Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 79
2000-2007 og naut þar leiðsagnar
hins virta söngkennara Dr. Iris
Dell’Acqua, sem þjálfar m.a.
reglulega Renée Fleming og Ce-
cilia Bartoli. Hún flutti heim 2007
og býr nú á Seltjarnarnesi.
Sópransöngkonan
Björg hefur haldið einsöngs-
tónleika og sungið einsöng við
fjölda tækifæra hér á landi og vítt
og breitt um í Evrópu. Hún hefur
sent frá sér þrjár hljómplötur, Það
ert þú! Eyjafjörður – ljóð og lag,
2000, með Daníel Þorsteinssyni pí-
anóleikara, Himnarnir opnast-
jólaperlur, 2006 og Gullperlur,
2007.
Tríó Bjargar, Elísabetar Waage
hörpuleikara og Hilmars Arnar
Agnarssonar organista hefur
starfað saman til fjölda ára. Þau
hafa komið fram saman á ýmsum
tónlistarhátíðum hérlendis sem er-
lendis. Á liðnu sumri voru þau
m.a. fulltrúar Íslands á Alþjóðlegu
tónlistarhátíðinni í Salisbury á
Englandi og komu fram á norrænu
þjóðlagahátíðinni Tradition for To-
morrow á Akureyri.
Framundan hjá Björgu eru tón-
leikar á vegum Tónlistarfélags
Borgarfjarðar í Reykholtskirkju
4.12. og Jólatónleikar Söngfjelags-
ins í Langholtskirkju 7.12. nk..
Björg var bæjarlistamaður
Akureyrar 2007 og þáði starfslaun
listamanna 2013 og 2014.
Áhugamál og störf
Björg starfaði til nokkurra ára á
líknardeild Landspítalans og starf-
ar nú í hlutastarfi á endurhæfing-
ardeild fyrir aldraða á Landakoti,
meðfram söngstörfum. Þá hefur
hún staðið fyrir árlegum styrktar-
tónleikum frá 2008 fyrir Líknar-
sjóðinn Ljósberann, minningarsjóð
sr. Þórhalls Höskuldssonar, föður
Bjargar. Hún er einnig stofnandi
og listrænn stjórnandi árlegu Tón-
listarhátíðarinnar Englar og menn
í Strandarkirkju.
Fjölskylda
Sambýlismaður Bjargar er
Hilmar Örn Agnarsson, f. 9.5.
1960, organisti við Grafarvogs-
kirkju og stjórnar jafnframt
Kammerkór Suðurlands, Söngfje-
laginu og Vox Populi. Foreldrar
hans eru Fjóla Guðjónsdóttir,
handavinnukennari í Reykjavík, og
Agnar Guðnason, ráðunautur og
ferðamálafrömuður í Reykjavík.
Synir Hilmars Arnar eru Georg
Kári, f. 8.1. 1982, tónsmiður og
meistaranemi í Kaliforníu; Andri
Freyr, f. 14.7. 1987, framhalds-
skólanemi í Reykjavík, og Gabríel
Daði, f. 30.6. 1997, nemi í Þýska-
landi.
Hálfbróðir Bjargar, er Gísli Sig-
urjón Jónsson, f. 9.7. 1958, vél-
stjóri á Akureyri.
Alsystkini Bjargar eru Hösk-
uldur Þór, f. 8.5. 1973, alþingis-
maður á Akureyri, og Anna Krist-
ín, f. 26.6. 1983, læknir í
Reykjavík.
Foreldrar Bjargar: Séra Þór-
hallur Höskuldsson, f. 16.11. 1942,
d. 7.10. 1995, sóknarprestur á
Möðruvöllum í Hörgárdal og á Ak-
ureyri, og Þóra Steinunn Gísla-
dóttir, f. 1.12. 1941, sérkennari á
Akureyri.
Úr frændgarði
Björg
Þórhallsdóttir
Þorsteinn Gíslason
b. á Svínárnesi í Grýtubakkahr.
