Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 36
Sigríður Örnólfsdóttir hefur skýrt markmið með því að segja sögu sína. Sögu sem fáir eru tilbúnir til að deila með almenningi. „Ég segi hana ekki síst vegna fólks-
ins sem þjáist vegna geðraskana af
ýmsu tagi. Vegna þess að mér finnst
að margt megi bæta,“ segir Sigríð-
ur, sem sjálf er greind með geðklofa
og á að baki ítrekaðar innlagnir á
geðdeild. Sigríður hefur tvívegis
verið nauðungarvistuð á sjúkrahúsi,
en hún telur nauðsynlegt að breyta
viðbrögðum kerfisins þegar fólk
veikist alvarlega af geðsjúkdómum.
Kennari, rithöfundur og miðill
Sigríður starfaði lengst af sem
aðstoðarleikskólastjóri, en einnig
sem sérkennari á leikskóla. Hún
hætti svo alfarið á vinnumarkaði
fyrir tveimur árum. „Það fer svo
mikil orka í þetta. Ég forðast til
dæmis margmenni eins og í versl-
unarmiðstöðvum,“ segir Sigríður,
sem situr þó ekki auðum höndum,
því í vikunni gaf hún út bókina
Hrelli, sögu um umhverfisvernd
fyrir börn. Sigríður ber einnig tit-
ilinn fyrirbænamiðill og endur-
útgaf nýverið heftið „Fyrirbæna-
miðill segir frá“ þar sem hún lýsir
lífsreynslu sinni og miðlunum að
handan.
Hófst með áfalli
„Ég varð fyrir áfalli fyrir sautján
árum þegar sonur minn, sem þá
var átta ára, slasaðist lífshættu-
lega,“ útskýrir Sigríður. Hún vakti
yfir drengnum sínum í sex sólar-
hringa án hvíldar og rekur upphaf
veikinda sinna til þessara atburða.
„Andlegar varnir mínar brotnuðu
niður,“ segir hún. Sonur Sigríðar
náði sér fljótt og nokkrum vikum
síðar ákvað fjölskyldan að halda í
sólarlandaferð til Spánar. Þá fann
hún fyrst fyrir einkennum sjúk-
dómsins þegar hún heyrði skyndi-
lega raddir og sá sýnir sem aðrir
sáu ekki. „Ég skildi ekki að mað-
urinn minn sá hvorki né heyrði það
sama og ég,“ segir Sigríður. „Radd-
irnar voru yfirleitt neikvæðar og
ógnandi, en það komu alltaf góðar
og kærleiksríkar raddir með.“
Fyrsta innlögnin
Þegar Sigríði hætti að lítast á blik-
una bað hún um að vera lögð inn á
sjúkrahúsið í nágrenninu. „Ég var
samstundis sjúkdómsgreind með
geðklofa og dópuð upp þannig að
ég hélt ekki höfði, en skynjanirnar
mögnuðust og urðu enn þá verri,“
segir Sigríður, sem var skelfingu
lostin og hrædd um manninn sinn
og barn. Þegar leið að heimför
reyndist eiginmanni Sigríðar erfitt
að fá leyfi sjúkrahússins til þess að
útskrifa Sigríði. „Þetta er greinilega
bara litið svo alvarlegum augum á
Spáni að þeir ætluðu ekki að hleypa
mér úr landi,“ segir Sigríður. Það
hafðist þó að lokum en Sigríður
var flutt á flugvöllinn í fylgd vopn-
aðra lögreglumanna. „Ég var keyrð
í hjólastól að flugvélardyrunum,
svo sljó af lyfjum að ég hélt ekki
höfði,“ segir Sigríður, sem undrað-
ist mjög viðbúnaðinn vegna einnar
meinlausrar konu. „Ég hafði ekki
svo mikið sem lyft fingri á sjúkra-
húsinu, og hef raunar aldrei gert,“
segir hún.
Veikindin hafin
Þegar heim var komið tók við lyfja-
meðferð hjá geðlækni og erfitt tíma-
bil þar sem Sigríður lagðist ítrekað
inn á geðdeild. Hún var greind með
geðklofa, geðrofssjúkdóm sem veld-
ur ýmsum skyntruflunum sem oft
leiða til fælni og félagslegrar ein-
angrunar. Sjúkdómurinn er jafn
algengur hjá konum og körlum, en
karlar greinast oft fyrr á lífsleið-
inni heldur en konur. „Ég var skelf-
ingu lostin þegar ég heyrði haturs-
fullu raddirnar. Ég kólnaði upp og
fann fyrir verkjum,“ útskýrir Sig-
ríður, sem segir mikilvægt að taka
tillit til líðanar fólks í umgengni við
það þegar það veikist. „Mér leið illa
á geðdeildinni, enda voru innlagn-
irnar allar stuttar. Ég komst upp á
lagið með að leyna ástandinu til að
komast fyrr út,“ segir Sigríður og
segist oft hafa verið útskrifuð af
sjúkrahúsinu í sama ástandi og hún
kom inn.
