Fréttablaðið - 14.12.2013, Side 116

Fréttablaðið - 14.12.2013, Side 116
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 88 Magnús R. Einarsson var ráðinn tímabundið sem dagskrárstjóri útvarpssviðs RÚV, ásamt Þóru Pétursdóttur rekstrarstjóra, eftir að umsóknarferlið var stöðvað og því frestað að ráða dagskrár- stjóra. Magnús var meðal umsækj- enda um starfið en fékk þó ekki ráðningu þrátt fyrir tæpa 29 ára reynslu sem dagskrárgerðarmað- ur í útvarpi. Kann hann einhverja skýringu á því hvers vegna hann fékk ekki stöðuna? „Ég vissi vel þegar ég sótti um að ég fengi hana ekki. Sennilega er ég ekki af réttu kyni fyrir utan það að ég er ekki með háskólapróf. Umsóknin var bara yfirlýsing um að ég væri til- búinn til að taka starfið að mér og treysti mér til að takast á við það.“ Þú hafðir verið að vinna með fyrrverandi dagskrárstjóra, Mar- gréti Marteinsdóttur, að skipulagi breytinga á dagskrá Rásar 1, var ekki eðlilegt að þú héldir því starfi áfram? „Jú, það er rétt. Ég var aðstoðarmaður Margrétar eftir að hún tók við og við vorum búin að vera að skoða töluverðar breyting- ar á dagskrá Rásar 1. Þá vorum við helst að horfa til módels sem sett var upp 1989 en gekk ekki upp þá. Við útfærðum þetta betur og horfð- um líka til þess hvernig bandarískt almannaútvarp er upp sett og feng- um ýmsar hugmyndir þaðan.“ Litlar áherslubreytingar Nú ertu búinn að kynna fyrirhug- aðar dagskrárbreytingar fyrir stjórn og starfsfólki RÚV, hverjar eru helstu áherslubreytingarnar? „Form þeirrar dagskrár sem verið hefur hingað til er ævagamalt og miðast við aðra tækni en við höfum í dag. Það sem gerði þessa breyt- ingu spennandi í okkar augum var að tæknin hefur breyst svo hratt og mikið að það er hægt að gera allt aðra hluti í dagskrá en áður. Stafræna byltingin hefur gjör- breytt útvarpinu. Í gamla kerfinu réðst það stundum meira af lengd þátta en innihaldi hvernig þeim var raðað saman og áferðin varð því dálítið köflótt. Áherslubreytingarnar eru hins vegar í sjálfu sér litlar sem engar. Áherslan er sem fyrr á íslenska menningu og við sinnum henni aðallega á þremur póstum; það er útvarpssagan, það er Sinfónían og það er útvarpsleikhúsið. Þessir þrír póstar hafa lengi verið meginstoð- irnar í menningardagskrá Rásar 1 og verða það áfram. Áferð dag- skrárinnar hins vegar breytist á þann hátt að hlutverk þula verð- ur skilgreint upp á nýtt, það verða ekki lengur dagskrárþulir, einungis auglýsingaþulir. Deginum verður skipt upp í fjóra fleka með maga- sínþáttum sem síðan eru fleygaðir með tónlistarþáttum. Kvöldin verða svo helguð klassískri tónlist. Þessi dagskrárrammi sem við settum fram er hugsaður sem vinnuplagg sem starfsmenn munu svo taka þátt í að fullmóta á næstu vikum.“ Það stóð sem sagt aldrei til að hætta að útvarpa tónleikum Sin- fóníuhljómsveitarinnar, þrátt fyrir háværar fullyrðingar um annað? „Nei, það stóð aldrei til. Það er mikill misskilningur.“ Hvað með Víðsjá, hverfur hún? „Nei, þvert á móti. Víðsjá verður áfram á dag- skrá og þátturinn meira að segja lengdur um helming og bætt við mannskap í gerð hans.“ Rekið úr öllum deildum Þannig að þessi ramakvein um eyðileggingu menningarumfjöll- unar Rásar 1 eiga ekki við nein rök að styðjast? „Alls ekki. Auðvitað verður þetta ekki eins og það var, enda ekkert keppikefli að halda öllu óbreyttu. Það var stefnt að því að þessar breytingar gengju í gegn um mitt næsta ár, enda eru þær mjög nauðsynlegar, en auðvitað var óheppilegt að þær skyldi bera að með þessum hætti.