Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 66
FÓLK|HELGIN
ÆTLA ALLS EKKI
Í JÓLAKÖTTINN
JÓL Vasaljós er þáttur fyrir börn þar sem fjallað verður um ýmislegt sem
krakkar hafa fyrir stafni.
Í JÓLASKAPI Salka, Katla, Marteinn, Júlíana, Alex, Hekla og Mira eru hressir krakkar sem hlakka til jólanna.
Marteinn Elí Brynjólfsson ellefu ára og Salka Gústafsdóttir tíu ára eru löngu farin að hlakka til jólanna. Þau eru í hópi sjö krakka
sem stjórna Vasaljósi, sjónvarpsþætti fyrir krakka á
RÚV þar sem fjallað er um ýmislegt sem krakkar hafa
fyrir stafni og finnst skemmtilegt. Laugardaginn 28.
desember verður jólaþáttur Vasaljóss á dagskrá og við
hittum krakkana þegar þeir voru að undirbúa þáttinn.
Er eitthvað ómissandi á jólunum?
M: Möndlugrauturinn og fjölskyldusamveran.
Ég hef fengið möndluna og möndlugjafirnar eru
oftast spil eða bækur
S: Jólagleðin, skreytingarnar og stemningin í
bænum.
Eruð þið búin að kaupa jólagjafir?
M: Nei, ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla
að gefa öllum í jólagjöf
S: Ekki ég heldur, ekki alveg öllum.
M: Ég bjó til jólagjafir í skólanum þegar ég var
yngri en nú er það alveg búið.
S: Ég bjó til jólagjöf handa ömmu í skólanum
og held að ég búi líka til gjöfina handa pabba og
mömmu. Ætla ekki að segja hvað það er.
Hvað langar ykkur að fá í jólagjöf?
M: Mig langar í Playstation 3, einhverja skemmti-
lega bók og fótboltabúning.
S: Ég veit ekkert hvað mig langar að fá í jólagjöf,
ég vil eiginlega helst láta koma mér á óvart.
Farið þið í jólaköttinn?
M: Nei, ég er búinn að fá jólafötin. Ég fékk buxur
og skyrtu og ég valdi það sjálfur. Mamma valdi
einu sinni fötin mín en núna vel ég alltaf sjálfur
það sem mér finnst flott.
S: Pabbi fór til útlanda í haust og keypti handa
mér jólakjól. Svo fæ ég líka oft föt í jólagjöf.
Hvernig finnst ykkur aðfangadagur?
M: Mjög skemmtilegur og þægilegur. Ég hef
það oftast rólegt og slaka á. Við lesum jólakortin,
horfum stundum á einhverja jólamynd og bíðum
eftir kvöldinu.
S: Ég dreifi jólagjöfum á vini og fjölskyldu og hef
það rólegt fyrir kvöldið.
Er aðfangadagur lengsti dagur ársins?
Bæði: Já!
Save the Children á Íslandi
Eitt best geymda leyndarmál náttúrunnar, Aloe Ferox, er
uppistaðan í virkum innihaldsefnum EyeSlices gelpúðanna.
Augnpúðarnir eru ofnæmisprófaðir og í þeim er hvorki
paraben né latex. EyeSlices augnayndi sameinar öflugar
jurtir úr náttúrunni annars vegar og margverðlaunaða
nýsköpun hins vegar.
Klínískar rannsóknir hafa sýnt að EyeSlices augnayndi
vinnur á hrukkum, þrota, baugum, ummerkjum þreytu og
rauðum augum. Gelpúðana þarf aðeins að nota í 5 mínútur
í hvert sinn en þá má nota í 10 skipti.
ferskleiki & fegurð
án fyrirhafnar
Nýtt á Ís landi
EyeSlices augnayndi er tilvalin jólagjöf
Lyfja, Lyf og heilsa, Hagkaup, Fríhöfnin, Fjarðarkaup, Garðsapótek, Akureyrarapótek, Árbæjarapótek, Apótekið Setbergi,
Lyfjaver, Reykjavíkur apótek, Apótek Garðabæjar, Apótek Hafnarfjarðar, Reykjavík SPA, Sóley natura spa,
Snyrtistofan Dimmalimm, Snyrtistofan Mizú, Snyrti- og nuddstofan Paradís, Snyrtistofan Þema, Snyrtistofa Grafarvogs,
Torfhildur Theodórs - Snyrtistofa Reykholti, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Snyrtistofan Abaco Akureyri.