Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 132
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING |
BAKÞANKAR
Lilju Katrínar
Gunnarsdóttur
„Þetta er kjörið tækifæri fyrir
fólkið í blokkinni til þess að kynn-
ast betur,“ segir Katrín Sigur-
björg Sveinsdóttir sem stendur
fyrir smákökusamkeppni í blokk-
inni sinni, Kríuhólum 2, í Breið-
holti. Hún segir hugmyndina hafa
kviknað þegar hún bakaði smákök-
ur ásamt meðleigjanda sínum.
„Okkur datt þetta í hug þegar
við vorum að baka nokkrar sortir.
Okkur langaði að hafa samkeppni
fyrir allt Breiðholtið en sáum að
fyrirvarinn var of lítill. Við ákváð-
um því að byrja smærra og hafa
þetta bara í blokkinni okkar,“ segir
Katrín. Hún segir að þetta geti
verið góð leið til að brjóta ísinn
í samskiptum við nágrannana.
„Þetta er tilvalin leið til að koma
fólki saman og hrista upp í lífinu.
Við viljum auka félagsandann í
blokkinni. Hér búa rosalega marg-
ir en maður talar kannski bara við
nokkra íbúa. Vonandi gefur þetta
öllum tækifæri til að kynnast.“
Keppnin fer fram á fimmtudag-
inn í næstu viku. „Við ætlum að
halda hana í þvottahúsinu í blokk-
inni, þar er fín aðstaða. Við vonum
að þetta verði að árlegri hefð,“
segir Katrín. - kak
Góð leið til að kynnast fólkinu
Smákökusamkeppni íbúa í blokkinni að Kríuhólum 2 í Breiðholti vekur athygli.
VONGÓÐ
Katrín
vonar að
sem flestir
nágranna
sinna taki
þátt.
PHILOMENA
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
PIONEER KL. 6 - 8 / MANDELA KL. 10
THE HUNGER GAMES 2 KL 3 20 6 9 . . - -
FURÐUFUGLAR 2D KL. 3.20 Miðasala á: og
*LAUGARDAGUR **SUNNUDAGUR
THE HOBBIT 2 3D
FROSINN 2D
FROSINN 3D
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
CAPTAIN PHILIPS
FURÐURFUGLAR 2D
Ú ÓT RB 2D
KL. 8** (FORSÝNING - SUN.)
KL. 1 (TILBOÐ) 3.20 - 5.40
KL. 1 (TILBOÐ) 3.20 - 5.40
KL. 3 - 6 - 8 - 9 - 11*
KL. 2 - 5 - 8 - 11*
KL. 8 - 10.30*
KL. 9*
KL. 1 (TILBOÐ) 3.30 - 5.50
KL. 1 (TILBOÐ)
THE HOBBIT 2 3D
SKÁLMÖLD OG SINFÓ
PIONEER
MANDELA
THE HUNGER GAMES
HROSS Í OSS
FURÐUFUGLAR 2D
KL. 8* (FORSÝNING - LAU.)
KL. 9**
KL. 3.40 (TILBOÐ) 6 - 9
KL. 6 - 9
KL. 4.30* (TILBOÐ) 6** - 9
KL. 4 - 6
KL. 3.40 (TILBOÐ)
FORSÝND LAU. OG SUN. FRÁ FRAMLEIÐENDUM „TANGLED“
OG „WRECK-IT RALPH“
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
YFIR 32.000 MANNS Í AÐSÓ KN!
FROSINN 3D 1:45, 4
FROSINN 2D 1:45, 4
HUNGER GAMES 2 7, 8, 10
THE HOBBIT - BARA LAUG 10 - FORSÝNING
FURÐUFUGLAR 2D 2
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
S.B. - FBL
ÍSL TAL
T.V. - Bíóvefurinn.is
FORSÝNING
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
AKUREYRI
EMPIRETOTAL FILM
VARIETY
USA TODAY LOS ANGELES TIMES
3D
2D
2D
KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2D OG 3D
KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2D
KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2D KL. 15.40 HÁSKÓLABÍÓ Í 2D
2D
Inni í mér búa tvær ólíkar manneskjur. Önnur þessara manneskja elskar hið
óvænta, er lítið fyrir að plana langt fram
í tímann og á í engum erfiðleikum með að
taka epískar skyndiákvarðanir.
HIN manneskja er haldin einhverri sjúk-
legri þráhyggju gagnvart hefðum og
hjátrú.
SÚ týpa er með sléttar tölur á heilanum.
Hún verður alltaf að hafa hljóðstyrkinn
á sjónvarpinu á sléttri tölu. Hún borðar
alltaf tvö M&M í einu og þau verða að
vera í sama lit. Hún biður til Guðs í
hvert einasta sinn áður en hún leikur
á sviði og hún á mjög, mjög, mjög erf-
itt með að borða kökur og sætabrauð
með skeið. Gaffall skal það vera!
NÚ er sá tími genginn í garð þar
sem hefðarperrinn er á yfirsnúningi.
Það má alls ekki byrja að skreyta fyrr
en á fyrsta sunnudegi í aðventu. Tja,
nema jólatréð sem á að sjálfsögðu
að skreyta á Þorláksmessukvöld. Á
þessum fyrsta sunnudegi í aðventu
eru líka bakaðar tvær smákökusortir og
piparkökuhúsið skreytt. Og þetta pipar-
kökuhús er ekki borðað hvenær sem er. Ó,
nei. Það skal borðað á þrettándanum. Og
perrinn getur ekki farið að sofa á þrett-
ándanum fyrr en hvert einasta sönnunar-
snifsi um jólin er komið niður í kassa og
inn í geymslu. Á aðfangadag og jóladag má
alls ekki smakka áfengi í kringum þessa
týpu og þegar klukkan slær miðnætti á
gamlárs kvöld skulu allir hennar nánustu
vera kysstir í bak og fyrir á meðan þessi
tjúnaði karakter heldur aftur af tárunum.
ÞAÐ er bara ein manneskja sem getur
dílað við þennan maníska hefðarsjúkling
og sannfært hann um að breyta út af van-
anum. Það er dóttir mín. Ég fæ ekki að
hafa hana eins mikið og ég vil og því þarf
að haga hefðunum eftir henni.
Í ár verður jólatréð skreytt nokkrum
dögum fyrir Þorláksmessu og ég fæ ekki
að kyssa hana í bak og fyrir þegar nýja
árið gengur í garð. En ég fæ að sjá þegar
hún opnar pakkana sína á aðfangadag.
SKÍTT með hefðir – hún er þess virði að
brjóta allar reglur fyrir.
Hefðarperri á yfi rsnúningi