Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
en það var Jón Jóakimsson (1816-
1893) langafi hans og bóndi á Þverá
sem ákvað ásamt sóknarbændum að
byggja kirkjuna úr móbergi. Stein-
smiður var fenginn til þess að annast
steinsmíðina, en það verk hafði með
höndum Jakob Frímann Brynjólfs-
son sem hafði lært steinsmíðaiðn í
Reykjavík og aðstoðað við byggingu
Þingeyrakirkju sem hófst 1864.
Í gegnum árin hefur Þverárkirkja
fengið sitt viðhald og árið 1957 var
gert við múrskemmdir og hún máluð
innan og utan. Þá hefur kirkjugarð-
urinn verið stækkaður til norðurs og
á árunum 2000-2003 voru austur- og
suðurhliðar garðsins endurhlaðnar.
Árið 2011 var ráðist í mjög viðamikl-
ar endurbætur á þakinu og lagfærð-
ar þær fúaskemmdir sem þakleki
hafði valdið á fyrstu áratugum kirkj-
unnar. Allar þaksperrur voru endur-
nýjaðar og öll klæðning bæði á þaki
og turni. Á árunum 2012-2013 var
farið í að endurgera múrhúðina inn-
an á veggjunum, en áður hafði múr-
húð víða fallið af vegna raka-
skemmda. Þá þurfti að laga
kirkjubekkina og endurnýja þær
hliðar sem eru uppi við veggina og
eru þeir eins og nýir bekkir í dag eft-
ir að hafa verið pússaðir og litaðir
upp á nýtt. Gólfið hefur einnig verið
pússað og lakkað.
„Það er ennþá eftir að mála pre-
dikunarstólinn,“ segir Áskell og
brosir sem býst við að málningar-
vinnan klárist næsta sumar. Það er
vandasamt eins og annað, en stóllinn
er reglulegur sexhyrningur og á sex-
strendum fæti. Þverárkirkja hefur
haldist óbreytt frá fyrstu stund og
allar endurbætur eru gerðar í þeim
stíl sem kirkjan var upphaflega. Með
þessum endurbótum sem nú er að
ljúka er ljóst að kirkjan á sér langa
framtíð og er til sóma þeim sem um
hana hafa hugsað.
Vinafélag hefur lagt lið
Starfrækt er Vinafélag Þverár-
kirkju. Markmið félagsins er að
tryggja sem best varðveislu kirkj-
unnar og hefur það með margvís-
legum hætti lagt Áskeli bónda lið.
Félagið lítur svo á að Þverárkirkja
og kirkjugarðurinn ásamt gamla
torfbænum á Þverá, útihúsum og
umhverfi sé það sem beri að varð-
veita með öllum tiltækum ráðum,
enda mjög merkilegar búsetu- og
búskaparminjar.
Kirkjubóndinn kann til verka
Allsherjar endurbótum á Þverárkirkju í Laxárdal að ljúka Kirkjan var byggð úr
höggnu móbergi sem tekið var úr Hólaklöppum Langafi bóndans byggði kirkjuna
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Kirkjubóndinn Áskell Jónasson bóndi á Þverá í Laxárdal. Þverárkirkja er bændakirkja og því hans eign. Áskell hefur átt mörg handtökin við kirkjuna.
Þverárkirkja Miklar endurbætur hafa verið gerðar á kirkjunni á undan-
förnum árum. Eftir er að laga predikunarstólinn sjálfan.
VIÐTAL
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Ég tók niður stjörnurnar í hvelfing-
unni sem eru 240 talsins. Ég pússaði
hverja einustu þeirra og málaði síð-
an allar tvisvar sinnum. Það var ekk-
ert mál að ná þeim því hver stjarna
er fest með koparnagla sem auðvelt
er að losa, en það tók tíma.“
Þetta segir Áskell Jónasson, bóndi
á Þverá í Laxárdal S-Þingeyjar-
sýslu, en í sumar var unnið við að
mála kirkjuna á staðnum að innan og
má segja að þar með sé nánast að
ljúka allsherjar endurbótum á Þver-
árkirkju sem staðið hafa í nokkur ár.
Það voru Snorri Guðvarðsson
listamaður og málari og kona hans
Kristjana Agnarsdóttir sem höfðu
veg og vanda af málningarvinnunni,
en þau hafa víða málað kirkjur að
innan. Áskell var með þeim og rúll-
aði m.a. veggina með hvítri málningu
og pússaði kirkjubekkina, auk þess
sem hann sá um stjörnurnar.
„Kirkjan er á minni ábyrgð,“ segir
Áskell, en Þverárkirkja er bænda-
kirkja og því hans eign þar sem hann
er eigandi jarðarinnar. Áskell hefur
lagt mikinn metnað í að halda kirkj-
unni við og hefur fengið til þess
styrki frá Húsafriðunarnefnd og úr
Jöfnunarsjóði sókna sem hafa verið
góð hjálp. Þetta hefur verið mikil
vinna og er vandað til verks, enda
kann Áskell margt fyrir sér.
Steinkirkjur voru fátíðar
Þverárkirkja er merkileg fyrir
það að hún er steinhlaðið hús, en
steinkirkjur voru mjög fátíðar. Hún
er byggð úr höggnu móbergi og var
grjótið í hana tekið úr svokölluðum
Hólaklöppum í hlíðinni handan Lax-
ár og flutt yfir ána er hún var ísi
lögð. Hún var vígð árið 1878 og hafði
þá byggingartíminn tekið rúmlega
tvö ár.
Áskell bóndi á Þverá er sonarson-
arsonur kirkjubóndans sem þá var,
30
ÁRA
Merino ull
Tveggjalaga kerfi (baselayer)
sem flytur raka og svita frá
líkamanum og heldur honum
alltaf þurrum og hlýjum.
Yndisleg merino
ullarnærföt handa
þér og þínum
um jólin
Útsölustaðir: Hagkaup • Grétar Þórarinsson – Vestmannaeyjum • Fjarðarkaup – Hafnarfirði
Hafnarbúðin – Ísafirði • JMJ – Akureyri • Jói Útherji – Reykjavík • Afreksvörur - Glæsibæ • Kaupfélag Skagfirðinga
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga • Nesbakki – Neskaupsstað • Icewear - Akureyri • Skóbúð Húsavíkur • Siglósport - Siglufirði
Verslunin Blossi – Grundarfirði • Bjarg - Akranesi • Efnalaug Dóru – Hornafirði • Heimahornið – Stykkishólmi
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is