Morgunblaðið - 27.11.2014, Side 14

Morgunblaðið - 27.11.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samantekt Ríkisskattstjóra sem gerð var fyrir Morgunblaðið leiðir í ljós að íslenskir og erlendir ríkisborgarar, með skattskyldu hér á landi, höfðu tæplega 16 millj- arða króna í tekjur erlendis í fyrra. Launa- tekjur frá al- þjóðastofnunum að fjárhæð 1,35 milljarðar koma þar til viðbótar. Tekjurnar hafa verið endur- metnar. Launa- tekjur Íslendinga erlendis á hverjum ársfjórðungi í ár eru nú þannig taldar rúmlega 5 milljörðum króna meiri en launatekjur erlendra aðila á Íslandi. Áður var þessi munur talinn 0,2 millj- arðar króna á hverjum ársfjórðungi en það hefur verið leiðrétt með bættri gagnasöfnun. Vikið er að þessu endurmati í neðanmálsgrein í síðustu Peninga- málum Seðlabanka Íslands (SÍ). Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er skýring þessa endur- mats sú að starfsmenn Seðlabankans fengu betri upplýsingar um launa- tekjur Íslendinga erlendis en þeir höfðu áður. Ríkisskattstjóri lét kanna tekjur aðila sem eru handreiknaðir en slíkir aðilar sem hafa tekjur er- lendis voru ekki inni í fyrri upplýs- ingum Seðlabankans. Áreiðanlegri upplýsingar Meginskýringin á þessum mun er því fyrst og fremst sú að upplýsing- arnar sem Seðlabankinn hefur frá Ríkisskattstjóra eru nú áreiðanlegri. Handreiknuð framtöl vísa til nær allra þeirra sem eru hér á skatt- grunnskrá og hafa aflað tekna erlend- is. Skattlagning þessa fólks fer yfir- leitt eftir tvísköttunarsamningum. Páll Kolbeins, sérfræðingur hjá Ríkisskattstjóra, segir að í saman- tektinni, sem gerð var fyrir Morgun- blaðið og sýnd er hér fyrir ofan, séu teknar saman tekjur íslenskra og er- lendra ríkisborgara, sem skattskyldir eru hér, erlendis. Skipting tekna milli íslenskra og erlendra ríkisborgara liggur ekki fyr- ir. „Þarna er um að ræða alla þá sem hafa haft tekjur erlendis og eru skatt- skyldir hér á Íslandi.“ Með í þessum tölum eru því Íslend- ingar sem hafa flutt til útlanda en eru enn skattskyldir á Íslandi. Starfsmenn ESB, NATO og SÞ Eins og taflan hér fyrir ofan sýnir voru tekjur einstaklinga hjá alþjóða- stofnunum rúmlega 1,3 milljarðar í fyrra. Páll segir að þarna sé m.a. um að ræða einstaklinga sem starfa fyrir Evrópusambandið, Sameinuðu þjóð- irnar og Atlantshafsbandalagið, NATO. Þessar tekjur eru skatt- frjálsar og er um að ræða bæði ís- lenska og erlenda ríkisborgara. Höfðu 16 milljarða í tekjur erlendis  SÍ endurmetur tekjur íslenskra og erlendra ríkisborgara  Alþjóðastofnanir greiða 1,35 milljarða í laun skattfrjálst Tekjur erlendis og greiðslur frá alþjóðastofnunum* Í krónum á verðlagi hvers árs Tekjuár Fjöldi með erlendar tekjur Greiðslur frá alþjóðastofnunumTekjur erlendis 2009 2010 2011 2012 2013 2.469 3.053 3.246 3.442 4.037 7.302.238.783 10.450.337.858 10.943.221.250 13.300.671.158 15.862.777.805 1.015.556.393 961.276.815 992.015.631 1.111.444.234 1.348.986.359 *Upplýsingar byggjast á skattframtali einstaklinga og miðast þær við stöðu framtala strax að loknum framtalsfresti í mars ár hvert, fyrir breytingar sem gerðar hafa verið vegna síðbúinna framtala og kærumeðferðar. Heimild: Ríkisskattstjóri Morgunblaðið/Golli Háar upphæðir Íslendingar skattskyldir hér afla mikilla tekna ytra. Páll Kolbeins „Við þurfum að gera þetta að þjóðar- átaki og dreifa kostnaði yfir margra ára tímabil. Aðalatriðið er að vel sé staðið að fram- kvæmdum, innan kostnaðaráætlun- ar og öflugt sam- starfsverkefni tryggir best að svo verði,“ segir Þorkell Sigur- laugsson, stjórn- armaður í sam- tökunum „Spítalinn okk- ar“, sem standa fyrir málþingi í Ráðhúsi Reykjavík- ur í dag um nýja Landspítalann. Jafnframt verður opið hús í Ráð- húsinu í dag og fram á laugardag, þar sem almenningi gefst færi á að kynna sér stöðu verkefnisins, þ.e. byggingaráform og endurbætur á Landspítalanum. Markmið samtakanna, sem stofn- uð voru sl. vor, er að framkvæmdir við spítalann hefjist hið fyrsta svo tryggja megi örugga heilbrigðis- þjónustu í landinu. Hafa samtökin m.a. bent á hvernig best sé að tryggja fjármögnun á stækkun spít- alans. „Við höfum rætt það að besta leið- in til fjármögnunar er að horfa til þess að þetta sé samstarfsverkefni ríkisins og aðila eins og lífeyrissjóða. Að sjálfsögðu verða lífeyrissjóðir að