Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir í umbúðum
• Pappír
• Pokar
• Bönd
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Vikingo, ný heimildamynd Þorfinns
Guðnasonar, verður frumsýnd í dag
og líkt og í fyrri myndum Þorfinns er
umfjöllunarefni þessarar forvitnilegt.
Í myndinni fylgir Þorfinnur sveit-
unga sínum úr Biskupstungum, Jóni
Inga Gíslasyni, í Dóminíska lýðveldið
þar sem hann hef-
ur ræktað barda-
gahana fyrir
hanaöt til fjölda
ára. Hanakyn
Jóns Inga er kall-
að Vikingo, líkt og
hann sjálfur, eða
Víkingur, og þyk-
ir eitt það besta í
landinu. Í mynd-
inni koma einnig
við sögu skó-
burstari að nafni Gabriel, Rodolfo
sem aðstoðar Jón Inga við ræktun-
ina, Stóri-José sem er vinur Jóns og
keppinautur í hanaati og vúdú-nornin
Alise sem spáir fyrir um úrslit bar-
daga. Myndinni er í tilkynningu lýst
sem hörkukeyrslu inn í heim hana-
ats, vúdú og vináttu þar sem sögur
fléttast saman og örlög ráðast á
nokkrum augnablikum í bardaga-
hringnum.
Framsóknarflokkurinn
alltumlykjandi
Tökur á myndinni hófust í febrúar
árið 2011 og fóru fram á Íslandi og í
Dóminíska lýðveldinu. Tökudagar
voru í heildina um 50, sem Þorfinnur
segir í lengra lagi og lauk tökum nú í
sumar. Það tók því um þrjú ár í heild-
ina að gera myndina. „Ég þurfti að
bíða líka töluvert eftir Jóni. Hann var
að stússast í pólitík fyrir Framsókn-
arflokkinn og hefur verið kallaður
„kraftaverkamaður Framsóknar-
flokksins“ af Eiríki Jónssyni. Ég set
svo sem enga merkingu í það en hann
er búinn að vera ansi duglegur við að
hjálpa flokknum,“ segir Þorfinnur
um tökuferlið.
– Í myndinni er þó ekki verið að
fjalla um framsóknarmanninn Jón …
„Nei, ekki beinlínis en það kemur
nú aðeins við sögu. Hins vegar eru
flestallir vinir hans þarna úti fram-
sóknarmenn. Mér skilst að þeir séu
allir í flokknum sem er svona lands-
byggðarflokkur á miðjunni þarna
eins og Framsóknarflokkurinn,“ seg-
ir Þorfinnur. Framsóknarflokkurinn
sé því alltumlykjandi hjá Jóni Inga.
En hver er Jón Ingi? „Þetta er ís-
lenskur bóndasonur frá Kjarnholtum
í Biskupstungum. Hann er hagfræði-
menntaður frá Kanada og svona at-
hafnamaður, eigum við ekki að nota
það orð? Sjálfstætt starfandi at-
hafnamaður. Hann rak Ara í Ögri,
seldi hann fyrir nokkru og hefur ver-
ið að stússast í ýmsu,“ svarar Þor-
finnur. Jón Ingi hafi að loknu námi í
Kanada farið í námsferð til Dóm-
iníska lýðveldisins og hitt þar fjöl-
skyldu sem bauð honum á hanaat.
„Hann féll kylliflatur fyrir þessari
menningu og er í dag einn þekktasti
hanaatsmaður landsins,“ segir Þor-
finnur. Hanarnir sem Jón Ingi rækt-
ar séu harðir í horn að taka.
Draumar, vonir og væntingar
Skóburstarinn sem getið var í upp-
hafi er 12 ára drengur að nafni Gabr-
iel og er hann ein af aðalpersónum
myndarinnar. Hryggjarstykkið í
myndinni er saga hans, ungs drengs
sem dreymir um að eignast hana af
hinu fræga Vikingo-kyni svo hann
geti orðið ríkur og frægur eins og
Jón, að sögn Þorfinns. Þorfinnur seg-
ist hafa kynnst Gabriel í gegnum Jón
og þá hafi kviknað á perunni. „Þarna
var komin saga, þarna var komið
mótvægið og draumar, vonir og
væntingar sem er svo gott að hafa í
kvikmyndum og öllum sögum. Þetta
er hefðbundin saga, eitt leiðir af öðru,
línuleg frásögn og ævintýri og þá sér-
staklega fyrir litla skóburstarann.
Vinur minn einn benti mér á að sagan
væri svolítið eins og Karate Kid,“
segir Þorfinnur kíminn. „Svo má ekki
gleyma vúdú-norninni sem kemur
með fyrirboða og ný sjónarhorn fyrir
Jón Inga,“ bætir hann við.
Menningin í kringum hanaat
„Þetta er náttúrlega umdeilt en ég
vona að fólk fari á myndina og myndi
sér skoðun á þessu,“ segir Þorfinnur
um hina umdeildu iðju hanaat. Hann
ítrekar að myndin fjalli ekki um
hanaat sem slíkt heldur menninguna
í kringum það og Jón og Gabríel.
– Þú hefur líka bent á að þessi dýr
lifa mun betra lífi fram að lokastund-
inni en t.d. hænur sem eru lokaðar
inni í þröngum búrum alla ævi.
„Já, og boðskapur Jóns Inga er sá
að einhvern tíma verða öll dýr að
deyja og þá er spurningin hvers kon-
ar lífi dýrið hefur lifað á leið sinni til
dauðans,“ segir Þorfinnur.
Þorfinnur greindist í sumar með
krabbamein í spjaldhrygg og lauk við
klippingu myndarinnar á meðan
hann var í meðferð á spítala. Hann
segist hafa orðið mjög veikur eftir
meðferðina, hún hafi kýlt hann alveg
niður. „En þetta tókst alla vega,“
segir hann léttur í bragði um mynd-
ina.
Vikingo verður sýnd í Sambíó-
unum í Kringlunni og víða um land.
Almennar sýningar hefjast á morgun
þar sem frumsýningin í kvöld er
boðssýning.
„Svolítið eins og Karate Kid“
Hanaatskóngurinn Jón Ingi er umfjöllunarefni heimildamyndar Þorfinns Guðnasonar, Vikingo
Sigurdans Jón Ingi stígur sporadansinn eftir að hafa unnið hanaat.
At Gabriel skóburstari, fyrir miðri mynd, í sunnudagsati sem kallað er Gallo
de patio. Sporarnir eru klæddir verjum svo enginn hani slasist.
Þorfinnur
Guðnason