Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 43

Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 43
RAFRÆN SKILRÍKI Í SÍMANN Hægt er að setja rafræn skilríki í flestar tegundir farsíma, óháð aldri þeirra eða tegund. Þau eru vistuð á SIM-kort símtækisins. Á www.audkenni.is og fleiri vefsíðum tengdum rafrænum skilríkjum geturðu slegið inn símanúmer þitt og fengið upplýsingar um hvort SIM-kortið henti fyrir rafrænt skilríki. Ef svo er ekki pantar þú nýtt SIM-kort hjá símafélagi þínu og færð það sent heim eða afhent í verslunum símafyrirtækja og hjá endursöluaðilum þeirra. Veldu þér fjögurra til átta tölustafa leyninúmer fyrir rafrænu skilríkin. Rafrænu skilríkin fást virkjuð á næstu skráningarstöð. Mundu að taka símann með þér og gild persónuskilríki, vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini með mynd. Ljósmyndin á skilríkinu þarf að vera skýr. RAFRÆN SKILRÍKI Í DEBETKORT Nú þegar eru rafræn skilríki í mörgum debetkortum. Viðskiptabankarnir veita upplýsingar um hvort unnt sé að að virkja þau. Til þess að nota skilríkin í debetkortum þarf ákveðinn gjaldfrjálsan hugbúnað og korta- lesara sem ýmist er innbyggður í tölvur eða lyklaborð eða fáanlegur sem aukabúnaður sem tengdur er við tölvuna. RAFRÆN SKILRÍKI Í EINKASKILRÍKI Hægt er að fá rafræn skilríki í sérstöku einkakorti. Umsækjendur um leiðréttinguna geta sótt um gjaldfrjálst einkaskilríki á www.leidretting.is. Aðrir fá einkaskilríkin í gegnum www.audkenni.is. Til þess að nota einkaskilríkin hleður þú niður gjaldfrjálsum hugbúnaði og nýtir korta- lesara sem ýmist er innbyggður í tölvur eða lyklaborð eða fáanlegur sem aukabúnaður sem tengdur er við tölvuna. Þegar þú sækir um einkaskilríki velur þú í hvaða útibú viðskiptabanka þíns þú vilt fá skilríkin send. Þú færð PUK-númer sent í pósti og einkaskilríkin eru send í viðskiptabankann sem þú tilgreindir. Loks velur þú þér sex stafa PIN-númer og virkjar einkaskilríkin í skráningarstöð viðskiptabankans. Mundu að taka PUK-númerið með þér og gild persónuskilríki, vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini með mynd. Ljósmyndin á skilríkinu þarf að vera skýr. Rafræn skilríki auka öryggi okkar í rafrænum heimi, opna fjöl- margar nýjar og fljótvirkari leiðir að persónulegum upplýsingum á netinu, gera okkur kleift að undirrita skjöl með rafrænum hætti og spara bæði okkur og umhverfinu sporin á margvíslegan máta. Rafræn skilríki leysa gömlu notandanöfnin þín og lykilorðin, auðkennislykla, veflykla og flest aðgangsorð af hólmi. Í staðinn býrðu til eitt nýtt númer, leggur það á minnið og gerir að ferðafélaga hvert sem leiðin liggur. Skilríkin einfalda þér lífið, auka öryggi til muna og greiða þér leið í netheimum með því að sanna það á augabragði að þetta sért þú - og enginn annar. Mundu eftir gildum persónuskilríkjum þegar þú ferð á skráningarstöð 1 12 2 3 3 4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.