Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 47
hann þá. „Ég er dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna. En ég er einnig
svartur maður.“
Íbúar í Ferguson, sem er útborg
Missouri, hafa mótmælt síðan 9.
ágúst. Blökkumenn í bænum eru reið-
ir vegna lögregluofbeldis og viðvar-
andi kynþáttafordóma og segjast
vera teknir sérstaklega fyrir vegna
húðlitar síns.
Sean Jackson er einn þeirra. Þegar
hann varð faðir segist hann hafa áttað
sig á að hann þyrfti að kenna syni sín-
um hvernig hann ætti að koma fram
við lögreglu til að komast hjá hand-
töku eða einhverju þaðan af verra.
Það sem hvítir skilja ekki
„Sjáðu til, þetta er það sem flestir
hvítir skilja ekki,“ sagði Jackson í
samtali við fréttastofuna AFP fyrir
utan brunarústir verslunar eftir róst-
urnar á mánudagskvöldið. „Svartur
maður, sem keyrir í gegnum Fergu-
son, er á nálum því að hann óttast að
lögregla stöðvi hann. Hann óttast að
verða drepinn, læstur inni eða sekt-
aður – hann vonast til að verða sekt-
aður. Þegar maður þarf að vera á nál-
um hvern einasta dag lífsins – það er
ekki skemmtilegt.“
Jackson segist oft hafa sætt of-
sóknum lögreglu. Hann hafi kennt
syni sínum, sem nú er 25 ára, að setja
hendur upp í loft og segja „já herra,
nei herra“ ef hann yrði stoppaður.
„Djúpstætt vantraust“
Mál Browns hefur vakið mikla um-
ræðu í Bandaríkjunum. Vísað hefur
verið til þess að George Zimmerman
var sýknaður fyrir að skjóta fyrir
tveimur árum 17 ára óvopnaðan ung-
ling, Trayvon Martin, á götu í Flórída.
Um helgina var 12 ára svartur dreng-
ur skotinn til bana í almenningsgarði í
Cleveland í Ohio vegna þess að hann
var með leikfangabyssu, sem líktist
skammbyssu, á lofti. Hefur það mál
verið borið saman við mál Browns.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði þegar tilkynnt var að Wil-
son yrði ekki ákærður að ástandið í
Ferguson endurspeglaði stærri
vanda Bandaríkjanna allra: „Það er
djúpstætt vantraust á milli löggæsl-
unnar og samfélaga litaðra.“ Um leið
kvaðst hann enga samúð hafa með
þeim, sem eyðilegðu umhverfi sitt.
„Þetta eru glæpsamlegir verknaðir,“
sagði Obama og bætti við að hann
skildi tilfinningar fólks, en hefði aldrei
upplifað að lög hefðu náð fram að
ganga „út af því að kveikt var í bíl“.
AFP
Rústir einar Vegfarendur ganga hjá byggingu í Ferguson í Missouri, sem lögð var í rúst þegar fólk gekk berserks-
gang eftir að kviðdómur ákvað að ekki bæri að ákæra lögreglumann, sem skaut svartan ungling til bana í bænum.
Svartir og hvítir
» Samkvæmt hagstofu
Bandaríkjanna lét 2.931 maður
lífið í „tengslum við handtöku“
á árunum 2003 til 2009. Nán-
ast allir voru karlar og rúmlega
helmingurinn á aldrinum 25 til
44 ára. 32% þeirra, sem létu
lífið með þessum hætti, voru
blökkumenn. Svartir eru hins
vegar aðeins 13% íbúa lands-
ins.
» Samkvæmt skýrslu frá
dómsmálaráðuneytinu er
þrisvar sinnum líklegra að leit-
að verði á blökkumanni eða
manni með uppruna í róm-
önsku Ameríku en hvítum
manni.
» Í lok árs 2013 voru 3%
svartra karla af öllum aldurs-
hópum í fangelsi. Hlutfallið
meðal hvítra var 0,5%.
» Árið 2011 átti eitt af hverj-
um 15 svörtum börnum for-
eldri í fangelsi, en eitt af hverj-
um 111 hvítum börnum.
FRÉTTIR 47Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Eintak af mjög
fágætri og verð-
mætri bók eftir
William Shake-
speare hefur
fundist í litlum
bæ í Frakklandi,
Saint-Omer, þar
sem það lá
óhreyft í
geymslu bóka-
safns í 200 ár.
Bókin var gefin út árið 1623, sjö ár-
um eftir dauða leikskáldsins, í um
800 eintökum og talið er að aðeins
233 þeirra hafi varðveist. Hún nefn-
ist „Fyrsta fólíó“ og í henni eru 36
af 38 leikritum Shakespeares. Hún
er álitin mikilvægasta bók breskra
bókmennta og án hennar hefðu
átján verk Shakespeares, m.a. Mac-
beth, ekki varðveist.
FRAKKLAND
Fágæt bók eftir
Shakespeare fannst
Shakespeare-
bókin sem fannst.
Það er örugglega margt skemmti-
legra heldur en að vera gert að
yfirgefa flugvél sem festist á flug-
braut í fimbulkulda. Þetta gerðist í
Síberíu í fyrradag þegar farþegar
Tupolev-þotu voru beðnir að fara
út og ýta henni í 52 stiga frosti.
Einn farþeganna birti myndskeið
af atvikinu á YouTube og þar sést
hópur farþega ýta vélinni á snævi
þakinni flugbraut í Igarka. Sam-
gönguyfirvöld í Síberíu tilkynntu
að atvikið yrði rannsakað og sögðu
að hemlabúnaður vélarinnar hefði
frosið við flugbrautina og dráttar-
bíll ekki getað losað þotuna.
RÚSSLAND
Farþegarnir þurftu
að ýta þotunni
Önnur
þjónusta
Dekk Púst Smurning Bremsur Fjöðrun Rafgeymar
Jólin koma snemma hjá
BJB pústþjónustunni
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is | Opið: mánud. til fimmtudaga kl. 8:00 - 18.00, föstudaga kl. 8:00 - 16:30
Fellum niður vörugjöld
af dekkjum á meðan
birgðir endast.
Við bjóðum allt að
40%
afsláttaf völdum stærðumsjá bjb.is
BJB býður úrval góðra dekkja á góðu verði fyrir veturinn frá
Vredestein, Apollo og Federal öll þjónusta á staðnum