Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur
verið nánast í frjálsu falli undanfarið
ár. Þannig kostaði tunnan af hráolíu í
nóvember fyrir ári 105 dollara, en
kostar í dag tæplega 77 dollara. Í
kjölfarið hafa fylgt miklar lækkanir á
heimsmarkaðsverði á bensíni og dísil-
olíu, svo nemur um 20%. En hafa
þessar lækkanir skilað sér í lægri
álagningu olíufélaganna á Íslandi á
bensín- og dísillítrann? Sitt sýnist
hverjum í þeim efnum.
Í október fór álagning og flutn-
ingur á hvern bensínlítra í 41,25 krón-
ur og 43,30 krónur af dísilolíulítr-
anum, samkvæmt útreikningum FÍB
(Félags íslenskra bifreiðaeigenda).
Fram kemur á heimasíðu FÍB að
þetta hafi gerst þrátt fyrir nokkrar
verðlækkanir á bensíni og dísilolíu
síðustu vikurnar í kjölfar yfir 20%
lækkunar hráolíuverðs á heimsmark-
aði.
Þar kemur einnig fram að meðal-
kostnaður neytenda vegna álagn-
ingar, flutnings og dreifingar á bif-
reiðaeldsneyti var umtalsvert hærri í
október samanborið við meðaltal
þessa kostnaðar yfir árið. Meðaltalan
yfir fyrstu 10 mánuðina 2014, upp-
reiknuð til verðlags í október, á bens-
ínlítra sé 38,50 krónur og 39,04 á
hvern dísilolíulítra. Í frétt FÍB er til-
greint að meðalálagning olíufélag-
anna á hvern eldsneytislítra sé líklega
heldur lægri en álagningarvísitala
FÍB en gefi engu að síður raunhæfan
samanburð á milli tímabila
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hver króna sem olíufélög-
in hækkuðu álagningu sína, þýddi 350
milljónir króna úr vasa neytenda á
ári. „Við fylgjumst alltaf með þróun-
inni frá degi til dags og mánuði til
mánaðar. Við gerum svona vísitölur
álagningar og kostnaðar, sem byggist
á heimsmarkaðsverði á bensíni og
dísilolíu og þróun dollars, sem er
gjaldmiðillinn sem eldsneytið er
keypt í, til þess að neytendur geti
fylgst með verðþróuninni,“ sagði
Runólfur.
Hann segir að þegar búið sé að
draga opinberu gjöldin frá, þ.e. ann-
ars vegar krónutöluskattarnir og hins
vegar virðisaukinn, fáist viðmiðun um
álagninguna í krónum á lítra, miðað
við vísitölu.
Ákveðið stökk hrunárið
„Miðað við þessar forsendur er
meðalálagning það sem af er þessu
ári um 39 krónur. Síðustu þrjú árin
hefur þetta verið svona á bilinu 39 til
40 krónur á lítrann. Árið 2011 var
álagningin undir 36 krónum. Það
varð auðvitað ákveðið stökk hrun-
árið, þegar krónan féll um tugi pró-
senta. Fram undir það voru þetta
svona á milli 30 og 33 krónur,“ segir
Runólfur. Hann segir að mæling FÍB
miðist við útsöluverð í sjálfs-
afgreiðslu, en ekki séu sérstök tilboð
reiknuð inn í vísitöluna hjá FÍB.
„Álagning síðasta mánaðar, þ.e. í
október, var í kringum fjórum krón-
um yfir meðalálagningu ársins. Það
sem af er nóvember er álagning mán-
aðarins ríflega þremur krónum yfir
meðalálagningu ársins.“
Runólfur segir að forsvarsmenn ol-
íufélaganna hafi kvartað yfir því að
það væri ómakleg gagnrýni að halda
því fram að olíufélögin væru alltaf
fljótari að hækka eldsneytisverð ef
heimsmarkaðsverð hækkaði, en að
lækka þegar heimsmarkaðsverðið
lækkaði. „Nýverið var unnin meist-
araritgerð í hagfræði af íslenskum
hagfræðinema við hollenskan há-
skóla, þar sem niðurstaða ritgerðar-
innar var sú að olíufélögin voru fljót-
ari að hækka verð en lækka.
