Morgunblaðið - 04.01.2014, Síða 52
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 4. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Byrjuð með Jóni Bjarnasyni
2. Adolf ekki lengi án atvinnu
3. Leita að Brynju Mist
4. Hannaði tenntan klakabrjót
Tríóið Skarkali heldur síðdegistón-
leika í Þjóðmenningarhúsinu í dag kl.
16. Tríóið mun leika frumsamda
djasstónlist eftir Inga Bjarna og er
fjölbreytnin þar í fyrirrúmi, að sögn
meðlima. Í september síðastliðnum
kom tríóið fram sem fulltrúi Íslands á
tónlistarhátíðinni Young Nordic Jazz
Comets í Þrándheimi í Noregi en til-
gangurinn með henni er að kynna
unga og efnilega djasstónlistarmenn.
Tríóið skipa Ingi Bjarni Skúlason sem
leikur á píanó, Valdimar Olgeirsson
sem leikur á bassa og Óskar Kjart-
ansson sem leikur á trommur. Ingi
Bjarni og Valdimar stunda framhalds-
nám í djasstónlist í Hollandi.
Skarkali leikur fjöl-
breytta djasstónlist
Bandaríski djassgítarleikarinn og
tónskáldið Rory Stuart heldur tónleika
í salnum Kaldalóni í Hörpu á þrett-
ándanum, 6. janúar, kl. 17, ásamt
trommuleikaranum Scott McLemore,
bassaleikaranum Þorgrími Jónssyni
og saxófónleikaranum Sigurði Flosa-
syni. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og að þeim standa bandaríska
sendiráðið á Íslandi, Fulbright-
stofnunin og tónlistar- og ráðstefnu-
húsið Harpa. Stuart býr og starfar í
New York og hefur hlotið mikið lof fyr-
ir leik sinn og tónsmíðar. Hann hefur
leikið með mörgum
virtum djass-
tónlistarmönnum,
m.a. Charlie Rouse
og Billy Harper.
Rory Stuart leikur á
tónleikum í Kaldalóni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
Á sunnudag Austan 8-13 m/s og dálítil rigning eða slydda með köflum, en norðaustan
13-18 og snjókoma á Vestfjörðum. Hvessir víða um kvöldið. Hiti kringum frostmark.
Á mánudag og þriðjudag Norðaustanátt, 15-23 m/s, hvassast norðvestantil. Úrkomu-
lítið suðvestantil, annars rigning eða slydda, en snjókoma í innsveitum og á Vestfjörðum.
„Fyrsta æfingin hjá Solskjær var ró-
leg enda leikur á morgun (í dag).
Hann var sjálfur með í reitaboltanum
en ekki í mínum reit svo ég sá ekki
hvort hann sýndi gamla takta,“ sagði
landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunn-
arsson, leikmaður velska liðsins
Cardiff, við Morgunblaðið í gær en
Ole Gunnar Solskjær er orðinn knatt-
spyrnustjóri félagsins. »1
Fyrsta æfingin hjá
Solskjær var róleg
Aron Pálmarsson var hetja
Íslands í fyrsta leik liðsins á
fjögurra landa móti í Þýska-
landi í gær en hann tryggði
strákunum okkar sigur á
Rússlandi, 35:34, með síð-
asta skoti leiksins. Mótið er
liður í undirbúningi Íslands
fyrir EM í Danmörku. Vegna
meiðsla í herbúðum ís-
lenska liðsins fengu yngri
menn tækifæri og stóðu sig
flestir vel. »2
Ísland vann Rúss-
land í fyrsta leik
Frjálsíþróttakonan Helga Margrét
Þorsteinsdóttir hefur ekki keppt í
hálft annað ár vegna þrálátra
meiðsla. Hún var komin af stað í
ágúst en þá tók brjósklos í baki sig
upp að nýju. „Það má segja að ég sé
eiginlega bara í sömu sporum og
þegar þú ræddir
við mig fyrir
rúmu ári.
Þetta er búið
að fara svo-
lítið í hring,“
segir Helga
Margrét. »4
Helga Margrét í sömu
sporum og fyrir ári
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Við höfum tekið í spil, farið í heim-
sókn, hitt fólk og horft á sjónvarpsefni
sem við eigum á flakkaranum,“ segir
Sigurður Þór Guðmundsson, bóndi í
Holti í Þistilfirði.