Anna Jónína Jóakimsdóttir
húsfr. í Svínárnesi
Gísli Þorsteinsson
byggingam. og bæjarverkjstj. á Siglufirði
Sigurjóna Halldórsdóttir
húsfr. á Siglufirði
Þóra Steinunn Gísladóttir
sérkennari á Akureyri
Halldór Jónasson
bóndi og sjóm. í Hlíð og síðar
í Eyjum
Guðný Sigurlaug Jóhannesdóttir
húsfr. í Hlíð í Grýtubakkahr. og í Eyjum
Hulda Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur á
Akureyri
Gísli Þór Gíslason
trésmíðameistari í
Hafnarfirði
Magnús Friðfinnsson
b. á Skriðu
Friðbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Skriðu í Hörgárdal
Höskuldur Magnússon
b. á Skriðu (stjúpfaðir
Þórhalls: Kristján
Sævaldsson, verkam. og
bóndi frá Sigluvík)
Björg Steindórsdóttir
húsfr. á Skriðu í Hörgárdal og síðar
á Akureyri
Þórhallur Höskuldsson
sóknarpr. á Möðruvöllum
í Hörgárdal og á Akureyri
Vigfús Steindór Ásgrímsson
b. á Þrastarhóli
Elín Guðrún Magnúsdóttir
húsfr. á Þrastarhóli í Arnarneshreppi
Björg Afmælisbarnið 8 ára.
ÍSLENDINGAR 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Friðrik fæddist í Götu í Stokks-eyrarhreppi 27.11. 1880.Faðir hans, Bjarni Pálsson,
var forsöngvari og fyrsti organleik-
ari í Stokkseyrarkirkju, en hann
drukknaði 29 ára.
Kona Friðriks var Guðlaug Pét-
ursdóttir kennari sem lést 1966. Þau
eignuðust eina dóttur sem lést ung.
Guðlaug var skáldmælt og samdi
Friðrik lög við ýmis ljóða hennar,
s.s. héraðssöng Hafnfirðinga: Þú
hýri Hafnarfjörður.
Friðrik ólst upp við mikið söng- og
tónlistarlíf á Stokkseyri, fékk sína
fyrstu tilsögn í orgelspili hjá frænd-
um sínum á Stokkseyri, stundaði
tónlistarnám í Reykjavík frá 1899,
lauk kennaraprófi frá Flensborg
1904, og lærði orgelleik hjá frænda
sínum, Sigfúsi Einarssyni tónskáldi.
Þá stundaði hann nám við kennara-
háskólann í Kaupmannahöfn 1913 og
kynnti hann sér söngkennslu í Nor-
egi og Svíþjóð.
Friðrik kenndi fyrir austan fjall í
fjögur ár eftir útskrift, var alhliða
kennari og síðar söngkennari og
kórstjóri við barnaskóla Hafnar-
fjarðar 1908-45, kenndi einnig söng
við Flensborgarskóla 1908-21 og
stýrði þar skólakór. Hann stofnaði
ýmsa kóra, s.s. karlakórinn Þresti,
1912 og kvennakórinn Erlur, 1918,
var orgelleikari við Garðakirkju
1914 en á jólaföstu það ár var Hafn-
arfjarðarkirkja vígð og tók hann þá
við organleikarastarfi þar og stjórn-
aði kirkjukórnum til 1950 er hann
sagði starfinu lausu.
Friðrik var þó þekktastur sem
tónskáld. Árið 1918 komu út tvö
fyrstu og einhver þau þekktustu af
lögum hans: Fyrr var oft í koti kátt,
og Hafið, bláa hafið, sem urðu land-
fleyg. Af tónsmíðum hans hafa kom-
ið út nokkur sönglagahefti og 10
orgellög. Auk þess gaf hann út, einn
eða með öðrum, sjö hefti af skóla-
söngvum og handbók söngkennara.
Loks tók hann og Páll Halldórsson
saman Nýtt söngvasafn handa skól-
um og heimilum, 1949.
