Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Heilsuborg ermálið
þegar þú vilt:
• Faglega þjónustu
• Heimilislega líkamsrækt
• Hreyfa þig í notalegu umhverfi
• Öðlast betri heilsu í góðum
félagsskap
• Að lífsgleði og árangur
fari saman
7
BRÁÐSKEMMTILEG
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ísl. tal 12
POWERSÝNING
KL. 10:30
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
L
MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30 (p)
DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8 - 10:30
KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Baltasar Kormákur, einn eigenda
fyrirtækisins RVK Studios og fram-
kvæmdastjóri þess, Magnús Viðar
Sigurðsson, munu framleiða nýja
sjónvarpsþáttaröð með Stöð 2 sem
ber heitið Katla. Þáttaröðin verður
umfangsmesta framleiðsluverkefni
Stöðvar 2 til þessa, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Í henni segir að Katla verði
„spennuþáttaröð með mystísku ívafi
um unga björgunarsveitarkonu sem
tekst á við drauga fortíðar í miðjum
langvarandi náttúruhamförum“ og
að sögusviðið sé jöklar, eldfjöll og
hálendi Íslands. Handrit þáttanna
skrifa Sigurjón Kjartansson, Ólafur
Egilsson og Guðmundur Oddur
Magnússon og er áætlað að tökur
hefjist vorið 2016.
Mikill áhugi erlendis
„Þetta er næsta stóra verkefnið
hjá okkur og það er á frumstigi,“
segir Magnús Viðar um Kötlu. „Það
er mikill áhugi á þessu erlendis frá.
Það hefur verið mikill áhugi fyrir
þessum skandinavísku spennu- og
dramaþáttum og við, litla Ísland, er-
um svolítið að njóta þess hvað það
hefur gengið vel hjá hinum
Norðurlandaþjóðunum,“ segir
hann.
Spurður út í framleiðslukostnað
þáttanna segist Magnús Viðar ekki
geta gefið upp neina tölu að svo
stöddu þar sem enn sé verið að
skrifa handrit þáttanna. Kostnaðar-
áætlun verði ekki samin fyrr en því
sé lokið. „Miðað við umfangið sem
við ætlum okkur, að fara á jökla í
tökur, allar tölvubrellur sem við
þurfum í þáttunum og að sumir leik-
ara í þeim verða erlendir á ég von á
því að þetta verði ansi viðamikil
kostnaðaráætlun,“ segir Magnús
Viðar.
Engar stórstjörnur
– Ætlið þið að reyna að landa
þekktum, erlendum leikurum?
„Ja, auðvitað reynir maður það en
síðan er spurning hvort maður fái
þá og hafi efni á þeim. Við erum
ekki að fara að ráða einhverjar stór-
stjörnur í þetta,“ segir Magnús Við-
ar. Þættirnir verði að mestu leyti á
íslensku. helgisnaer@mbl.is
Á jökli Baltasar Kormákur, leikstjóri og sjónvarpsþáttaframleiðandi, við
Vatnajökul að skoða mögulega tökustaði fyrir þáttaröðina Kötlu.
Spenna á jökli
Þáttaröðin Katla verður umfangs-
mesta verkefni Stöðvar 2 til þessa
„Samtal um málverk“ er yfirskrift
málþings sem efnt verður til í Hafn-
arborg í kvöld, fimmtudag, kl. 20.
Málþingið er haldið í tengslum við
sýninguna „Vara-litir“ sem nú
stendur yfir í Hafnarborg en sýnd
eru málverk eftir listamenn af yngri
kynslóðinni. Sýningarstjóri er Birta
Fróðadóttir og auk hennar taka þátt
í samræðum Aðalheiður Valgeirs-
dóttir myndlistarmaður og listfræð-
ingur, sem skrifað hefur veigamikla
ritgerð um málverkið á Íslandi á 21.
öldinni, og myndlistarmaðurinn
JBK Ransu sem einnig hefur skrifað
mikið um málaralistina.
Þremenningarnir flytja stutt inn-
legg um málverkið, Birta segir stutt-
lega frá sýningunni og þá mun Ólöf
K. Sigurðardóttir safnstjóri Hafn-
arborgar hafa umsjón með pall-
borðsumræðum um einkenni og gildi
málverksins í samtímanum.
Málþing um málverkið
Morgunblaðið/Einar Falur
Litrík Birta Fróðadóttir sýningarstjóri á sýningunni Vara-litir.
öðru hvoru / án þess þig vanti eitt-
hvað.“
Það var kostur með Ali hve lögin
héngu saman efnislega, en kostur á
þessari skífu að þau gera það ekki,
því fyrir vikið lifa þau sínu sjálfstæða
lífi – A, B, C er popplag dauðans,
Flýja epísk martröð, Þurz upphafið
þras. Spilamennska á skífunni er af-
bragð og hljómur góður, nefni sér-
staklega gítarspil sem er fjölbreytt
og frískandi. Aukalappalísur leggja
til strengi í Flýja sem gefur laginu
þekkilega dramatík og þunga.
Stuð Grísalappalísungar eru andsetnir af rokkhetjum síðustu áratuga,
en þó er allt glænýtt og frumlegt og skemmtilegt.