Útsendingar Ríkisútvarpsins hafa
legið niðri á stórum svæðum norð-
austantil á landinu frá því á gaml-
ársdag. Sigurður var þó einn af þeim
sem gátu notað netið til að horfa á ára-
mótaskaupið og fylgjast með fréttum.
Í fyrradag rofnaði þó allt net-
samband þar sem 48 metra mastur á
Viðarfjalli í Þistilfirði féll til jarðar
vegna ísingar.
Sigurður segist þó ekki gráta sam-
bandsleysið. „Þetta er í lagi í smátíma
en maður vill þó fá að vita hvenær
þetta kemst í lag. Ætli það taki ekki
einhvern tíma þar sem oftar en ekki
vakna spurningar um hverjir eigi að
bera kostnaðinn af tjóninu.“
Hægt er að hlusta á fréttir í gegn-
um langbylgju Ríkisútvarpsins en
miklir skruðningar eru og því ekki
freistandi að hlusta á það til lengdar,
að sögn Sigurðar.
„Við erum fámenn hér í sveitinni
og ekki frek, fyrir vikið viljum við
gleymast. Kannski verður breyting
þar á núna,“ segir Sigurður sposkur
og bendir á að stóru fjarskiptafyrir-
tækin bjóði ekki upp á háhraðanet-
tengingu í sveitina. Hann kaupi netið
af Magnavík, fyrirtæki á Kópaskeri.
Það netsamband hefur verið stöðugt í
gegnum tíðina. „Það sendur samt
aldrei á að auglýsingabæklingar frá
stóru fjarskiptafyrirtækjunum berist
til okkar, þar sem auglýst eru ljósnet
og ljósleiðari.“
Sigurður segir að þegar til kast-
anna kemur sé þetta hins vegar ekki í
boði, þrátt fyrir að ljósleiðari liggi í
gegnum jörðina hans. „Þetta er hálf-
hjákátlegt.“
Sigurður býr í Holti ásamt konu
sinni, Hildi Stefánsdóttur, og þremur
börnum; Stefáni Pétri, tíu ára, Ólafi
Ingva, átta ára, og Ásu Margréti,
fjögurra ára. Þau eru sauðfjár-
bændur og með hænur og hesta til
heimabrúks.
Gott að eiga góða nágranna
„Við fórum í heimsókn á Gunn-
arsstaði í gær [fimmtudag] og þá gat
ég séð þáttinn Innsæi sem ég hef
fylgst með. Ég vona að ég missi held-
ur ekki af Castle, sem er á þriðjudög-
um á RÚV. Annars er ekkert voða-
lega slæmt að vera ekki með sjón-
varp,“ segir Stefán Pétur Sigurðsson
í Holti, tíu ára.
Þá hefur ný leikjatölva verið brúk-
uð undanfarið sem og tekið í spil með
fjölskyldunni.
Stefán er enn í jólafríi og segist
njóta þess að vera heima enda alltaf
næg verkefni í sveitinni. Á bænum
eru fimm tveggja vikna gamlir
hvolpar. Spurður hvort hann fái að
halda einum eftir segir hann það
eiga eftir að koma í ljós en annars
þyki honum erfitt að velja því þeir
séu allir svo fallegir.
Taka í spil í sjónvarpsleysinu
Útsendingar RÚV legið niðri víða
norðaustantil frá því á gamlársdag
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Fjölskyldan í Holti í Þistilfirði Sigurður Þór Guðmundsson og Hildur Stefánsdóttir ásamt sonum sínum þeim Stefáni Pétri og Ólafi Ingva og frænda þeirra
Jóhanni Ingva Benediktssyni, sem var í heimsókn, kippa sér ekki mikið upp við sjónvarpsleysið. Heimasætan Ása Margrét var ekki heima að þessu sinni.
Útvarpsútsendingar Rásar 1 og
Rásar 2 komust í lag á norð-
austurhorni landsins síðdegis í
gær. Vodafone sér um rekstur
búnaðar sem var uppi í mastr-
inu sem féll og var lögð mikil
áhersla á útvarpsútsending-
arnar. Unnu viðgerðarmenn að
því í allan gærdag og tókst að
koma útsendingum í samt lag
fyrir kvöldfréttir Ríkisútvarps-
ins. Lengra er í að hliðrænar
sjónvarps-
útsend-
ingar
komist
í lag.
Í útvarpinu
heyrðist á ný
VIÐGERÐ BAR ÁRANGUR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-15 m/s en 15-23 norðvestantil. Rigning eða slydda
norðan- og austantil og snjókoma á Vestfjörðum, en annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig.