Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Síða 32
*Bandaríski sjóherinn ætlar ekki aðláta óvini sína koma sér að óvör-um og er við öllu búinn. Núhefur flotinn byrjað að setjaupp leysi-byssur á herskipsín en þær eiga að getaskotið niður flugvélar, eldflaugar og litla dróna. Einnig er sjóherinn að prófa tækni sem vinnur eldflaugaeldsneyti úr sjó. Sú tækni gæti nýst í meira en hernað einan. AFP AFP Græjur og tækni Af öllum þeim fartölvum sem ég hef haft undir höndumá síðustu árum hef ég kunnað einna best við Yoga-línuna frá Lenovo. Hönnunin á þeim vélum er einfald- lega svo vel heppnuð, frumleg og þægileg í senn. Því er for- vitnilegt að fá í hendurnar enn nýtt afbrigði- 13“ Yoga 2 Pro sem kemst býsna nálægt því að skáka flaggskipum Apple, sem almennt eru í mestum metum, í útliti og búnaði. Örgjörvinn í vélinni sem ég tók til kosta er Intel i7 4500U, Haswell-hönnun, sem gerir hann einkar sparneytinn. Grunn- hraði á örgjörvanum er 1,8 GHz en hann getur skrúfað hrað- ann upp í 3 GHz ef þörf krefur. „Skjákortið“ er ekki beinlínis skjákort, heldur grafíkörgjörvi, Intel HD4400, sem felldur er inn í örgjörvasettið. Hraðinn á því er prýðilegur, engin ósköp, en kappnóg fyrir alla almenna notkun og i7-örgjörvinn og ríflegt minni gerir sitt í að vélin er skemmtileg og spræk. Minni í vélinni er 8 GB, sem er býsna gott á pappírnum, en maður á eiginlega ekki að sætta sig við minna, þ.e. ef verið er að keyra 64 bita útgáfu af Windows 8,1 eins og á þessari vél. Það er vissulega hægt að keyra Windows 8 og 8,1 á minna minni (32 bita útgáfuna þó ekki ef nýta á yfir 4 GB í minni) en hraðamun- urinn er svo gríðarlegur að 8 GB ætti að vera lágmark. Rétt er að geta þess að í vélinni er ein minn- israuf og ekki hægt að hafa meira minni í henni en 8 GB. Skjárinn er 13,3“ IPS LED-snertiskjár með upplausninni 3.200x1.800 dílar. Hann er frábær, ekki mjög bjartur en ótrú- lega skýr og góður og litir mjög greinilegir – einn besti skjár sem ég hef séð á fartölvu. Sem snertiskjár er hann líka mjög fínn og svörun er fyrsta flokks. Lyklaborðið er framúrskarandi að vanda, Lenovo er alltaf með bestu lyklaborðin, en það hefði verið kostur ef lyklarnir í lyklaborðinu hefðu dregist inn þegar vélin er notuð sem spjaldtölva (sbr. þá frábæru vél Lenovo ThinkPad Yoga) þó að eðlilega sé erfitt að koma því við í vél sem er ekki nema 16,9 mm að þykkt samanbrotin. Hægt er að kveikja á lýsingu á lyklaborðinu, sem eykur enn notagildi þess. Ofan við skjáinn er myndavél, sem er reyndar ekki nema 720 p en dugir þó fyrir Skype og ámóta vídeóspjall. Í vélinni er 256 GB mSATA SSD diskur, en mSATA (Mini- SATA) þýðir að hann er mjög lítill um sig, enda er diskurinn ekki diskur, heldur sérstök gerð af minniskorti og tekur ekki nema brot af plássi sem þarf fyrir 2,5“ SATA-drif. Lenovo gefur upp níu tíma endingu á rafhlöðu en það fer eftir ýmsum þáttum, eins og til að mynda því hvað verið er að gera á vélinni. Ég náði ekki að prófa það nógu rækilega, þar sem vélin barst seint í prófun, en Google segir mér að níu tímar séu ekki fjarri lagi þó að endingin sé kannski nær sjö til átta tímum í almennri notkun. Kanturinn til hliðar við lyklaborðið er úr stömu gúmmíi, sem kemur vel út. Músarflöturinn er fínn, ekki alveg skot- heldur en það má eflaust stilla hann að smekk. Eitt af því sem gerir Yoga-vélarnar svo skemmtilegar í notkun er að það er hægt að sveigja skjáinn á ýmsa kanta, má færa hann aftur um 360°. Þannig er hægt að nota vélina sem fartölvu (fistölvu), hafa skjáinn uppi en lyklaborðið fyrir aftan sem stuðning, sem spjaldtölvu og líka sem V á hvolfi, sem Lenovo-bændur kalla tjald, en þá halla hvort tveggja skjár og lyklaborð og hentar vel til að mynda í eldhúsinu. Skjáborðið snýr sér eftir því sem skjástaðan krefst en tekur smástund að skipta á milli, þó