Fréttablaðið - 14.12.2013, Síða 94
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 66
66 handrit úr fórum Árna Magnússonar
Útgefandi: Opna
Fjöldi síðna: 232 bls.
Meðan á Íslandsdvöl Árna Magnússonar stóð 1702-1712 var aðalaðsetur hans í Skálholti, og þar fann hann dag einn árið
1703 forna biskupshúfu úr kaþólsk-
um sið. Auðvelt er að ímynda sér
undrun Árna þegar hann uppgötvaði
að styrktarhólkurinn undir slitnu
silkifóðrinu var gerður úr gömlum
handritsblöðum og honum hefur án
efa verið skemmt þegar hann komst
að því að þau höfðu að geyma ver-
aldlegar frásagnir af heitum ástum
ungra elskenda. Þetta voru tvö tvinn
úr fallegu tvídálka skinnhandriti.
Þau eru tilsniðin í sama þríhyrnings-
form og stærð svo það hefur verið
hægt að sauma þau saman á hliðun-
um til að móta millifóðrið í biskups-
mítrið. Máleinkenni sýna að hand-
ritið er skrifað í suðvestanverðum
Noregi um 1270.
En hvernig gátu blöð úr norsku
handriti endað í íslenskri biskups-
húfu? Ísland heyrði fram til sið-
breytingar undir erkibiskupsdæmið
í Niðarósi (Þrándheimi), og biskups-
efni varð að fara til Niðaróss til að
taka við embættistáknum sínum.
Menn hafa því látið sér detta í hug að
húfa þessi hafi verið saumuð í Niðar-
ósi eftir máli, sennilega kringum árið
1500, en ekki hefur tekist að eigna
hana ákveðnum biskupi. Sé blöðunum
haldið upp í birtuna sjást greinileg
nálarför í bekkjum og blómum, svo
það liggur við að hægt væri að endur-
gera útsauminn. Á Þjóðminjasafninu í Kaup-
mannahöfn má sjá nokkurn veginn hvernig
hann hefur litið út. Þar er til sýnis annað
biskupsmítur úr Skálholti frá byrjun 16.
aldar. Vitað er að það var selt á uppboði árið
1802 ásamt öðrum munum úr eigu biskups-
stólsins sem lagður var niður árið 1797, og að
það var Skúli Thorlacius jústitsráð og rektor
Frúarskóla sem gaf Nefnd til varðveislu
fornminja mítrið árið 1813.
Nú gætu menn ef til vill haldið, eins og
algengast er um brot, að afgangurinn af
handritinu væri týndur, en sú er ekki raunin
um biskupshúfubrotið. Handritið sem það er
úr er nú varðveitt í Uppsölum (DG 4–7 fol.),
eftir viðkomu í Kaupmannahöfn (og Sórey).
Danski sagnfræðingurinn Stefan Stephan-
ius (sjá bls. 38) fékk það nefnilega frá Nor-
egi um 1630, lét binda það inn og skrifaði
í það efnisyfirlit á latínu. Stephanius lést
árið 1650 og nokkrum árum eftir andlát
hans keypti sænski aðalsmaðurinn Magnus
Gabriel de la Gardie handritasafn hans og
gaf háskólabókasafninu í Uppsölum. Af upp-
haflegu handritsblöðunum 56 virðist fjórð-
ungur hafa glatast, og af síðasta kverinu, sem tekið
var efni úr í biskupshúfuna, eru aðeins tvö blöð eftir.
Handritið telst vera elsta og merkasta norska
handritið sem geymir riddarabókmenntir. Lengsti
textinn í bókinni eru svonefndir Strengleikar, þýð-
ing á norrænu í óbundnu máli á 21 lais sem eru
riddaraleg ástarljóð ort á fornfrönsku. Nokkur
þeirra eru eignuð Marie de France sem uppi var á
tólftu öld. Ein af sögunum sem biskupinn bar óaf-
vitandi á höfði sér fjallar um riddarann Grelent og
dálæti hans á konu sem er fegurri en sjálf drottn-
ing landsins. Strengleikar, sem aðeins eru til í
þessu eina handriti, voru eins og fleiri fulltrúar
evrópskra riddarabókmennta þýddir að
frumkvæði Hákonar Hákonarsonar Noregskonungs
(1217-1263).
➜ Handritið telst vera elsta og merkasta norska handritið
sem geymir riddarabókmenntir. Lengsti textinn í bókinni
eru svonefndir Strengleikar– riddaraleg ástarljóð ort á forn-
frönsku.
ÚR BISKUPSHÚFU
BISKUPSHÚFA
Villa Bergshyddan
Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum
Villa Bergshyddan í Stokkhólmi.Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast
Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga
Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga
Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni í eina eða tvær vikur á
árinu 2014. Dvalargjald fyrir eina viku eru 800 sænskar krónur.
Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld.
Einnig er hægt að skila umsókn rafrænt í gegnum heimasíðuna
www.stockholm.se/nordisktsamarbete
Nánari upplýsingar veitir Auður Halldórsdóttir verkefnastjóri
skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar,
s. 590-1520, netf. audur.halldorsdottir@reykjavik.is og Hanan Haidari
hjá Stokkhólmsborg netf. hanan.haidari@stockholm.se
Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar 2014
til: Stockholms Kulturförvaltning,
Nordiskt kultursamarbete,
Hanan Haidari,
Box 16113
SE - 103 22 Stockholm