Morgunblaðið - 04.01.2014, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Að skrifa er að dreyma vak-andi og gera drauminnvaranlegan, yfirfæra hanntil annarra,“ segir sögu-
maður hrífandi „skáldættarsögu“
Þórunnar Erlu- og Valdimarsdóttur,
Stúlku með maga. Það er Erla Þór-
dís Jónsdóttir sem segir söguna, hún
veiktist 42 ára gömul af krabbameini
og á ekki langt eftir en hefur sest við
að lesa bréf, dagbækur og allskyns
skjöl um sögu forferða sinna, gögn
sem koma úr járnskáp Alexanders
afa hennar. Hún nýtur þess að hafa
þennan tíma í veikindunum til að líta
aftur í tímann. „Ég kýs að líta á það
sem forréttindi
að fá tíma til að
gera upp líf mitt.
Frá mínum lík-
ama séð er það
kostur. Ég veikt-
ist 42 ára og
losna við hrukkur
og kvíðboga ell-
innar.“ (20)
Erla Þórdís
var móðir Þórunnar, sem er því að
segja sína eigin ættarsögu og bætir
forskeytinu „skáld“ þar við, enda
gefur hún sér fullt og þarft frelsi til
að sviðsetja atburði, skapa samtöl og
koma með allrahanda hugleiðingar
inn í sögu fólksins. Og hún gerir það
líka afskaplega vel því þetta er gríp-
andi frásögn og persónurnar lifna á
síðunum, með drauma sína, þrár og
glímu við blákaldan veruleikann. Þá
er frásögnin prýdd ljósmyndum af
fólkinu sem kemur við sögu, teikn-
ingum og myndum af hlutum sem
minnst er á. Allt kemur þetta úr
járnskápnum sem geymir fortíðina.
Höfundurinn dregur upp ættartré
sem nær aftur á nítjándu öldina, á
Snæfellsnesið, og fólkinu fylgir lítill
dreki, „ósýnileg ljósvera“, sem er
ættarfylgja. Járnskápurinn kemur
frá Alexander afa sögukonunnar og
hann er nokkuð fyrir miðju í fyrri
hluta frásagnarinnar, ásamt fólkinu
sem stóð honum næst fyrir vestan,
og það er litskrúðugt og forvitnilegt
persónugallerí sem skrifað er um af
hlýju og fallegum skilningi. Þar
koma meðal annars við sögu langa-
langafinn Þorleifur í Bjarnarhöfn
sem var svo skyggn að hann gat séð
yfir til Noregs og Kaupmannahafnar
„eftir pöntun“, ríkir óðalsbændur,
kvennamenn og drykkjumenn.
„Á maður að gleypa þessar sögur í
heilu lagi, af því að maður vill trúa
þeim?“ spyr sögukonan og drífur
lesandann áfram og við trúum öllu,
hún skrifar sig „í ham, skrifa mig inn
í sögu ættarinnar, mína sögu, allt vill
vera saga eins og allt vill vera líf ef
það má,“ segir hún.
Stokkið er fram og aftur í tíma og
smám saman færumst við inn í sam-
tímann, Alexander afi flytur að vest-
an þegar atvinnuástand versnar og
kemur sér fyrir í höfuðstaðnum, og
þá breytir heldur um svip og fyrir
miðju verður saga foreldra Erlu
Þórdísar og hennar sjálfrar. Hún var
eina barn þeirra og hjónin áttu ógn-
vekjandi leyndarmál, voru sýkt af
sýfilis, sjúkdómi sem ekki mátti
nefna. Sögukonan gengur í Mennta-
skólann í Reykjavík, eignast unnusta
og síðan barn meðan hún er enn þar í
námi, Andstyggilegt er að lesa um
framkomu rektorsins við útskriftina
þegar hann tekur ekki í höndina á
henni eins og öðrum nýstúdentum:
„hryllingsmómentið. Refsingin. Nið-
urlægingin,“ skrifar hún.
