Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 116
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 88
Magnús R. Einarsson var ráðinn
tímabundið sem dagskrárstjóri
útvarpssviðs RÚV, ásamt Þóru
Pétursdóttur rekstrarstjóra, eftir
að umsóknarferlið var stöðvað
og því frestað að ráða dagskrár-
stjóra. Magnús var meðal umsækj-
enda um starfið en fékk þó ekki
ráðningu þrátt fyrir tæpa 29 ára
reynslu sem dagskrárgerðarmað-
ur í útvarpi. Kann hann einhverja
skýringu á því hvers vegna hann
fékk ekki stöðuna? „Ég vissi vel
þegar ég sótti um að ég fengi hana
ekki. Sennilega er ég ekki af réttu
kyni fyrir utan það að ég er ekki
með háskólapróf. Umsóknin var
bara yfirlýsing um að ég væri til-
búinn til að taka starfið að mér og
treysti mér til að takast á við það.“
Þú hafðir verið að vinna með
fyrrverandi dagskrárstjóra, Mar-
gréti Marteinsdóttur, að skipulagi
breytinga á dagskrá Rásar 1, var
ekki eðlilegt að þú héldir því starfi
áfram? „Jú, það er rétt. Ég var
aðstoðarmaður Margrétar eftir að
hún tók við og við vorum búin að
vera að skoða töluverðar breyting-
ar á dagskrá Rásar 1. Þá vorum við
helst að horfa til módels sem sett
var upp 1989 en gekk ekki upp þá.
Við útfærðum þetta betur og horfð-
um líka til þess hvernig bandarískt
almannaútvarp er upp sett og feng-
um ýmsar hugmyndir þaðan.“
Litlar áherslubreytingar
Nú ertu búinn að kynna fyrirhug-
aðar dagskrárbreytingar fyrir
stjórn og starfsfólki RÚV, hverjar
eru helstu áherslubreytingarnar?
„Form þeirrar dagskrár sem verið
hefur hingað til er ævagamalt og
miðast við aðra tækni en við höfum
í dag. Það sem gerði þessa breyt-
ingu spennandi í okkar augum var
að tæknin hefur breyst svo hratt
og mikið að það er hægt að gera
allt aðra hluti í dagskrá en áður.
Stafræna byltingin hefur gjör-
breytt útvarpinu. Í gamla kerfinu
réðst það stundum meira af lengd
þátta en innihaldi hvernig þeim
var raðað saman og áferðin varð
því dálítið köflótt.
Áherslubreytingarnar eru hins
vegar í sjálfu sér litlar sem engar.
Áherslan er sem fyrr á íslenska
menningu og við sinnum henni
aðallega á þremur póstum; það er
útvarpssagan, það er Sinfónían og
það er útvarpsleikhúsið. Þessir þrír
póstar hafa lengi verið meginstoð-
irnar í menningardagskrá Rásar
1 og verða það áfram. Áferð dag-
skrárinnar hins vegar breytist á
þann hátt að hlutverk þula verð-
ur skilgreint upp á nýtt, það verða
ekki lengur dagskrárþulir, einungis
auglýsingaþulir. Deginum verður
skipt upp í fjóra fleka með maga-
sínþáttum sem síðan eru fleygaðir
með tónlistarþáttum. Kvöldin verða
svo helguð klassískri tónlist. Þessi
dagskrárrammi sem við settum
fram er hugsaður sem vinnuplagg
sem starfsmenn munu svo taka þátt
í að fullmóta á næstu vikum.“
Það stóð sem sagt aldrei til að
hætta að útvarpa tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, þrátt fyrir
háværar fullyrðingar um annað?
„Nei, það stóð aldrei til. Það er
mikill misskilningur.“ Hvað með
Víðsjá, hverfur hún? „Nei, þvert á
móti. Víðsjá verður áfram á dag-
skrá og þátturinn meira að segja
lengdur um helming og bætt við
mannskap í gerð hans.“
Rekið úr öllum deildum
Þannig að þessi ramakvein um
eyðileggingu menningarumfjöll-
unar Rásar 1 eiga ekki við nein rök
að styðjast? „Alls ekki. Auðvitað
verður þetta ekki eins og það var,
enda ekkert keppikefli að halda öllu
óbreyttu. Það var stefnt að því að
þessar breytingar gengju í gegn
um mitt næsta ár, enda eru þær
mjög nauðsynlegar, en auðvitað
var óheppilegt að þær skyldi bera
að með þessum hætti.“
Ein fullyrðingin úr umræðunni
er að það hafi engin hugsun legið að
baki brottrekstrum og að allir sem
reknir voru hafi haft bein afskipti
af dagskrárgerð. Er það rétt? „Nei,
það er enn einn misskilningur-
inn sem hefur fengið vængi. Það
lá margra mánaða vinna að baki
þessum uppsögnum og fólki var
fækkað í öllum deildum RÚV nema
nýmiðla deild, enda vinna þar bara
fjórir starfsmenn.“
Þannig að starfsmenn stofnun-
arinnar ljúga því blákalt að þessar
breytingar hafi komið sem þruma
úr heiðskíru lofti? „Ekki myndi
ég nú segja það. Ég held það hafi
gripið um sig örvænting og okkur
fannst öllum að Rás 1 væri í rúst.
