Fréttablaðið - 01.08.2013, Qupperneq 37
Metroblaðrið1. ÁGÚST 2013 FIMMTUDAGUR 3
Það er þekkt staðreynd í héruðum Ítalíu að allar litlar pizzur dreymir um að verða
að stórum og djúsí hamborgarara þegar þær verða stórar. Því miður verður þessi
draumur sjaldnast að veruleika, líkt og oft vill verða um framtíðardrauma.
Mamma Mia-hamborgarinn er hin stolta undantekning, með öllu besta álegginu
sem prýðir góða pizzu, enda tvöfaldur og töff.
Mamma-Mia-hamborgarinn færir þér ítalska stemningu beint í æð. Hann er
splunkunýr á matseðli og betr‘á Metro! LÁTTU DRAUMINN RÆTAST
Hlín Gísladóttir var Facebook-vinningshafi
vikunnar hjá Metro og hlaut að launum
nokkrar ókeypis máltíðir á Metro fyrir að
svara laufléttri spurningu.
Hlín er átján ára Kvennaskólamær og segist
kíkja stundum á Metro með vinunum eða
systkinum sínum þegar vel liggur á.
Ert þú með Metro á Facebook? Þar er
gaman að vera og glaðningar í viku hverri
fyrir þá sem fylgja okkur.
Farðu einfaldlega inn á: www.facebook.
com/metroborgari og líkaðu við síðuna. Þar
getur þú fylgst með öllu því helsta sem er að
gerast á Metro og getur átt von glaðningi.
Sigurvegari í Facebook-leiknum
Á Facebook-síðu Metro er hægt að vinna glaðning í hverri viku.
Sindri BM á Flass 104,5 fær einfaldlega ekki nóg af flörra með Nutella og
kókos. „Þetta er besti ís sem að ég hef smakkað, ég fæ ekki nóg,“ segir Sindri.
„Uppáhaldsmáltíðin mín á Metro er ostborgara stjörnumáltíðin, svo fæ ég mér
auðvitað flörrann í eftirrétt,“ útskýrir hann. Flörrinn með Nutella og kókos er nýjung
hjá Metro sem hefur slegið í gegn hjá viðskiptavinunum.
Þátturinn hans Sindra er á dagskrá alla virka daga milli klukkan tíu og tvö á Flass
104,5 í boði Metro. „Þetta er skemmtilegur þáttur þar sem ég spila skemmtilega
tónlist sem kemur öllum í gott skap. Svo fá heppnir hlustendur reglulega glaðning.“
Flörri með
Nutella og
kókos hefur
slegið í gegn
hjá við-
skiptavinum
Metro.
Á Metro er að finna fjölbreytta afþreyingu
og skemmtun fyrir yngstu kynslóðina
og geta börnin auðveldlega gleymt
sér í Metrolandi tímunum saman. Þar
eru leiktæki, litabækur og Playstation
Vita-leikjatölvur svo dæmi séu nefnd.
Þá vekja barnaboxin alltaf mikla lukku
en innihaldið geta börnin valið eftir
smekk. Hægt er að velja um hamborgara,
ostborgara eða nagga í aðalrétt, franskar
kartöflur, sætsalat eða gulrætur sem
meðlæti og úr úrvali drykkja.
Glaðningur fylgir svo hverju boxi.
Ævintýraheimur barnanna
Börnin geta valið í boxin eftir smekk.
Sindri á Flass elskar Flörra með
Nutella og kókos
Litla pizzan sem varð að
stórum og djúsí hamborgara
Nú er Metro búið að leggja rauðan
dregil fyrir komu markvarðarins
hárprúða Davids James því veit-
ingastaðurinn hóf nýlega sölu á gos-
drykknum Coke Zero. David er að
eigin sögn sjúkur í Coke Zero og er
því eðlilega í skýjunum yfir ákvörð-
un Metro. „Ég mun pottþétt mæta
f ljótlega á Metro og gæða mér á
einhverjum af þeim fjölmörgu ljúf-
fengu réttum sem staðurinn býður
upp á. Að sjálfsögðu skola ég veit-
ingunum niður með ískaldri Coke
Zero. Metro verður einn af mínum
fyrstu viðkomustöðum næst þegar
ég kem til Reykjavíkur.“
Coke Zero hefur lengi verið uppá-
haldsdrykkur kappans sem þykir
fátt meira svalandi en að kæla sig
með einni ískaldri dós af eðal-
drykknum.
David James á að baki langan
og farsælan feril sem markvörður.
Hann lék með fjölda enskra knatt-
spyrnuliða á árunum 1988-2013
en skipti yfir í lið Eyjamanna fyrir
tímabilið. Hann lék einnig 53 lands-
leiki fyrir hönd Englands. Það er því
mikill fengur fyrir Eyjamenn og ís-
lenska knattspyrnuáhugamenn að
fá þennan afreksmann til Íslands.
Viðskiptavinir Metro geta því
vænst þess að sjá David James
bregða fyrir á næstunni á Metro
með ískalda Coke Zero og gómsæta
máltíð af matseðli staðarins.
Rauði dregillinn útbreiddur
fyrir David James
„Ég mun pottþétt mæta fljótlega á Metro og gæða mér á einhverjum af þeim fjölmörgu
ljúffengu réttum sem Metro býður upp á. Að sjálfsögðu skola ég veitingunum niður með
ískaldri Coke Zero,“ segir David James. MYND/EGGERT JÓHANNESSON
Heppin
Uppáhald
Metro er
staðurinn
Besti ísinn