Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 64
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4
FJÖLSKYLDUKONA Um helgina ætlar Lalla að sinna jólaundirbúningi heima og njóta lífsins með þremur sonum sínum. Í kvöld er
spilakvöld hjá fjölskyldunni með bróður Löllu og hans fjölskyldu. MYND/DANÍEL
Ég er opin með mína trú og hef ekkert að fela. Ég er með þetta prestshjarta og langar
að þjóna og hjálpa öðrum,“ segir
Lalla sem tók lifandi trú þegar
hún varð 25 ára og hélt utan til
Bandaríkjanna þar sem hún lauk
meistaraprófi í guðfræði. Að námi
loknu starfaði Lalla sem prestur
í Boðunarkirkjunni en vinnur nú
við kristilega samskiptaþjálfun og
pararáðgjöf.
„Í sögu heimsins hefur aldrei
verið jafn mikið um hjónaskilnaði
og nú. Af öllum skilnuðum sem
fram fara sækja konur í 85 prósent
tilvika um skilnað vegna þess að
þær fá ekki tilfinningalega svörun
í hjónabandi sínu og finnst mað-
urinn ekki skilja sig,“ segir Lalla
sem hefur rannsakað samskipti
kynjanna í árafjöld og hefur vakið
athygli fyrir pistla sína um sam-
skipti kynjanna og kristna trú á
YouTube.
„Margir eiga mjög brotið líf
vegna erfiðra samskipta í hjóna-
bandi og samböndum og sjálf
hef ég upplifað skilnað sem var
sársaukafyllsta reynsla sem ég
hef gengið í gegnum. Því veit ég af
eigin reynslu að persónulegt líf og
hjónaband skiptir mestu í daglegri
tilveru fólks og þegar það tvennt
er ekki í lagi þýðir lítt að prédika
um annað. Það er hjartað sem þarf
að vera heilt,“ segir Lalla.
SYNDIR HAFA ÁHRIF
Lalla er dóttir Ólafs Laufdal og
Kristínar Ketilsdóttur sem ráku
skemmtistaðina Hollywood,
Broadway og Hótel Ísland á árum
áður.
„Ég byrjaði fjórtán ára að vinna
á skemmtistöðum foreldra minna
og lærði til þjóns. Á sama tíma var
ég saklaus unglingur og óneitan-
lega sérstakt að eiga mestallt líf
sitt inni á skemmtistöðum. Ég er
þakklát fyrir þá lífsreynslu; ég full-
orðnaðist við það að mörgu leyti,
lærði að taka ábyrgð og sá inn í
heim fullorðinna sem var mikill
skóli,“ segir Lalla sem var mjög
trúuð á æskuárunum.
„Þegar unglingsárunum sleppti
var ég andlega leitandi og sótti
mikið til miðla og spákvenna. Síð-
ar fann ég sterka þörf til að snúa
mér að Biblíunni og fór á Biblíu-
námskeið þar sem ég heillaðist af
boðskap hennar, var tilbúin og hef
ekki snúið aftur.“
Lalla segir trúna vera þröngan
veg að feta.
„Margir halda að syndir þeirra
hafi engin áhrif. Dæmi um slíkt er
framhjáhald sem margir halda að
komist ekki upp en þegar upp er
staðið eyðileggur það sálina og
grefur undan persónuleikanum,
hjónabandinu, fjölskyldunni og
öllu öðru. Lausnin felst í að viður-
kenna syndirnar og vinna með
hjartað. Í dag eru margir uppteknir
í líkamsrækt en ég vinn með tilfinn-
ingalegt heilbrigði og finnst tími til
kominn að sinna sálinni líka, skoða
hvað þar er að gerast og af hverju
svo mörgum líður illa.“
KYNLÍF LÍMIR EKKI KARLA
Löllu er umhugað um velferð
kvenna.
„Konur eru miklar tilfinninga-
verur með flögrandi tilfinningar
á meðan karlar setja tilfinningar
sínar í box. Þær leita að tilfinn-
ingalegri nálægð við karlmenn
en þegar þær ná ekki að heilla þá
tilfinningalega nota þær líkama
sinn sem lím og bjóða honum
kynlíf í trú um að gott kynlíf haldi
manninum hjá þeim. Það gæti
ekki verið meiri misskilningur því
karlmenn tengja ekki kynlíf og til-
finningar saman til að byrja með.
