Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 22

Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 Movie Star hvíldarstóll Verð 439.000,- Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Falleg jólagjöf frá Ernu Handsmíðaðiríslenskir silfurmunir í 90 ár virka daga 10-18, laugardaga 11-14 Póstsendum Serviettuhringurinn 2014 Verð: 12.500 Jólaskeiðin 2014 (hönnun Sóley Þórisdóttir) Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 0Verð: 19.50 Skeiðin er smíðuð á Íslandi úr ósviknu silfri. ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Á þessum árstíma grúfir myrkrið sig yfir bæinn kvölds og morgna. Ótrúlegt er að upplifa í bítið dag eft- ir dag hve fáir nota endurskins- merki.    Endurskinsmerki virtust í tísku fyrir nokkrum árum, sem var vel, en eru nú algjör undantekning, sama hvar ekið er um bæinn. Dökk- klæddur fjöldinn sem fer um á tveimur jafnfljótum er sannarlega illa upplýstur, bæði börn og þeir eldri. Hér með er hvatt til þess að ráðin verði bót á þessu.    Var ég búinn að nefna stefnu- ljósin? Ekki í dag, og rétt að benda ökumönnum á að stöngin sú arna er ekki upp á punt í bílnum. Ætli við- komandi að beygja á hann að gefa stefnuljós og helst með nokkrum fyrirvara, þá verður umferðarflæðið miklu betra.    Þetta litla en þó stóra atriði – sem hlýtur að vera hugsunarleysi fólks undir stýri – er mikill löstur á annars ágætri umferðarmenningu í bænum. Hrikalega pirrandi, svo það sé nú bara sagt beint út.    Út er komin bókin Áfram ÍBA, þar sem Stefán Arngrímsson segir sögu knattspyrnuliðs Íþrótta- bandalags Akureyrar frá 1944 til 1974, þegar KA og Þór slitu sam- starfinu og fóru að leika undir eigin merkjum. Margra grasa kennir í bókinni. Nánar um hana síðar.    Ung kona á Akureyri, Inga Vala Birgisdóttir, rekur verslunina Háa- loftið þar sem hún höndlar með alls kyns gamla muni. Verslunin er við Hafnarstræti; rétt hjá ísbúðinni Brynju, eins og Inga segir oft til að vísa fólki til vegar. Allir vita líklega hvar ísbúðin er.    „Ég hef alltaf haft mjög gaman af gömlum hlutum Þeir hafa tilheyrt mér alla tíð,“ segir Inga Vala þegar Morgunlaðið rekur inn nefið og spurt er um hvers vegna hún sé á þessari hillu í lífinu.    Þarna ægir öllu saman; hús- gögnum, bókum, hljómplötum og ýmiskonar skrautmunum. Inga Vala rak um tíma svipaða verslun með annarri konu en keypti hana út. Stutt er síðan Frúnni í Hamborg, áþekkri verslun, var lokað á Akur- eyri og Fríðu frænku í Reykjavík.    Eftir að Facebook kom til sög- unnar segir Inga Vala söluna hafa aukist. „Ég set þangað inn myndir af flestu sem kemur hingað í sölu og það er orðið töluvert um það að fólk panti vörur og ég reyni að bjóða upp á fría sendingu, að minnsta kosti til Reykjavíkur og austur í Egilsstaði. Ég er með marga kúnna úti á landi, fólk sem spyr um eitthvað sérstakt og ég læt það vita ef ég fæ í sölu það sem leitað var að. Safnarar koma hingað, t.d. vegna póstkorta, margir safna Tinnabókunum og svo er ég oft með styttur eftir Guðmund frá Miðdal.“    Vörurnar á Háaloftinu eru nær allar frá Norðurlandi. Inga Vala fær ýmislegt úr dánarbúum og einnig þegar fólk sem komið er á efri ár minnkar við sig húsnæði og hefur ekki lengur pláss fyrir allt sem það á. Margir þeirra muna enda svo á heimilum ungs fólks sem er að stækka við sig!    Árshátíð Menntaskólans á Akur- eyri verður annað kvöld í íþrótta- höllinni. Þetta er jafnan fjölmenn- asta vímuefnalausa samkoma ársins og skemmtikraftar verða ekki af verri endanum að þessu sinni. Hljómsveitirnar Valdimar og Stuð- menn leika fyrir dansi.    Hið fornfræga skemmtihús, Sjallinn, hefur verið selt og verður lokað um áramótin. Páll Óskar kom þar við á dögunum og kvaddi og nú er komið að Stuðmönnum. Þeir ætla að slá þar upp kveðjuballi á laugar- dagskvöldið.    Valdimar Guðmundsson verður með tónleika á Græna hattinum ann- að kvöld, væntanlega eftir að hafa leikið á MA-hátíðinni, og á laugar- dagskvöldð stíga Stefán Jakobsson og félagar hans í Dimmu á svið á hattinum.    Elvý G. Hreinsdóttir söngkona og Eyþór Ingi Jónsson organisti eru að ljúka tónleikaferðinni Kvæðin um sólina um Norðausturland. Síðustu tónleikarnir verða í Menningarhús- inu Hofi í kvöld kl. 20.30.    Fyrir ári ferðuðust þau um sama svæði með Kvæðin um fuglana. Á efnisskráni voru þá lög sem fjölluðu á einn eða annan hátt um fugla og um leið sýndi parið ljósmyndir sem þau tóku sjálf af fuglum og um- hverfi þeirra. Sami háttur er á nú; ljósmyndasýningin tengist efni lag- anna. Á efnisskránni eru bæði inn- lend og erlend lög. Birkir Blær Óð- insson, 14 ára gítarleikari, verður gestur á tónleikunum.    Fjórir erlendir listamenn opna myndlistarsýningu í húsi Hákarla– Jörundar í Hrísey í dag. Lista- mennirnir eru Anna Rose og Jill Christine Miller frá Bandaríkj- unum, Junya Kataoka frá Japan og Rie Iwatake sem fæddist í Suður– Afríku en ólst upp í Japan.    Aðventustund verður í Hrís- eyjarkirkju á sunnudaginn, fyrsta sunnudag í aðventu, kl. 20. Daginn eftir verður kveikt á jólatrénu kl. 17 og þá býður Júllabúð upp á heitt súkkulaði og smákökur.    Aðventutónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands og hljómsveitarinnar Árstíða verða á laugardaginn í Hofi og hefjast kl. 18.    Samstarf verður um jólaaðstoð, eins og undanfarin ár, milli Hjálp- arstarfs kirkjunnar, Hjálpræðis- hersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Sótt er um með því að hringja í síma 570-4090 milli kl. 10 og 12 alla virka daga frá og með deginum í dag, til 5. desember. Bókað er viðtal þar sem fyllt er út umsókn og koma þarf með stað- greiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslun- um til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli. Gangandi vegfarendur nær ósýnilegir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Háaloftið Inga Vala Birgisdóttir í verslun sinni, Háaloftinu, í kjallara gamals húss í Innbænum á Akureyri. Skrautmunir Mikið úrval er af gömlum plöttum og styttum. Skapti Hallgrímsson Tár Eftirprentun sem þessi hefur hangið á mörgu íslensku heimili.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.