“ Ein fullyrðingin úr umræðunni er að það hafi engin hugsun legið að baki brottrekstrum og að allir sem reknir voru hafi haft bein afskipti af dagskrárgerð. Er það rétt? „Nei, það er enn einn misskilningur- inn sem hefur fengið vængi. Það lá margra mánaða vinna að baki þessum uppsögnum og fólki var fækkað í öllum deildum RÚV nema nýmiðla deild, enda vinna þar bara fjórir starfsmenn.“ Þannig að starfsmenn stofnun- arinnar ljúga því blákalt að þessar breytingar hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti? „Ekki myndi ég nú segja það. Ég held það hafi gripið um sig örvænting og okkur fannst öllum að Rás 1 væri í rúst. Drukknandi fólk grípur hvaða reipi sem er og það var eðlilegt að það krefðist svara sem ekki voru í boði þessa daga. Auðvitað var samt verið að vinna hörðum höndum að því að ljúka við uppsetningu nýs dagskrárplans sem hafði verið í undirbúningi lengi.“ Hagsmunabarátta Manni hefur líka sýnst að það séu einkum listamenn sem fara fyrir þessum mótmælum, eru þeir ekki bara í grímulausri hagsmunabar- áttu þar sem þeir óttast að missa spón úr aski sínum? „Örugglega óttast þeir að missa spón úr aski sínum þar sem útvarpið hefur verið gríðarlegur vettvangur fyrir þá bæði sem spegill, eða auglýsinga- gluggi, og vinnuveitandi. Þannig að það er ekkert skrítið þótt þeim sé annt um dagskrá þess. Hins vegar fannst manni umræðan reyndar stundum snúast um það hvar þeir ættu nú að fá hundraðþúsundkall- inn sinn og að þeim væri meira umhugað um eigin buddu en fram- tíð Ríkisútvarpsins, en ég ætla þeim það nú ekki.“ Umræðan hljómar líka ekki sannfærandi sem barátta fyrir almannaútvarpi, er ekki verið að heimta elítuútvarp? „Það er dálít- ið vandratað einstigi. Ríkisútvarp- ið á auðvitað að vera fyrir allan almenning, en það hefur líka ríkt menningarhlutverk sem því ber að sinna og mun halda áfram að sinna. Hlustunartölur segja ekki alla söguna. Það hafa allar einkarekn- ar útvarpsstöðvar sína markhópa og sérhanna þætti sína með það í huga að höfða til ákveðins aldurs- hóps eða kyns. En við á Rás 1 og Rás 2 gerum það ekki. Við höfum bara einn markhóp; viti borið fólk.“ fridrikab@frettabladid.is Menningin á Rás 1 aukin en ekki eytt Niðurskurðurinn á RÚV og „rústun“ Rásar 1 hefur verið mál málanna í um- ræðunni undanfarið. Ýmsir hafa þó fl utt mál sitt meira af kappi en forsjá. Magnús R. Einarsson, starfandi dagskrárstjóri útvarpsins, varpar ljósi á málið. Leikhópurinn Á senunni sýnir um helgina í Tjarnarbíói Ævintýrið um Augastein, sem frumsýnt var fyrir 11 árum. Í fyrra urðu kynslóða- skipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson tók þá við af Felix Bergssyni, sem hafði borið hana uppi frá byrjun. Felix Bergsson skrifaði Ævintýrið um Augastein í samstarfi við Kol- brúnu Halldórsdóttur leikstjóra og Helgu Arnalds brúðulistamann. Brúður og leikmynd eru eftir Helgu Arnalds, lýsingu hannaði Jóhann Bjarni Pálmason og tónlistina útsetti Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson fyrir Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar. Hljóðmynd verksins er unnin af Sveini Kjartanssyni. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. Augasteinn í Tjarnarbíói Aðventuklassíker í nýjum búningi. NÝ KYNSLÓÐ Orri Huginn Ágústsson hefur tekið við af Felix Bergssyni sem einleikari í Ævintýrinu um Augastein. DAGSKRÁRSTJÓRINN Magnús fullyrðir að menningunni verði síst verr sinnt með nýju dagskrárplani en áður var gert. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNING www.tjarnarbio.isMiðasalan er opin frá kl. 15:00-18:00 þri-fösmidasala@tjarnarbio.is / 527-2100 / midi.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.