Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Blaðsíða 15
Það er við hæfi á 100 ára ártíð
finnsku listakonunnar og skáldsins
Tove Jansson að skyggnast aðeins
inn í heim Múmínálfanna. Heimsókn
í finnsku búðina við Laugaveginn,
Suomi PRKL! gefur gott tækifæri til
þess. Maarit Kaipainen, annar eig-
enda verslunarinnar, er ekki í vand-
ræðum með að svara því hvað sé
svona heillandi við þennan heim.
„Mér finnst meginatriðið vera það
að hún skrifaði Múmínálfana í gegn-
um sitt eigið líf. Það eru alvöru til-
finningar þarna, sorg og gleði, allt
sem tilheyrir lífinu. Hún skrifaði til
dæmis Halastjörnuna ekki löngu eft-
ir seinni heimsstyrjöldina þegar
óttatilfinningin var ríkjandi. Það er
eitthvað alvöru þarna til að tengjast,
þetta er ekki bleik Hello Kitty, bara
blóm og kökur. En stundum er það
þannig líka, maður þarf að kunna að
njóta litlu hlutanna í lífinu, kannski
kemur halastjarna á morgun,“
segir hún.
Múmínálfaheimurinn er
sannarlega heillandi og
skiljanlegt af hverju þessar
litríku persónur hafa náð
að heilla heimsbyggðina.
Þess má geta að verslunin
verður með dagskrá á
menningarnótt, þar sem
meðal annars verður
sýnd heimildarmynd
um Tove Jansson,
sem ber nafnið
Moominland
Tales og er á
ensku. Dagskráin
verður auglýst á
Facebook-síðu Suomi
PRKL!
ingarun@mbl.is
HEILLANDI OG LITRÍKAR PERSÓNUR
Alvöru tilfinningar í
Múmíndal
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það er gaman að
leika sér í pollum í
þessum stígvélum.
Bakki til dæmis fyrir morgunkaffið.
Múmín-hlaupaskór, framleiddir
sérstaklega út af afmælinu í
takmörkuðu upplagi.
Sjálfsmynd listakonunnar en hún er umkringd íbúum Múmíndals. Græni boll-
inn á myndinni var sérstaklega framleiddur í tilefni af 100 ára afmælinu og
renna tvær evrur af söluverði hvers bolla til UNICEF.
Íbúar Múmíndalsins
eru ekki einsleitur
hópur.
Múmín-
snáðinn hefur
það gott í
kerrunni.
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Seljalandsfoss, fossinn Gljúfrabúi, Nauthúsagilið og Selja-
vallalaug eru allt staðir sem heimsóttir verða á vegum
Ferðafélags barnanna á sunnudaginn. Lagt verður af stað
klukkan 11 frá Hlíðarendasjoppunni (N1) á Hvolsvelli.
Vatnasull og giljagöngur*Án barnanna væri húsið hreint,veskið fullt en hjartað tómt.Höfundur óþekktur
Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is
1975-2014
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við
leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Birta Björnsdóttir, fréttakona á Stöð 2,
er gift Sveini Loga Sölvasyni, fjár-
málastjóra Össurar, og eiga þau börnin
Herdísi Önnu, átta ára, og Óttar, sem
er að verða fimm ára.
Þátturinn sem allir geta horft á? Sú
þáttaröð sem á hvað mestu fylgi að
fagna hjá fjölskyldunni er Masterchef
USA. Krakkarnir fylgjast með af at-
hygli og minna mig á ef ég gleymi að
þýða fyrir þau öll innihaldsefni sem
áhugakokkarnir nota í matinn sinn.
Masterchef-leikur er líka tekinn reglu-
lega þar sem þau skiptast á að vera
Gordon Ramsey og smakka rétti
sem hinn hefur galdrað fram úr
dýrindis leikfangamat úr plasti.
Svo er alltaf gaman að horfa á
góðar náttúrulífsmyndir og í sér-
stöku uppáhaldi er þegar jarð-
kettir (Tímon) koma þar við
sögu.
Maturinn sem er í uppáhaldi
hjá öllum? Það er bæði gott og
gaman að baka saman pitsu
um helgar og lítið þarf að slást
yfir einhverju sem einhver borð-
ar ekki, hver setur bara á pitsuna
það sem hann hefur lyst á.
Svo er grjónagrauturinn alltaf klassískur og ekki
þykir verra þegar við hressum hann við að hætti ömmu
Jónu. Amma hafði ekki mikið á milli handanna í gamla daga og þegar börnin
hennar voru orðin leið á daglegu skyráti ákvað hún að blanda matarlit saman
við skyrið til að gera það skemmtilegra. Blátt skyr á mánudögum, gult á þriðju-
dögum og svo framvegis. Ég get staðfest það að bleikur grjónagrautur rennur
enn betur niður en sá hvíti.
Skemmtilegast að gera saman? Okkur finnst, eins og trúlega flestum, óg-
urlega gaman að ferðast saman. Við eignuðumst stórt og gott tjald fyrir nokkr-
um árum og höfum dröslað því með okkur um allt land á hverju sumri. Okkur
finnst líka gaman að spila og teikna og svo er alltaf gaman að fara í sund og út
að hjóla.
Borðið þið morgunmat saman? Já, við gerum það nú oftast. Á virkum dög-
um þarf alla jafna að reka hverja skeið ofan í mannskapinn til að komast út um
dyrnar á morgnana. Svo er eins og morgunmaturinn renni hraðar og ljúflegar
niður um helgar. Hvort sem það er vegna þess að þá bíður barnatíminn í sjón-
varpinu skal ósagt látið.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Okkur finnst gam-
an að spila saman, bæði ólsen og veiðimann og aðra klassík og svo eru til mörg
skemmtileg borðspil sem allir geta spilað saman, til dæmis Draugaspilið,
Krókódílaspilið og Disney-spilið. Svo eru börnin á heimilinu með eindæmum
föndurglöð svo það er alltaf hægt að setjast niður og teikna, klippa og líma. Já
og perla og leira líka.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Bleikur grjónagrautur
rennur betur niður
Birta
Björnsdóttir.