Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 122
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 94
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
17.00 Jólatónleikar Söngfjelagsins verða
haldnir í Grafarvogskirkju. Á efnisskránni
verða þekkt og sígild jólalög í bland við
nýrri tónlist frá ýmsum löndum.
22.00 Hljómsveitin Samsara verður með
útgáfutónleika á Bar 11. Ókeypis aðgangur.
22.00 Hljómsveitin Camp Keighley mun
spila á Dillon. Hljómsveitin spilar partýpop
af bestu gerð og hefur getið sér gott orð
fyrir líflega og skemmtilega sviðsfram-
komu.
22.00 Brother Grass heldur jólatónleika á
Café Rosenberg.
23.00 Pálmi Hjaltason skemmtir á Ob-La-
Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Hátíðir
14.00 Hugvísindasvið Háskóla Íslands
býður til orðahátíða. Á hátíðinni verða
veitt verðlaun fyrir tillögur að fegursta orð-
inu og fluttir verða fimm stuttir pistlar um
orðaleitina og sitthvað hnýsilegt sem þar
kom fram, m.a. um tillögur unga fólksins
og skoplegar tillögur.
Söngskemmtun
11.00 Stúfur og Grýla skemmta gestum í
Þjóðminjasafninu.
Opið hús
10.00 Nú er komið að síðasta opna húsi
á þessu ári hjá Félagi áhugamanna um
tréskurð. Nú er það heimsókn til Friðgeirs
Guðmundssonar og vinnuaðstöðu hans að
Melalind 12 í Kópavogi.
Fyrirlestrar
12.00 Dr. Terry Gunnell erindi í fyrir-
lestrarsal Þjóðminjasafnsins um íslenska
jólasiði í aldanna rás, frá heiðnum goðum
til hrekkjóttra íslenskra jólasveina. Fyrir-
lesturinn er á ensku. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Markaðir
13.30 Ferðaleikhúsið verður með stóran
Jóla-flóamarkað að Baldursgötu 37, 101
Reykjavík (í sjónmáli frá Skólavörðustíg).
Mikið úrval af fatnaði,
jólaskrauti og allt
til jólagjafa.
Markaðurinn
er opinn til
17.30.
Upplýsingar
um viðburði
sendist
á hvar@
frettabladid.is
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
16.00 Jólatónleikar Gospelkórs
Jóns Vídalíns í Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ. Flott gospel- og
jólalög með kór og hljómsveit
undir stjórn Þóru Gísladóttur.
Miðaverð 1.500 kr.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur
og kynnir lög af hljómplötum á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8.
17.00 Kammerkór Mosfellsbæj-
ar heldur sína árlegu aðventu-
tónleika í Guðríðarkirkju,
Kirkjustétt 8 í Grafarholti.
18.00 Jólatónleikar Söngfjelags-
ins verða haldnir í Grafarvogs-
kirkju. Á efnisskránni verða
þekkt og sígild jólalög í bland
við nýrri tónlist frá ýmsum
löndum.
20.00 Jólatónleikar Graduale
Nobili og Elísabetar Waage
hörpuleikara fara fram í Lang-
holtskirkju. Þar verður meðal
annars flutt hið víðfræga verk
Ceremony of Carols eftir Ben-
jamin Britten. Í ár eru liðin 100
ár frá fæðingu tónskáldsins.
20.00 Jólatónleikar Breiðfirð-
ingakórsins verða haldnir í
Fella- og Hólakirkju. Aðgangs-
eyrir kr. 2.000 en frítt fyrir 12
ára og yngri.
21.00 Jólatónleikar Malarinnar
fara fram í Malarkaffi á Drangs-
nesi. Söngkonan Sigríður
Thorlacius kemur fram ásamt
Guðmundi Óskari Guðmunds-
syni og Bjarna Frímanni Bjarna-
syni. Þau munu leika hugljúf
jólalög og koma fólki endanlega
í jólagírinn í hlýju og notalegu
umhverfi.
22.00 Brother Grass heldur
jólatónleika á Café Rosenberg.
Sýningar
13.00 Jólasýning Árbæjarsafns
hefur notið mikilla vinsælda
undanfarin ár og hefur hlotið
fastan sess í menningarlífi
borgarbúa á aðventunni. Ungir
sem aldnir geta rölt á milli
húsanna og fylgst með undir-
búningi jólanna eins og hann
var í gamla daga. Hrekkjóttir
jólasveinar gægjast á glugga og
kíkja í potta, börn og fullorðnir
fá að föndra og syngja jólalög.
Upplestur
16.00 Aðventuupplestrar
Gljúfrasteins halda áfram.
Úrvalið verður fjölbreytt
þennan sunnudaginn því lesið
verður upp úr skáldsögu, ljóð-
um, barnabók og þýddu verki.
Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Söngskemmtun
11.00 Þvörusleikir skemmtir í
Þjóðminjasafninu.
Kvikmyndir
14.00 Sýnd verður heimildar-
mynd um Kristínu Gunnlaugs-
dóttur í Listasafni Íslands og
strax að sýningu lokinni mun
Kristín fjalla um verk sín á sýn-
ingunni Sköpunarverk sem nú
stendur yfir í Listasafni Íslands
við Fríkirkjuveg.
15.00 Bandarísk kvikmynd frá
árinu 1977 sem byggð er á
ballettinum „Hnotubrjótnum“,
tónlist Tsjaíkovskíjs við ævintýri
Hoffmanns, verður sýnd í MÍR,
Hverfisgötu 105. Flytjendur eru
dansarar The American Ballet
Theatre og Mikhaíl Barishnikov.
Aðgangur ókeypis.
Dansleikir
20.00 Dansað verður í
félags heimili eldri borgara i
Stangarhyl 4 i Reykjavík. Dans-
hljómsveitin Klassík leikur fyrir
dansi. Dansað verður til 23.00.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. fyrir
félagsmenn en 1.800 fyrir gesti.
Allir velkomnir.
Markaðir
12.00 Jólaþorpið í Hafnarfirði
er í fullu fjöri. Fjölbreytt dag-
skrá fyrir börn og fullorðna.
Margt girnilegt að skoða og
versla í söluhúsunum. Þorpið er
opið til 17.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
LAUGARDAGUR
SU
N
N
U
D
AG
U
R