Fréttablaðið - 14.12.2013, Síða 123
LAUGARDAGUR 14. desember 2013 | MENNING | 95
Stórleikarinn Tom Cruise hefur
verið ófeiminn við að tala um að
hann sé meðlimur í Vísindakirkj-
unni í gegnum árin. Pat Kingsley,
fyrrverandi kynningarfulltrúi
Íslandsvinarins, segir í viðtali
við The Hollywood Reporter að
hann hafi ítrekað sagt Tom að
tala minna um trú sína.
„Ég sagði Tom að slaka á með
þetta tal. Vísindakirkjan er fín.
En viltu fara í herferð fyrir Vís-
indakirkjuna? En Warner Bros
styrkir herferðina,“ segir Pat og
vísar þar í herferð fyrir myndina
The Last Samurai árið 2003.
Pat vann með Tom til ársins
2004 og voru þau mjög náin.
„Við gátum nánast klárað setn-
ingar hvort annars. Við vorum
nánast aldrei ósátt. Við treystum
hvort öðru fullkomlega. Við töluð-
um stanslaust saman. Hann þjáð-
ist af svefntruflunum. Hann var
mjög skemmtilegur og hugulsam-
ur. Hann mundi eftir afmælinu
mínu og afmæli dóttur minnar.
Hann kom í brúðkaupið mitt og
keypti allt stellið sem ég hafði
sett á brúðargjafalistann. Tom
Cruise var prins.“
Tom Cruise
var prins
TOPPMAÐUR Pat hefur miklar mætur
á Tom.
Poppdrottningin Beyoncé kom
aðdáendum sínum rækilega á
óvart á miðnætti, aðfaranótt
föstudags, þegar hún gaf út nýj-
ustu plötu sína sem heitir einfald-
lega Beyoncé.
„Mig langaði ekki að gefa út
tónlistina mína eins og ég hef
gert. Ég er komin með leiða á því.
Mér finnst ég geta talað beint við
aðdáendur mína,“ segir Beyoncé í
fréttatilkynningu.
Þessi fimmta sólóplata söng-
konunnar var gefin út á iTunes
í Bandaríkjunum og er því ekki
fáanleg enn á Íslandi. Beyoncé er
þó byrjuð að leka efni inn á You-
Tube fyrir okkur sem búum ekki
vestan hafs.
Á Beyoncé er að finna fjór-
tán lög og sautján myndbönd.
Á plötunni vann hún með lista-
mönnum á borð við Drake, Phar-
rell Williams, Justin Timberlake,
Frank Ocean og fyrrum liðsmenn
Destiny‘s Child – Michelle Willi-
ams og Kelly Rowland. Auðvitað
kemur eiginmaður hennar, rapp-
arinn Jay Z, líka við sögu. - lkg
Gaf út plötu
á miðnætti
DROTTNING Beyoncé er dýrkuð um
heim allan.
Ný bók eftir drottningu spennusagnanna Mary Higgins Clark.
Dr. Lyons er myrtur og grunur fellur á ekkju hans.
Dóttur þeirra bíður hið vandasama verk að hreinsa
nafn móður sinnar og finna morðingja föður síns.
Mary Higgins Clark er enginn nýliði í ritun glæpasagna
en eftir hana liggja yfir 30 spennusögur sem selst hafa
í milljónum eintaka um allan heim.
Drottning spennusögunnar
Nú einnig sem kilja
Bert er bestur
Bert er ástfanginn eina ferðina enn.
Til að fanga athygli stelpunnar skráir hann sig
í leiklistarhóp með kostulegum afleiðingum.
Prakkarinn Bert er samur við sig í þessari nýju bók.
Hvolpurinn Depill
pill er týndur og
amma hans, Doppa
að leita að honum.
örnin hjálpa Doppu
ð leita með því að
yfta flipum og sjá
hvað leynist undir
þeim.
Fróðleiksbók handa börnum
Vísindi og fræði kynnt á
auðskilinn og skemmtilegan
hátt. Nákvæmar myndir
sýna efnið í smáatriðum
og undir flipum leynast
spennandi þekkingarmolar.
Aðgengilegur texti sem
börnin lesa sjálf eða
er lesinn fyrir þau.
bokaforlagidbifrost@simnet.is
Sími 511 2400
De
m
er
B
a
l
Smiler getur breytt öllu
Í þessari bók lærir þú um mátt þess að brosa
og hve megnug við erum að skapa.
Sannar sögur höfundar krydda á
skemmtilegan hátt mátt þessarar speki.
„Hér er dásamleg staðfesting á því að hægt er
að finna – og svo sannarlega skapa – kærleika
og gleði í lífinu öllu, með verkfæri sem þig mun
undra hversu au ðvelt er að nota.
Þetta er bók sem getur breytt lífi allra,
alls staðar.“
Neale Donald Walsch, höfundur
metsölubókanna Samræður við Guð.
Bókin er bæði á íslensku og ensku.
Áttaðu þig á tilgangi lífs þíns
Loksins fáanleg á ný, nú í kilju
eftir höfund metsölubókarinnar
Mátturinn í núinu. Vegvísir að
hamingju og heilbrigði.
Megintilgangur þe ssarar bó kar er ek ki að „
bæta nýrri vitneskju eða skoðunum í huga
þinn eða reyna að sannfæra þig um eitt eða
neitt, heldur stuðla að vitundarbreytingu,
það er að segja vakningu.
Þessi bók fjallar um þig ...“
Harry prins, sem er fjórði í erfðaröð bresku krúnunn-
ar, og kærasta hans, Cressida Bonas, ætla að fara með
sambandið á næsta stig ef marka má breska slúður-
miðla.
Parið hefur verið saman um átján mánaða skeið.
Harry og Cressida voru fyrst mynduð saman opinber-
lega í skíðaferð í Verbier í janúar. Cressida, sem er
tuttugu og fjögurra ára, fékk samþykki konunglegu
fjölskyldunnar í október þegar hún eyddi helgi með
Harry, Karli Bretaprins og Kamillu, hertogaynju af
Cornwall, í Sandringham.
Þá fór Harry prins og hitti föður Cressidu, Jeffrey
Bonas, í fyrsta sinn fyrir nokkru síðan. Þeir spiluðu
saman golf og fór vel á með þeim.
„Höllin er í viðbragðsstöðu fyrir aðra trúlofun,“ segir
heimildarmaður Grazia í Bretlandi, en Harry var trú-
lofaður fyrrum unnustu sinni, Chelsy Davy, sem hann
var með í sjö ár. Parið hætti saman árið 2011.
„Það gæti verið von á tilkynningu um trúlofun fyrr
en fólk grunar,“ segir sami heimildarmaður Grazia,
en Harry er um þessar mundir í suðurskautsleiðangri
til styrktar góðu málefni. - ósk
Konungleg trúlofun á næsta leiti
Slúðurmiðlar í Bretlandi segja Harry prins ætla að biðja um hönd kærustunnar.
CRESSIDA BONAS Harry prins og Cressida kynntust í
gegnum Evgeníu prinsessu. Móðir Cressidu er lafði Mary-
Gaye Georgiana Lorna Curzo. Hún er hálfsystir leikkonunnar
Isabellu Anstruther-Gough-Calthorpe, sem er trúlofuð Sam
Branson, syni Richards Branson, eins þekktasta kaupsýslu-
manns í Bretlandi.