Miðlar og dulræn málefni
„Ég fór að leita upplýsinga og gerði
mér grein fyrir að aðrir sáu hvorki
né heyrðu það sama og ég,“ segir
Sigríður, sem hóf að kynna sér dul-
ræn málefni, þar á meðal rannsókn-
ir Erlends Haraldssonar á reynslu
Íslendinga af dulrænum fyrirbær-
um. „Ég var skyggn sem barn og
trúi því að raddirnar séu að hand-
an,“ segir Sigríður, sem þrátt fyrir
margra ára lyfjameðferð hætti
aldrei að heyra raddir eða sjá sýnir.
„Ég heyri þær ekki lengur þegar
ég er innan um fólk. Í kringum mig
er mikil vernd núna og ég hef ekki
þurft að leggjast inn á geðdeild í tólf
ár.“
Mannréttindabrot!
Lyfjameðferð við alvarlegum geð-
sjúkdómum fer gjarnan fram með
reglubundinni lyfjagjöf með svo-
kallaðri forðasprautu. Sigríður
mætti á sjúkrahúsið á nokkurra
vikna fresti til þess að fá lyfin sín.
„Einn morgun sótti eitthvað að mér
og ég fann að það var ekki allt í
lagi. Ég söng mikið og móðir mín
sem var í heimsókn tók bara undir
með mér. Síðar um daginn keyrði
ég á spítalann og sat á biðstofunni
þegar ég brýst út í söng aftur. Ég
söng Ísland úr Nató, herinn burt!“
Hún segir að reynt hafi verið að
þagga niður í henni og henni sagt
að það gengi ekki að syngja svona.
Að lokum kom læknir til hennar og
sagðist vilja leggja hana inn. „Ég
var færð inn í lokað herbergi þar
sem ég hóf að rífa mig úr fötunum
því ég espaðist öll upp við tilhugs-
unina um að það ætti að leggja mig
inn,“ segir Sigríður. Hún var lögð
í rúm og haldið niðri á meðan hún
var sprautuð niður. „Ég sló ekki
frá mér, en þegar þeir komu með
sprautuna kallaði ég: Mannréttinda-
brot! Mannréttindabrot! Mannrétt-
indabrot!“ Í sprautunni voru lyf sem
höfðu róandi áhrif. „En engin lyf
hafa haft áhrif á skynjanir mínar,“
segir Sigríður.
Nauðungarvistuð í annað sinn
Veikindum Sigríðar var hvergi
nærri lokið og nokkru síðar var
hún nauðungarvistuð í annað sinn.
„Ég var heima í eins konar trans-
ástandi. Þá er maður svolítið lok-
aður,“ segir Sigríður og brosir út í
annað. „Þá er maður mikið lokað-
ur,“ leiðréttir hún, „og ekki auðvelt
að ná til manns. Eiginmaður minn
hafði áhyggjur af mér svo hann
hafði samband við geðlækni. „Geð-
læknirinn kom heim til Sigríðar til
að kanna líðan hennar og komst að
þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt
væri að leggja hana inn. Sigríður er
í dag ekki sammála því að það hafi
verið nauðsynlegt, að minnsta kosti
ekki á þann hátt sem það var svo
gert. „Ég var ekkert ógnandi eða
hótandi. Ég var bara með skynj-
anir sem ég var að fara í gegnum,“
útskýrir hún. Hún segist hafa allt
viljað gera til að fara ekki aftur á
geðdeild, sem hún segir hafa verið
helvíti á jörð fyrir sig.
Lögreglan mætir
Lögreglan mætti stuttu síðar. „Ég
streittist á móti og það eina sem ég
sagði var „bíddu“ því ég vildi tefja
þetta aðeins. Finna betri lausn. En
ég var dregin út í lögreglubílinn og
hent í gólfið. Á meðan ég lá þar fann
ég fyrir miklum þrýstingi í líkam-
anum og missti svo meðvitund.“ Á
leiðinni sátu tveir lögreglumenn og
læknir yfir henni. Þegar á sjúkra-
húsið var komið rankaði hún við
sér. „Ég var þá laus úr transinum og
orðin skýr og róleg. Samt sem áður
var ég sprautuð niður. Þegar ég sá
sprautuna kallaði ég aftur hátt og
skýrt: Mannréttindabrot!“
„Það gæti kviknað í!“
Það verður fátt um svör þegar
Sigríður er spurð að því hvort hún
hafi fengið skýringar á nauðung-
arvistununum. „Mér var bara sagt
að ég væri mikið veik,“ rifjar Sig-
ríður upp. „Ég man að einn lækn-
ir sagði við mig: „þú ert alltaf að
kveikja á kertum. Það gæti kvikn-
að í!“ sem mér þótti heldur skrít-
ið því ég lenti í eldsvoða sem barn
og er mjög eldhrædd. Ég hafði þá
alltaf kveikt á einu kerti hér heima
sem var í skotheldum umbúðum,“
segir Sigríður, sem kann ekki frek-
ari skýringar á þessari athuga-
semd en hún rímar vel við þá til-
finningu margra geðsjúkra að í
þeirra tilviki er eðlileg hegðun
stundum álitin óeðlileg, eingöngu
vegna veikindanna.