Friðrik og Guðlaug áttu mörg
spor um óbyggðir Reykjanesskag-
ans og þekktu þar vel örnefni og
náttúru. Friðrik lést 28.5. 1962.
Merkir Íslendingar
Friðrik
Bjarnason
95 ára
Ingunn Eyjólfsdóttir
85 ára
Áslaug Stefánsdóttir
Bryndís Elíasdóttir
Herdís Þuríður Arnórsdóttir
80 ára
Ásta Sveinbjörnsdóttir
Colin Porter
Eggert Bragi Ólafsson
Haraldur Valsteinsson
Herdís Ellertsdóttir
Matthildur Katrín
Jónsdóttir
75 ára
Björgvin M. Hjelvik
Snorrason
Ævar Sigurþór Ingólfsson
70 ára
Guðrún Egilsdóttir
Hallberg Guðmundsson
Höskuldur Guðmundsson
Óskar Karlsson
Sigurrós Helgadóttir
60 ára
Dagný Guðnadóttir
Einar Helgason
Guðný Helgadóttir
Gunnhildur E.
Halldórsdóttir
Inga Gústavsdóttir
Jóna Helgadóttir
Ólöf Hulda Sveinsdóttir
Páll Eyjólfur Ingvarsson
Sigurborg Borgþórsdóttir
50 ára
Bragi Vilhjálmsson
Grétar Sölvason
Ingigerður Guðmundsdóttir
Jón Eyjólfsson
Krzysztof Zawadzki
Markús Auðunn Eiríksson
Sigurður Gíslason
Sigurjón Sigurðsson
Þráinn Farestveit
40 ára
Anna Rafnsdóttir
Arnar Árnason
Hannes Jón Marteinsson
Ingveldur Erlingsdóttir
Kristín Hraundal
Mariusz Gutowski
30 ára
Arunas Bagocius
Dariusz Glazowski
Kristi Strik
Lara Ruiz Prados
Robert Ulrich Christian
Wörner
Til hamingju með daginn
30 ára Ólöf ólst upp í
Reykjavík, býr í Kópavogi,
lauk stúdentsprófi frá FÁ
og starfar hjá Motus.
Maki: Guðjón Örn Stef-
ánsson, f. 1973, flugstjóri.
Systkini: Sigurgeir Már
Sigurðsson, f. 1982, og
Ásdís Hrönn Björnsdóttir,
f. 1971, d. 2006.
Foreldrar: Hlíf Kristófers-
dóttir, f. 1949, og Sig-
urður Már Austmar Sigur-
geirsson, f. 1946, d.
2008.
Ólöf Vala
Sigurðardóttir
30 ára Bogi ólst upp á
Akureyri, býr þar, lauk
sveinsprófi í málaraiðn frá
VMA og starfar hjá Birni
málara ehf.
Systir: Marín Hallfríður
Ragnarsdóttir, f. 1981,
kennari..
Foreldrar: Ragnar Sig-
urbjörn Stefánsson, f.
1957, d. 2010, hárskeri,
og Salbjörg Thorarensen,
f. 1959, skólaliði við Gler-
árskóla. Hún er búsett á
Akureyri.
Bogi Rúnar
Ragnarsson
30 ára Eva Dögg ólst upp
í Reykjavík, býr í Garðabæ
og stundar nám í félags-
ráðgjöf og til kennararétt-
inda.
Maki: Arnar Ingi Ólafs-
son, f. 1990, nemi í raf-
eindavirkjun.
Foreldrar: Margrét Guð-
rún Guðmundsdóttir, f.
1945, fyrrv. starfsmaður
við Ártúnsskóla, og Guð-
mundur Ólafur Þórðar-
son, f. 1942, múrara-
meistari.
Eva Dögg
Guðmundsdóttir
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
GÓÐGERÐASTOFNUN KENNETH COLE HEFUR Í 30 ÁR SKULBUNDIÐ SIG AÐ STYÐJA ÞÁ SEM ÞURFA AÐSTOÐ.