Þeir geta fengið fullkomna útrás í
kynlífi án þess að vera ástfangnir
en þegar kona stundar kynlíf með
karli gerist eitthvað efnafræðilegt
hjá henni, hún fellur fyrir honum
og verður tilfinningalega háð
honum,“ segir Lalla og leggur til
að konur reyni að tengjast körlum
tilfinningalega til að fá þá aðdáun
og virðingu sem þær eiga skilið.
„Það er hagstætt fyrir karla að
geta fengið ódýrt kynlíf og labba
svo burt á þeim forsendum að
þeir séu ekki tilbúnir í samband.
Því segi ég að konur eigi ekki að
gefa kynlíf nema samningur sé á
borðinu og hjónaband í vændum.
Konur vita líka að kynlíf er ekki
svarið. Þær þurfa að heiðra eigin
tilfinningar og fyrst þá eru þær
komnar með gullpálmann í hendur
því allir karlmenn vilja vera með
þannig konu.“
Að sögn Löllu er tilfinninga-
heimur karla og kvenna gjörólíkur.
„Mesti misskilningur á milli
kynja er að konur koma fram við
karla eins og þeir séu konur og
karlar við konur eins og þær séu
karlar. Mörg hjón eru gift í áratugi
en tala aldrei saman því þau
kunna ekki að nálgast hvort ann-
að. Kynin eru tvö með ólíka tilfinn-
ingalega tjáningu og hana þarf að
kenna. Lífið er gott þegar maður á
í ástarsambandi sem gefur tilfinn-
ingalega svörun en margir fá ekki
þann skilning hjá mökum sínum
og eru því rosalega einmana, ekki
síst karlar. Konur nota vinkonur
sínar og hætta að tala við menn-
ina en það er mjög misráðið því
helgast af öllu er hjónabandið og
þar á mesta nándin að vera.“
DROTTNING Í STAÐ BETLARA
Lalla er jafnréttissinni en segir
konur þurfa að leyfa sér að vera
konur.
„Við þurfum að hætta að vera
töff og senda í staðinn út skila-
boð um að við séum konur og það
eigi að koma fram við okkur eins
og konur. Konur geta allt sem þær
vilja en geta aldrei orðið eins og
karlar. Þær eru hamingjusamar
þegar þær leyfa karlinum að vera
leiðtoginn á heimilinu. Þegar hann
er sterkur nýtur hann virðingar
og þær laðast meira að honum
kynferðislega. Á móti missa þær
virðingu fyrir körlum þegar þær
ná að sveigja þá, stjórna, skipa
og stýra. Með þessu er ég ekki
að segja konum að vera undir-
gefnar og hlýðnar og í raun hjálpa
ég körlunum frekar að vera ekki
of undirgefnir því konur taka alls
staðar stjórnina.“
Lalla segist þakklát fyrir að hafa
átt þátt í að bjarga hjónabönd-
um og samböndum og upplifa
þegar kona breytist úr því að hafa
brotna sjálfsmynd yfir í að líða
sem drottningu.
„Ef kona gefur sig ódýrt og betl-
ar ást einhvers er hún lítið annað
en betlari. Hún þarf að læra að
vera drottning og þá kemur rétti
maðurinn til hennar.“
Fróðleikur og upplýsingar um
námskeið og ráðgjöf Löllu Laufdal
er á Facebook, undir Samskipta-
formúlan og Aðdráttarafl kvenna.
■ thordis@365.is
HAMINGJA KVENNA
KÆRLEIKUR Ragnheiður Ólafsdóttir er Lalla Laufdal; kristniboði og prestur
með áherslu á heilbrigð samskipti kynjanna. Hún segir hjónabandið heilagt.
Nýtt - rafmagns lyftistólar
Teg. Giulia 3 - 1 - 1 og 3 - 2 - l leður.
Rafmagns lyftistólar með skemmal
Reykjavíkurveg 66 220 Hafnarfirði sími 565 4100
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Tel: +354 517 4300 | www.geysirbistro.is
SALTFISKUR
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450
Vefverslun: www.spilavinir.is - sendum um allt land
Við aðstoðum þig við að velja spilin.
Einar einstaki kemur í
búðina og sýnir einstök
töfrabrögð (en ekki hvað!).
—> Kl. 12 og 15:30
Úrvalið er hjá okkur!
Se
nd
um
um
al
lt l
an
d
ww
w.
sp
ila
vin
ir.i
s
8+ 2-12 30+
15%
afsláttur
14.-15. des.