Auðvitað er hvatinn klárlega til stað-
ar. Við erum að sjá það að hver króna
þar sem félögin halda álagningunni
uppi gefur 350 milljónir króna upp úr
vasa neytenda á einu ári. Það er því
eftir töluverðu að slægjast. En á móti
kemur, af því þetta er svo stór hluti
af neyslu almennings, þá er æskilegt
að það sé aðhald á markaðnum, sem
er því miður ekki sem skyldi.“
Þegjandi samkomulag
Runólfur bendir á að það sé svona
30 aura verðmunur á milli dýrasta og
ódýrasta útsöluverðs. „Það er þetta
þegjandi samkomulag sem verður
um verðlagninguna, vegna þess að
þetta er ekki raunverulegur sam-
keppnismarkaður. Á meiri sam-
keppnismarkaði væru menn kannski
meira tilbúnir til að taka áhættu;
kaupa inn á hagstæðum tímum og
gera langtímasamninga og svo fram-
vegis,“ segir Runólfur.
Hér í Morgunblaðinu í fyrradag,
var greint frá uppgjöri N1 fyrir
þriðja ársfjórðung þessa árs, þar sem
fram kom að hagnaður félagsins á
þriðja ársfjórðungi nam 932 millj-
ónum króna og hafði aukist um 35%
miðað við sama ársfjórðung í fyrra.
Eggert Benedikt Guðmundsson,
forstjóri N1, var spurður hver álagn-
ingin væri hjá N1 á bensín- og dísil-
lítrann: „Við gefum aldrei upp hver
álagningin er,“ sagði Eggert.
Eggert var spurður, í ljósi mikillar
lækkunar á heimsmarkaðsverði und-
anfarin misseri, hvort lækkanir á
eldsneytisverði hér heima skiluðu sér
ekki bæði seint og illa.
„Þetta er ekki rétt. Þetta er mýta
sem hefur verið afskaplega lífseig.
Ég held að staðreyndin sé sú að það
eru fáar vörur á landinu sem fylgja
heimsmarkaðsverði og gengi jafnvel
og eldsneytisverð. Loks má ekki
gleyma gengi dollars, því við erum að
kaupa eldsneytið í dollar og selja í
krónum. Þegar allt þetta er tekið til
má segja að við séum að breyta býsna
ört verðinu, þótt við séum ekki að
breyta á hverjum degi.“
Það er alltaf viss fylgni á milli hrá-
olíuverðs og verðs á bensíni og dísil-
olíu, ekki satt?
„Það er ákveðin fylgni þarna á
milli, það er rétt, en það þýðir ekki að
horfa bara á hráolíuverðið. Auk þess
verður að líta til þess að helmingur-
inn af verðinu á útseldu eldsneyti
olíufélaganna er opinber gjöld. Um
þau höfum við ekkert að segja,“ sagði
Eggert Benedikt Guðmundsson.
Hver króna gefur 350 milljónir
FÍB segir að álagning olíufélaganna á eldsneyti í október hafi verið um fjórum krónum yfir meðal-
álagningu ársins Um 1,4 milljörðum króna meira fer úr vösum neytenda á ársgrundvelli
Verðþróun á bensíni 2014
K
ró
nu
r
á
lít
ra
-á
la
gn
in
g
Mánuður
K
ró
nu
r
Útsöluverð -
sjálfsafgreiðsla
Útsöluverð mínus
kostnaðarverð
Innkaup með
opinberum gjöldum
Skattar kr/l
ma
í.14
ág
ú..
14
feb
..1
4
jún
..1
4
se
p..
14
ma
r..1
4
júl
..1
4
jan
..1
4
ok
t..1
4
ap
r..1
4
240
220
200
180
160
140
120
100
45
40
35
30
25
Heimild: fib.is
Verðþróun á dísilolíu 2014
K
ró
nu
r
á
lít
ra
-á
la
gn
in
g
Mánuður
K
ró
nu
r
Útsöluverð
Útsöluverð mínus
kostnaðarverð
Innkaup með
opinberum gjöldum
Skattar kr/l
ma
í.14
ág
ú..
14
feb
..1
4
jún
..1
4
se
p..
14
ma
r..1
4
júl
..1
4
jan
..1
4
ok
t..1
4
ap
r..1
4
240
220
200
180
160
140
120
100
45
40
35
30
25
Heimild: fib.is
ok
t.
Þróun hráolíuverðs
120
110
100
90
feb
.
ma
rs
ap
ríl ma
í
jún
í
júl
í
ág
ú.
se
p.
nó
v.
de
s.
jan
.
20142013
Heimild: fib.is
Runólfur
Ólafsson
Eggert Benedikt
Guðmundsson
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
Mundu eftir jólahandbók LyfjuGleðilegar gjafir
í alla pakka
Lyfja hefur að bjóða gjafavöru í úrvali fyrir alla fjölskylduna.
Hjá okkur færðu fallegar gjafir sem koma sér ávallt vel.
Hver sem árstíðin er þá höfum við alltaf sama takmark:
Við stefnum að vellíðan.
- Lifi› heil
www.lyfja.is