ekki nema sekúndu eða svo. Á vélinni er 64 bita Windows 8,1 (Home-útgáfan), sem er nýjasta gerð Windows. Menn hafa mikið deilt um 8-línuna af Windows og mér skilst að næsta útgáfa verði nokkuð frá- brugðin, en þótt það sé ekki gallalaust reynist það vel alla jafna og einkar vel á tölvu með snertiskjá sem þessari. Þar á þó eftir að bæta sitthvað, fer eftir forritum, en sé til að mynda litið til vafra er Firefox lengra kominn í snertivæðing- unni en Chrome og Internet Explorer lengst þeirra. Vélin býður manni reyndar upp á að sækja forrit sem henta fyrir hverja skjástillingu fyrir sig, og þá með það í huga að auð- velda notkun á snertiskjánum, en ekki þóttu mér þær uppá- stungur ýkja gagnlegar. FISLÉTT OG FRAMÚRSKARANDI * Á henni er eitt USB 2.0 tengiog eitt USB 3.0, hljóð út- og inn- gangur og microHDMI tengi. Ekki skil ég af hverju ekki eru í henni tvö USB 3.0 tengi, en einnig er innbyggður SD/ MMC kortalesari – fara slík fyrirbæri ekki að hverfa með tímanum, svona rétt eins og diskettudrif; kannski mætti sleppa því og fá fleiri USB-tengi í staðinn? * Vélin er 333,4x224,8x16,9mm að stærð og hálft annað kíló að þyngd. Boddíið á henni er úr ál- og magnesíumblöndu og hún virkar traust þegar tekið er á henni, þó ekki það traust að hægt sé að reka niður tjaldhæla með henni. Brún- irnar eru með stömum gúmmíkanti til að betra sé að láta hana standa sem „tjald“. * Þetta er ekki beinlínis skóla-vél, kostar 209.900 kr. í netverslun Nýherja, en hún er eiguleg í meira lagi. Það er líka hægt að fá sér Yoga 2 með Intel i5 örgjörva á 154.900 á sama stað, sem mér sýnist prýðileg kaup, en hún er líka með 8 GB minni en 500 GB SSHD drif (en svo nefnist drif sem er með hörðum disk og líka hraðvirku minni). Græjan ÁRNI MATTHÍASSON TÖLVURISINN LENOVO Á ÞAÐ TIL AÐ FARA ÓVENJULEGAR LEIÐIR Í HÖNNUN OG BÚNAÐI. ÞAÐ MÁ GJARNAN SJÁ Á FAR- TÖLVUM FYRIRTÆKISINS. NÝ VÉL Í YOGA-LÍNU LENOVO, YOGA 2 PRO, FETAR ÞÁ SLÓÐ AÐ VERA FRUMLEG OG TÆKNILEG Í SENN. Þegar eitthvað er í burðarliðnum hjá Apple koma iðulega fram sögusagnir sem oftar en ekki reynast rangar en eru engu að síður áhugaverðar. Ímyndurnaraflið fer gjarnan á flug hjá tæknibloggurum og -spekúlöntum enda Apple fyrir löngu sannað fyrir heims- byggðinni að fyrirtækið fer ekki hefðbundnar leiðir og hefur verið frumkvöðull á mörgum sviðum. Fyrstu iMac tölvurnar sem komu í regnbogans litum slógu út gráu kassana frá öðrum framleiðendum, tónlistarspilarinn iPod gjörbylti tónlistarheiminum með iTunes sér við hlið og enginn getur neitað því að iP- hone ekki bara breytti því hvernig við nálg- umst síma heldur sameinaði tónlistarspil- arann, tölvuna og símann í eitt stórkostlegt snjalltæki sem allir aðrir framleiðendur voru neyddir til að herma eftir eða sitja eftir í for- tíðinni. Engan ætti því að undra að margir bíða spenntir eftir iWatch og eru ýmsar vangaveltur uppi með það hvernig tækniúrið mun líta út og hvernig notendagildi þess verður. Búist er við því að það verði kynnt notendum í september ásamt iPhone 6 og því ekki langt að bíða eftir næsta töfratæki Apple. Þá er búist við því að Apple muni kynna næstu kynslóð af iPad air og jafnvel með nýjum skjá sem verður þægilegra að vinna á þegar sólin er hátt á lofti. Eitthvað hefur verið um uppfærslur frá Apple og hefur fyrirtækið bætt örlítið MacBook pro Retina tölvur sínar með Has- well örgjörvanum frá Intel. Með þessari upp- færslu sem kom í lok júlí hefur rafhlöðuend- ing verið bætt og geta nýir eigendur MacBook því notið þess að vinna lengur á tölvunni án þess að þurfa að setja hana í sam- band til hleðslu. ORÐRÓMUR OG UPPFÆRSLUR Hvað býður Apple upp á? Spennandi verður að sjá hvernig iWatch og aðrar nýjar vörur frá Apple munu líta út og virka. AFP Bandaríski sjóherinn tæknivæðist

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.