Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 69
69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Meginefni bókarinnar ertíu viðtöl við hrein-dýraskyttur, sjö karlaog þrjár konur, en í
upphafskafla er stiklað á stóru í
sögu íslenska hreindýrastofnsins
frá því fyrstu dýrin voru flutt
hingað frá Finnmörku á seinni
hluta 18. aldar. Dýrin eru nú ein-
ungis á austurhluta landsins, en
voru áður
einnig í
Vest-
manna-
eyjum, á
Reykjanesi,
í Eyjafirði
og í Mý-
vatnssveit.
Á ýmsu
hefur geng-
ið með við-
gang stofns-
ins og veiðar, en undanfarna
áratugi hafa dýrin komist vel af.
Það eru gríðarleg umskipti frá því
um 1940 þegar stofninn var næst-
um útdauður. Frá árinu 2000 hafa
sportveiðimenn veitt þann kvóta
sem úthlutað er og hafa færri
komist að en vildu. Skylda er að
hafa löggiltan leiðsögumann með í
veiðiferðum og árið 2012 var stigið
farsælt skref í sögu hrein-
dýraveiða: skotveiðimenn þurfa að
standast skotpróf. Umhverf-
isstofnun fer með málefni hrein-
dýrastofnsins í umboði umhverf-
isráðuneytisins, en fram að
stofnun þess voru hreindýr á
könnu menntamálaráðuneytisins;
lengi í traustum höndum Runólfs
Þórarinssonar stjórnarráðsfull-
trúa.
Viðtölin eru keimlík. Fjallað er
um veiðiferðir, tæknilegar upplýs-
ingar eru um vopnin og lýst elt-
ingaleik við dýrin, upplifuninni,
bæði af veiðinni og dvölinni á fjöll-
um og nýtingu afurðanna. Það fer
því ekki hjá því að endurtekninga
gæti þegar talað er við tíu manns
um hliðstætt efni; viðtalið við
Guttorm Sigbjarnarson rís þó
naumast undir nafni, það er ein-
ungis ein síða. En Guðni skrifar
þekkilegan stíl sem er áreynslu-
laus fyrir augað.
Margar myndir eru í bókinni,
flestar af veiðimanni með föllnu
dýri. Litmyndir eru prentaðar í
einni örk, en svarthvítu myndirnar
eru sumar óskýrar.
Á bókarspjöldum og saurblöðum
eru kort, annars vegar af veiði-
svæðum hreindýra 2014, hins veg-
ar af hreindýraslóðum á sunn-
anverðum veiðisvæðum eitt og tvö
og eru til glöggvunar, enda eru
mörg örnefni nefnd í hverju við-
tali.
Af hálfu forlagsins hefði mátt
vanda betur til umbrots. Hvert
viðtal hefst með snoturri titilsíðu
hægra megin í opnu þar sem er
mynd af viðmælanda og stutt
kynning. Síðan á eftir er auð, en á
næstu hægri síðu kemur textinn
vafningalaust efst á síðu undir
síðuhaus; sá sem hér skrifar hélt
hvað eftir annað að eitthvað hefði
týnst af upphafinu.
Einnig var viðtal við Aðalstein
föður hans upplýsandi. Hvor
tveggju sýna hvaða búsílag hrein-
dýraveiðarnar voru fyrr á tíð –
hvort sem veitt var lögum sam-
kvæmt eða án leyfis. Vaðbrekka
er annars býsna miðlæg í þessum
veiðisögum. Pálmi Gestsson kem-
ur líka glaðbeittur til dyra og lýsir
veiðiáhuga sínum af einlægni.
En fyrir hverja er svona bók?
Fyrst og fremst veiðimenn. Rýnir
getur ekki talið sig í hópi þeirra,
en hafði þó ánægju af lestrinum;
tæknilegar upplýsingar fóru þar
fyrir ofan garð og neðan að öðru
leyti en því að víst þurfa menn
þjálfun og gott verksvit til að hitta
dýr á 200-300 m færi að ekki sé
nú minnst á helmingi lengra færi
og vikið er að í bókinni. Konur eru
þrír viðmælenda, en þeim fer
hratt fjölgandi meðal veiðimanna;
þær fá almennt hærri einkunn en
karlarnir hjá Sigurði leiðsögu-
manni. Veiðimenn fara um hálend-
ið á stórum bílum og vekur það
enn áleitna spurningu: Hvers
vegna í ósköpunum er ekki til
gagnagrunnur um vegi á hálend-
inu?
Laxveiðimenn missa gjarnan
þann stóra. Hér skjóta menn hins
vegar krúnumikla tarfa og stoppa
upp hausinn; hann er krúnudjásn
hreindýraskyttunnar, bókstaflega.
Í lokin skal stungið upp á að Vest-
firðingar komi sér upp hrein-
dýrastofni. Það er þjóðþrifaverk.
Skotveiði Sigurður Aðalsteinsson á Vaðbrekku og höfundur, Guðni Einarsson, við stóran tarf. „Viðtölin eru mis-
jöfn, en langmestur veigur er í kaflanum þar sem Sigurður Aðalsteinsson … hefur orðið,“ skrifar rýnir.
Skyttur
á heiðum uppi
Viðtalsbók
Hreindýraskyttur – Líflegar og
fræðandi frásagnir af hrein-
dýraveiðum bbbnn
Eftir Guðna Einarsson.
Bókaútgáfan Hólar, 2014. 160 bls.
SÖLVI SVEINSSON
BÆKUR
Út er komin bók
með úrvali þýð-
inga Hallbergs
Hallmundssonar
á ljóðum ís-
lenskra skálda á
ensku. Nefnist
bókin A potpurri
of Icelandic Po-
etry Through
Eleven Centuries. Útgefandi er for-
lagið Brú.
Þegar Hallberg lést hafði hann
ekki lokið frágangi á handritinu, og
sérstaklega ekki textum um skáldin
sem hann þýddi eftir. Við frágang
bókarinnar var reynt að nota eins
og unnt var eldri skrif hans um
skáldin.
Ljóðin spanna allar aldir ritlistar
á íslensku, allt frá Agli Skalla-
grímssyni til Jónasar Þorbjarn-
arsonar. Meðal annarra skálda sem
eiga hér verk má nefna Jónas Hall-
grímsson, Sigurð Pálsson, Stein-
unni Sigurðardóttur og Einar
Benediktsson.
Úrval ljóðaþýðinga
Hallbergs á bók
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.
Drangey 80 ára
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Kíktu inn á drangey.is
Kr. 6.500, 8 kort og seðlar
Kr. 8.500,
10 kort,
seðlar
smápeningar
Afmælisútgáfa
af leðurveskjum
Kr. 2.800, 6 kort
Kr. 5.900,
6 kort og seðlar