Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 72

Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 72
KYNNING − AUGLÝSINGÚtskriftir LAUGARDAGUR 18. MAÍ 20136 Rósa segir að Partíréttir sé bók sem hana hafi lengi langað til að skrifa. Þegar veisla stendur fyrir dyrum er fólk oft lengi að velta fyrir sér hvað eigi að bjóða gestum upp á. Rósa sem hefur fjallað um mat í áratugi í fjölmiðlum segist hafa orðið vör við áhuga fólks á veisluréttum. „Mér finnst mjög gaman að halda matar- boð eða veislur og að undirbúa slík partí. Í bókinni eru hugmyndir fyrir alls kyns upp- ákomur, barnaafmæli, saumaklúbbinn, lítil partí eða stórar veislur. Ég er með heita og kalda rétti, alls kyns ídýfur og brauðrétti. Einnig eru súpur fyrir margvísleg tilefni og ávaxtaréttir auk drykkja,“ segir Rósa. „Maður þarf ekki að hafa tilefni til að gera sér glaðan dag, heldur kannski bara búa sér það til,“ segir hún. Síðasta matreiðslubók Rósu, Eldað af lífi og sál, hefur notið mik- illa vinsælda og margir réttir úr þeirri bók orðnir fastir liðir í eldhúsum landsmanna. Hér eru þrjár uppskriftir úr þessari fallegu og litríku bók sem kemur í búðir í lok næstu viku. Kjötbollukræsingar Litlar kjötbollur hverfa jafnan fljótt af hlað- borðinu og eiga jafn vel við í barnaafmæli sem í brúðkaups- eða útskriftarveislu. Þægilegt er að útbúa bollurnar fyrirfram, til dæmis fyrir fjölmennt partí, og frysta og hita síðan upp þegar á að nota þær. Bornar fram á bakka með sósuskál á kantinum eða þræddar upp á pinna eru þær alltaf mjög girnilegar og góðar. Kræsingar fyrir allar veislur Matgæðingurinn Rósa Guðbjartsdóttir er að senda frá sér sína aðra matreiðslubók, Partírétti, þar sem hún býður upp á ýmsar girnilegar uppskriftir fyrir veisluna, litla sem stóra. Rósa Guðbjartsdóttir er að senda frá sér sína aðra matreiðslubók, Partírétti, sem verður án efa vel þegin nú þegar útskriftarveislur standa sem hæst. Ítalskur biti 12 stk. ½ fetaostskubbur, skorinn í bita Salamipylsa, sneidd Fersk basilíka 12 grænar ólífur 6 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt Texmex-bollur 25-30 stk. 500 g nautahakk 1 laukur, smátt saxaður 1 rautt chillí, smátt saxað 2 dl salsasósa 70 g tortillaflögur, muldar og meira til að hjúpa bollurnar 1 egg Hitið ofninn í 220 gráður. Bland- ið öllu saman í skál og búið til litl- ar bollur. Veltið bollunum upp úr muldum tortillaflögum ef þið viljið, má sleppa. Raðið á bökunarplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír. Bakið í um 15 mínútur, fer eftir stærð boll- anna. Ágætt er að snúa bollunum einu sinni við meðan á eldun stend- ur, en það er ekki nauðsynlegt. Sósa 1 avókadó 2 msk grísk jógúrt ½ rautt chillí, saxað smátt kóríander, að smekk 1 msk. límónu- eða sítrónusafi salt og pipar Útskriftarferðir í framhaldsskólum hafa lengi tíðkast. Nemendur hafa yfirleitt safnað sér fyrir ferðinni í langan tíma, bæði með fjáröflun og vinnu með skóla. Það er ekki leiðinlegt að skella sér í sólina eftir próftörnina og útskriftarveislu. Verzlunarskóli Íslands fer að þessu sinni til Costa del Sol en Fjölbraut í Garðabæ, Kvennaskólinn, Menntaskólinn við Sund og Menntaskólinn á Laugarvatni ætla til Benidorm svo eitthvað sé nefnt. Vinsælt hefur einnig verið að fara í útskriftarferðir til Ibiza, Grikklands og Tyrklands. Útskriftarferðir til Spánar hafa oft orðið fréttaefni, sérstaklega vegna þess að sumir nemendur missa sig í gleðskapnum og frelsinu. Aðrir hafa orðið vasaþjófum að bráð. Gott er að hafa í huga að atvinnuleysi er mikið við Miðjarðahafið og þjófnaðir hafa stóraukist. Unga skólafólkið þarf að gera sér grein fyrir þeim hættum sem til staðar eru. Ekki ganga með mikla peninga á sér og alls ekki þiggja drykki af ókunnugum. Allir þurfa að vera meðvitaðir um hættuna þar sem bæði strákar og stelpur geta lent í glæpamönnum. Gott er að halda hópinn og gæta að því að skólasystkinin séu örugg. Í SÓLINA AÐ LOKNUM PRÓFUM Osta- og ljúfmetisverslun Nóatúni 1 7 • Sími 551 8400 www.burid.is Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar núna á www.stod2.is/vild ENN MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR Sækja þarf um Olís greiðslulykil til að fá afs látt 25% afsláttur af matseðli hjá Rizzo Pizzeria. AFSLÁTTUR-7KR.AFSLÁTTUR F ÍT O N / S ÍA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.