með því að á hann kom glott og
hann sagði ekkert. Glottið sagði
aftur á móti: „Já, þú heldur það.
Ég er ekki svo viss.“
Íþróttirnar áttu stóran hlut í lífi
Jonna. Hann spilaði fótbolta með
Herði og ÍBÍ. Var hann í fyrsta
Ísafjarðarliðinu sem náði að kom-
ast í efstu deild. Þá stundaði hann
fleiri íþróttir og síðar átti hann
stóran þátt í enduruppbyggingu
körfuboltans á Ísafirði og var for-
maður Körfuknattleiksfélags Ísa-
fjarðar í 10 ár.
Jonni var mikill veiðimaður og
var ég lítill bógur miðað við hann
er við byrjuðum að veiða saman
fyrir um 30 árum. Árnar við Djúp
voru hans heimavöllur en síðustu
10 árin náði ég að fara með honum
í fjölda af öðrum ám. Upphaflegu
veiðitúrarnir voru í Laugardalinn
með mökum og börnum. Seinni
árin vorum við oftast tveir með
konunum auk árlegs karlatúrs í
Fáskrúð í Dölum.
Það var yndislegt að eyða tíma
við árbakka, spjalla og segja sög-
ur. Það var ekki æsingur í þessum
túrum. Jonni var flinkur veiðimað-
ur og miðlaði vel af reynslu sinni.
Það voru gæðastundir sem við átt-
um við Dagmála og Blámýrarfljót-
in í Laugardalnum eða við
skemmtilega staði í Langadalnum
eins og Hesteyrarfljótið þar sem
Jonni náði einum 23 punda laxi. Þá
má ekki gleyma föstum liðum eins
og spilastundunum að kvöldi veiði-
dags.
Það er mikill tregi sem sækir að
við kveðjustund en ævarandi
þakklæti fyrir allt það sem þú
gafst af þér til fjölskyldunnar.
Elsku Hulda, Guð gefi þér
styrk í sorginni.
Guðmundur Stefán.
Jón
Kristmannsson
Fleiri minningargreinar
um Jón Kristmannsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.