fá eðlilega ávöxtun en fyrir ríkið er mikilvægt að fá góða samstarfsaðila og nýta þá tímann til að lækka skuld- ir ríkisins eða selja eignir ef vilji er fyrir því,“ segir Þorkell, sem telur núverandi húsnæði spítalans ekki uppfylla staðla nútíma heilbrigðis- þjónustu. Því sé brýnt að Alþingi ákveði hvaða leið ríkið telji best að fara svo ljúka megi endanlegri hönn- un og hefja svo framkvæmdir þar sem forhönnun verkefnsins sé lokið. Opna húsið í Ráðhúsinu hefst með málþinginu á sama stað í dag, sem er frá kl. 14-16. bjb@mbl.is Þörf á þjóðarátaki um Landspítalann  Málþing í dag og opið hús í Ráðhúsinu fram á laugardag Spítalinn Svona gæti hluti af nýja Landspítalanum litið út. Þorkell Sigurlaugsson Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Fjársýslu ríkisins hefur enn ekki bor- ist eintak frá Ríkisútvarpinu ohf. af ársreikningi 2013 með áritun stjórn- ar. Þetta segir Gunnar H. Hall, fjársýslustjóri Fjársýslu ríkisins. Gunnar hefur ýmislegt að at- huga við ummæli Ingva Hrafns Óskarssonar for- manns stjórnar RÚV, sem birtust í frétt í Morgun- blaðinu sl. laugardag. Þar sagði Ingvi Hrafn m.a. að Fjársýsla ríkisins hefði óskað eftir að fá „annan óformlegan ársreikning sem miðaðist við alman- aksárið“. Hann hefði verið undirrit- aður af honum sjálfum. Hinn 13. janúar sl. sendi Fjársýsl- an bréf til RÚV þar sem þess er kraf- ist að fyrirtækið uppfylli ákvæði fjár- reiðulaga og skili af sér ársreikningi sem taki mið af almanaksárinu. „Ekki var óskað eftir óformlegum reikningi heldur að skilað yrði ársreikningi í samræmi við lög,“ segir Gunnar og bætir við að Fjársýslan geri ekki at- hugasemdir við það ef ríkisaðilar kjósi að gera önnur uppgjör sem taki mið af öðrum tímabilum en almanaks- árinu, telji þeir það þjóna betur eigin þörfum. En fjárreiðulög geri kröfu til að almanaksárið sé ævinlega lagt til grundvallar. Ríkisfyrirtæki á borð við Ríkisút- varpið hafi skilafrest á ársreikningi sínum til Fjársýslunnar 31. mars ár hvert. Hún hefur heimild til að fram- lengja frestinn um allt að 30 daga. Í stuttu máli þá sendi fjársýslu- stjóri tölvupóst til Bjarna Guðmunds- sonar, þáverandi útvarpsstjóra, ítrek- un um skil um miðjan maí. Þar segir hann að ef reikningurinn berist ekki tveimur dögum síðar þurfi að skýra frá því í ríkisreikningi að fyrirtækið hefi ekki skilað ársreikningi. Tveimur dögum síðar, 16. maí, sendi Ríkisútvarpið í tölvupósti raf- rænt eintak af óárituðum ársreikn- ingi, merktum drög, en þar kom fram að allir stjórnarmenn Ríkisútvarpsins hefðu samþykkt reikninginn rafrænt. Jafnframt kom fram að á næsta stjórnarfundi 28. maí mundu stjórn- armenn undirrita ársreikninginn. Óendurskoðaður ársreikningur Síðar sama dag barst bréf frá Rík- isútvarpinu og með því fylgdi árs- reikningur 2013 með „Könnunarárit- un óháðra endurskoðenda“. Þetta eintak var ekki undirritað af stjórn og framkvæmdastjóra Ríkisútvarpsins ohf. en slíkt eintak hefur enn ekki borist frá fyrirtækinu. Við þetta má bæta að á árinu 2013 afhenti Ríkisút- varpið óendurskoðaðan ársreikning fyrir árið 2012 seint í maímánuði, þ.e. löngu eftir útrunninn skilafrest. Þess var getið sérstaklega í athugasemd- um í Ríkisreikningi 2012. „Ég tek það fram að það er ekki Fjársýslunnar að standa Ríkisendur- skoðun skil á ársreikningi Ríkisút- varpsins ohf. eða annarra ríkisaðila,“ segir Gunnar H. Hall. Ástæðan fyrir því að Ríkisendurskoðun fékk sendan óundirritaðan ársreikning (merktan drög) frá Fjársýslunni er að hún hafði samband í september sl. og óskaði eftir því. Um var að ræða rafrænt ein- tak af reikningnum og þar fór ekki á milli mála að um óáritað eintak var að ræða, en í tölvupóstinum kom fram að allir stjórnarmenn hefðu samþykkt reikninginn rafrænt. „Það er því misskilningur hjá stjórnarformanninum telji hann að hér hafi verið um mistök að ræða,“ segir Gunnar H. Hall og bendir á að vinnubrögð Ríkisútvarpsins séu ekki til fyrirmyndar. „En batnandi mönn- um er best að lifa.“ Ekki áritaður ársreikningur  Misskilningur stjórnarmanns RÚV um „mistök“, segir fjársýslustjóri Gunnar H. Hall Lítil verslun með stórt hjarta! Mikið úrval af fatnaði og gjafavöru www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com Opið: Mán-fim: 12-18 - fös-lau: 12-16 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.