Drukknandi fólk grípur hvaða
reipi sem er og það var eðlilegt að
það krefðist svara sem ekki voru í
boði þessa daga. Auðvitað var samt
verið að vinna hörðum höndum að
því að ljúka við uppsetningu nýs
dagskrárplans sem hafði verið í
undirbúningi lengi.“
Hagsmunabarátta
Manni hefur líka sýnst að það séu
einkum listamenn sem fara fyrir
þessum mótmælum, eru þeir ekki
bara í grímulausri hagsmunabar-
áttu þar sem þeir óttast að missa
spón úr aski sínum? „Örugglega
óttast þeir að missa spón úr aski
sínum þar sem útvarpið hefur verið
gríðarlegur vettvangur fyrir þá
bæði sem spegill, eða auglýsinga-
gluggi, og vinnuveitandi. Þannig að
það er ekkert skrítið þótt þeim sé
annt um dagskrá þess. Hins vegar
fannst manni umræðan reyndar
stundum snúast um það hvar þeir
ættu nú að fá hundraðþúsundkall-
inn sinn og að þeim væri meira
umhugað um eigin buddu en fram-
tíð Ríkisútvarpsins, en ég ætla
þeim það nú ekki.“
Umræðan hljómar líka ekki
sannfærandi sem barátta fyrir
almannaútvarpi, er ekki verið að
heimta elítuútvarp? „Það er dálít-
ið vandratað einstigi. Ríkisútvarp-
ið á auðvitað að vera fyrir allan
almenning, en það hefur líka ríkt
menningarhlutverk sem því ber að
sinna og mun halda áfram að sinna.
Hlustunartölur segja ekki alla
söguna. Það hafa allar einkarekn-
ar útvarpsstöðvar sína markhópa
og sérhanna þætti sína með það í
huga að höfða til ákveðins aldurs-
hóps eða kyns. En við á Rás 1 og
Rás 2 gerum það ekki. Við höfum
bara einn markhóp; viti borið fólk.“
fridrikab@frettabladid.is
Menningin á Rás 1
aukin en ekki eytt
Niðurskurðurinn á RÚV og „rústun“ Rásar 1 hefur verið mál málanna í um-
ræðunni undanfarið. Ýmsir hafa þó fl utt mál sitt meira af kappi en forsjá.
Magnús R. Einarsson, starfandi dagskrárstjóri útvarpsins, varpar ljósi á málið.
Leikhópurinn Á senunni sýnir um helgina í Tjarnarbíói Ævintýrið um
Augastein, sem frumsýnt var fyrir 11 árum. Í fyrra urðu kynslóða-
skipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson tók þá við af Felix
Bergssyni, sem hafði borið hana uppi frá byrjun.
Felix Bergsson skrifaði Ævintýrið um Augastein í samstarfi við Kol-
brúnu Halldórsdóttur leikstjóra og Helgu Arnalds brúðulistamann.
Brúður og leikmynd eru eftir Helgu Arnalds, lýsingu hannaði Jóhann
Bjarni Pálmason og tónlistina útsetti Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson fyrir
Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar. Hljóðmynd verksins er
unnin af Sveini Kjartanssyni. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.
Augasteinn í Tjarnarbíói
Aðventuklassíker í nýjum búningi.
NÝ KYNSLÓÐ Orri Huginn Ágústsson hefur tekið við af Felix Bergssyni sem einleikari í
Ævintýrinu um Augastein.
DAGSKRÁRSTJÓRINN Magnús fullyrðir að menningunni verði síst verr sinnt með nýju dagskrárplani en áður var gert. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING
www.tjarnarbio.isMiðasalan er opin frá kl. 15:00-18:00 þri-fösmidasala@tjarnarbio.is / 527-2100 / midi.is