Fréttablaðið - 14.12.2013, Side 126
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 98
400.000
EINTÖK ÁRIÐ 1993
70% erlendar plötur og
30% íslenskar plötur.
644.000
EINTÖK ÁRIÐ 2001
820.000
EINTÖK ÁRIÐ 2005
45% erlendar plötur og
55% íslenskar plötur.
300.000
EINTÖK ÁRIÐ 2012
20% erlendar plötur og
80% íslenskar plötur.
~450.000
EINTÖK ÁRIÐ 2013
20% erlendar og
80% íslenskar plötur
Plötusala á Íslandi hefur verið
reikandi á milli ára en þó hefur
sala á íslenskum titlum að mestu
haldist óbreytt undanfarin ár.
Fréttablaðið fór á stúfana og
kannaði plötusölu á Íslandi síð-
astliðin tuttugu ár.
Fyrir tuttugu árum var tón-
listarlífið á Íslandi virkilega
blómlegt og fjölbreytt. Fjöl-
margar tímamótaplötur komu
út og margar þeirra hafa staðist
tímans tönn með miklum sóma.
Stærsta nafn íslenskrar tónlist-
arsögu á alþjóðavísu, Björk, gaf
árið 1993 út sína fyrstu stóru
plötu sem ber nafnið Debut og
fór hún sigurför um heiminn.
Bubbi Morthens var ákaflega
virkur og gaf út plötuna Lífið
er ljúft, ásamt því að gefa út
plötuna Svefnvana með hljóm-
sveit sinni og Rúnars Júlíusson-
ar, GCD. Landslið poppara var
einnig afkastamikið á árinu en
Páll Óskar, Stjórnin, Todmobile,
Ný dönsk og fleiri gáfu út plötur
þetta ár.
„Það sem er forvitnilegt er það
að plötusala er mjög svipuð í dag
og árið 1993 en hún náði hámarki
árið 2005,“ segir Jónatan Garð-
arsson tónlistarsérfræðingur og
rokksögukennari. Sala á plöt-
um, til dæmis árið 2011 og 2012
er ekki jafn dreifð og hún var á
árum áður, líkt og Mugison og
Ásgeir Trausti sanna.
Árið 1993 var algengt að lista-
menn væru að selja um fimm þús-
und eintök, sem gefur gullplötur.
„Þetta ár fóru ellefu plötur í gull,“
bætir Jónatan við. Heildarplötu-
salan var um þrjú hundruð þúsund
eintök en einungis þrjátíu prósent
af sölunni voru íslenskar plötur.
Kristján Jóhannsson seldi flest
eintök af plötunni sinni, Af lífi og
sál, þetta ár eða um fimmtán þús-
und eintök en rétt á eftir honum
kom Bubbi Morthens með þrettán
þúsund eintök seld af plötunni
Lífið er ljúft. Plöturnar Debut
með Björk, Spillt með Todmobile,
Desember með Siggu Beinteins og
Ekki þessi leiðindi með Bogomil
Font og Milljónamæringunum
seldust í um sjö þúsund eintökum
þetta ár.
Árið 2005 var metsöluár í plötu-
sölu á Íslandi, en þá var heildar-
plötusalan 820 þúsund eintök og
hlutfallið af því var 55 prósent
íslenskt efni og 45 prósent erlent
efni.
Mest seldu plöturnar voru plata
Garðars Thors Cortes, sem er
honum samnefnd, og platan Þú átt
mig ein með Óskari Péturssyni
Álftagerðisbróður, en þær seldust
báðar í fimmtán þúsund eintökum.
Björgvin Halldórsson seldi tólf
þúsund eintök af plötunni Ár og
öld og þá seldi Sigur Rós tíu þús-
und eintök af plötunni Takk.
Árið 2012 var heildarplötusalan
um þrjú hundruð þúsund eintök
sem telst ansi lítið, en með til-
komu Spotify og annarra tónlist-
arveitna hefur plötusala dregist
mikið saman. Íslensk tónlist var
rúmlega áttatíu prósent seldrar
tónlistar.
Ásgeir Trausti seldi 23 þúsund
eintök af plötu sinni Dýrð í dauða-
þögn en hún er komin vel yfir
þrjátíu þúsund eintök í dag. Of
Monsters and Men seldi ellefu þús-
und eintök af plötunni My Head Is
an Animal en það er þó athyglis-
vert að hún kom út árið 2011.
Retro Stefson seldi 7.500 eintök af
samnefndri plötu og Helgi Björns-
son seldi fimm þúsund eintök af
plötunni Heim í Heiðardalinn.
Í ár tróna Baggalútsmenn á
toppnum með plötuna Mamma
þarf að djamma, en sem stendur
hafa um sex þúsund eintök selst.
Plötur Of Monsters and Men og
Ásgeirs Trausta eru komnar yfir
fimm þúsund seld eintök á árinu.
Aðrar plötur sem nálgast gullplötu
í ár eru platan Jólakveðja sem
Sigríður Thorlacius sendi frá sér,
Kaleo með samnefndri hljómsveit
og Helgi syngur Hauk með Helga
Björnssyni. gunnarleo@frettabladid.is
Tuttugu ár af tónlist
Plötusala á Íslandi hefur breyst mikið á undanförnum árum. Plötusalan á Íslandi
er þó svipuð í dag og hún var árið 1993. Tónlistarveitur á netinu hafa áhrif.
HEILDARPLÖTUSALA Á ÍSLANDI EFTIR ÁRI
MEST SELDU PLÖTUR Á ÁRI
Bubbi
Morthens
Lífið er ljúft
13.000
eintök
ÁR
2011
2012
1993
Haglél Mugison
32.000 eintök
Ásgeir
Trausti
Dýrð í
dauðaþögn
23.000 eintök
Garðar
Thor
Cortes
Cortes
15.000
eintök
Kristján
Jóhannsson
Af lífi og sál
15.000
eintök
KK band Hotel Föroyar
6.000 eintök
Todmobile Spillt
Björk Debut
Sigga Beinteins Desember
Bogomil Font og Milljónamæringarnir
Ekki þessi leiðindi
Saman um 7.000 eintök
Óskar Pétursson Þú átt mig ein
15.000 eintök
Björgvin Halldórsson Ár og öld
12.000 eintök
Sigur Rós Takk
10.000
eintök
Helgi Björns
Yfir Esjuna
10.000
eintök
Baggalútur
Mamma þarf
að djamma
6.000 eintök
2013ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU
Of Monsters and
Men My Head Is an
Animal
11.000 eintök
Retro Stefson Retro Stefson
7.500 eintök
Helgi Björns
Heim í heiðardalinn
5.000 eintök
Of Monsters and Men
og Ásgeir Trausti
Báðar komnar vel yfir
5.000 eintök
Sigga Thorlacius Jólakveðja,
Kaleo Kaleo, Helgi Björns Helgi syngur
Hauk.
Nálgast allar 5.000 eintök
Komin vel
yfir 30.000
eintök
í dag
Platan kom
út árið 2011
en er samt
næstmest selda
platan árið
2012
Endar
líklega í
kringum
8.000
2005
Auður Karlsdottir, er komin á
101 Hárhönnun
Skólavörðustíg 8.
Svanhildur Ósk Guðjónsdóttir,
er komin aftur til starfa eftir
fæðingarorlof.
Verið velkomin.
S:551-3130
GLEÐILEG JÓL
Allar vörur á
2000kr.
Siðasti dagur
á morgun
Mind OUTLET.