Líka er víða komið við í þessum
seinni hluta frásagnarinnar; til að
mynda eru eftirminnileg samskipti
Erlu við systkinin á Gilsbakka þar
sem hún var í sveit á sumrin.
„Bréf eru gluggar að fortíð, sem
ramma inn sögur,“ segir á einum
stað í bókinni, og aðdáunarvert er að
sjá hvað höfundurinn hefur unnið á
forvitnilegan og hrífandi hátt úr
bréfum og skjölum fjölskyldunnar.
Ekki einungis lifnar fólkið á síðunum
heldur er heimur þeirra vel und-
irbyggður og vísað í forvitnilegar og
sögulegar staðreyndir af ýmsu tagi.
Þetta er löng bók, á fimmta
hundrað síður, og hefði mátt skerpa
á frásögninni á einhverjum stöðum.
En hún er afar áhugaverð og vel stíl-
uð, og hefur höfundurinn með henni
reist forfeðrum sínum fagran og lík-
lega varanlegan minnisvarða.
Morgunblaðið/Ómar
Þórunn „…aðdáunarvert er að sjá hvað höfundurinn hefur unnið á for-
vitnilegan og hrífandi hátt úr bréfum og skjölum fjölskyldunnar,“ segir rýnir.
„Bréf eru gluggar að for-
tíð, sem ramma inn sögur“
Skáldverk
Stúlka með maga –
skáldættarsaga bbbbn
Eftir Þórunni Erlu- og Valdimarsdóttur.
JPV forlag, 2013. 441 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Sýningum lýkur brátt
hjá Leikfélagi Reykja-
víkur annars vegar á
söngleiknum Mary
Poppins í leikstjórn
Bergs Þór Ingólfs-
sonar og hins vegar
Jeppa á Fjalli eftir
Ludvig Holberg í leik-
stjórn Benedikts Erl-
ingssonar. Samkvæmt
upplýsingum frá LR
eru sýningarnar tvær
vinsælustu uppfærslur
Leikfélagsins frá sein-
asta leikári. Mary
Poppins hefur sett
nýtt aðsóknarmet í 117
ára sögu LR, en yfir
64.000 gestir hafa séð
sýninguna. Jeppi á
Fjalli flyst yfir á
stærra svið í Gamla
bíói til að anna eft-
irspurn og verður sýnt
þar út janúar.
Sýningum fer að ljúka
Vinsæl Guðjón Davíð Karlsson og Jóhanna
Vigdís Arnardóttir í Mary Poppins.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/1 kl. 19:30
Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 16/1 kl. 19:30
Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/1 kl. 19:30
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Fim 30/1 kl. 19:30
Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Mið 29/1 kl. 19:30
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn
Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Pollock? (Kassinn)
Fös 10/1 kl. 19:30 Lau 11/1 kl. 19:30 Sun 12/1 kl. 19:30
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýningar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30
Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar.
Sveinsstykki (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 19:30 Aukas.
Aukasýning í janúar. Ekki missa af Arnari Jónssyni í þessum einstaka einleik.
Lúkas (Kassinn)
Lau 4/1 kl. 19:30 Sun 5/1 kl. 19:30
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Jeppi á Fjalli – síðustu sýningar
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 4/1 kl. 13:00 Lau 18/1 kl. 13:00 Sun 26/1 kl. 13:00
Sun 5/1 kl. 13:00 Sun 19/1 kl. 13:00 Fim 30/1 kl. 19:00
Sun 12/1 kl. 13:00 Fös 24/1 kl. 19:00
Fös 17/1 kl. 19:00 Lau 25/1 kl. 13:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Gamla bíó)
Fös 10/1 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Lau 18/1 kl. 20:00
Lau 11/1 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Sun 19/1 kl. 20:00
Sun 12/1 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00
Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda. Síðustu sýningar!
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 20:00 fors Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Lau 25/1 kl. 20:00 aukas
Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k.
Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k.
Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Sun 23/2 kl. 20:00 14.k
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Refurinn (Litla sviðið)
Lau 4/1 kl. 20:00 Mið 8/1 kl. 20:00
Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt. Síðustu sýningar