Gefa ætti meiri tíma
Þegar Sigríður er spurð um hvað
hún hafi lært og hvernig megi
bæta aðstæður geðsjúkra sem
eru nauðungarvistaðir segir hún
að auka megi samtal og hlustun.
„Mér finnst að það hljóti að vera
hægt að gefa meiri tíma, reyna að
komast að því hvað er að kvelja
viðkomandi,“ segir Sigríður hugsi.
Hún nefnir aðferð sem notuð hefur
verið í Finnlandi og gengur út á að
nota samtal þegar upp koma bráða-
tilvik hjá geðsjúkum. Þá er fjöl-
skyldan kölluð saman, málin rædd
og reynt að komast að rót vandans.
„Nauðungarvistun getur verið
nauðsynleg í einhverjum tilvik-
um og þau mál eru mörg og mis-
munandi, en það er óþarfi samt að
hreyta harkalega í fólk þegar því
líður svona hrikalega illa og er í
dýpstu örvæntingu,“ segir Sig-
ríður, sem þakkar börnum sínum
þremur að hún komst í gegnum
veikindin. „Þau sýndu alltaf svo
mikla ást á móður sinni og stuðn-
ing á hverju sem gekk.“
Kláraðu jólagjafa-
kaupin á einum stað.
Í Bóksölu stúdenta
finnur þú meira
en þig grunar.
í Bóksölu stúdenta
Háskólatorgi - www.boksala.is
Vopnaðir verðir og lögregluvald
Sigríður Örnólfsdóttir var í tvígang nauðungarvistuð í langvinnri baráttu við geðsjúkdóm, sem hófst fyrir sautján árum
í kjölfar þess að ungur sonur hennar lenti í lífshættu. Hún veiktist fyrst í sólarlandaferð á Spáni og var samstundis greind
með geðklofa og lokuð inni. Þegar kom að heimför fylgdu vopnaðir lögreglumenn henni að flugvélardyrunum.
Eva
Bjarnadóttir
eva@frettabladid.is
NAUÐUNGAR
VISTUÐ Leik-
skólakennarinn
Sigríður Örnólfs-
dóttir þakkar
börnunum sínum
að hún komst í
gegnum áralanga
baráttu við andleg
veikindi.
| FRÉTTASKÝRING | 14. desember 2013 LAUGARDAGUR36
21 3 4 5NAUÐUNGARVISTANIR GEÐSJÚKRA
Dag einn lá ég í sólbaði í hótelgarðinum. Mér verður litið upp á einar
svalirnar á hótelbyggingunni. Ég sé þar tvo menn í hermannaklæðum
miða byssum í átt til mín. Sýnin hvarf og hugsunin „morðingjar“ flaug í
gegnum hug mér. Ég hristi höfuðið yfir þessu og hugsaði ekki meira um þetta.
Eitt sinn var ég ein í hótelíbúðinni og hafði lagt mig. Heyri ég þá karl-
mannsrödd lýsa því í smáatriðum hvernig verið væri að myrða mann
minn og barn. Höfðagaflinn á rúminu var upp við vegg á næstu íbúð og fannst
mér röddin berast þaðan. Bleikrauðu geislana sá ég áfram. Nokkru síðar vorum
við inní búð að skoða. Heyri ég þá hlýja og hljómmikla rödd karlmanns „Ekki
er allt sem sýnist, halt þú ró þinni.“ Ég róaðist nokkuð við þetta en maðurinn
minn var farinn að hafa verulegar áhyggjur af mér.
Úr heftinu „Fyrirbænamiðill segir frá“ sem Sigríður gaf fyrst út árið 2001 .
➜ Fyrstu sýnir Sigríðar komu á Spáni
Síðar um daginn
keyrði ég á spítalann og
sat á biðstofunni þegar ég
brýst út í söng aftur. Ég
söng Ísland úr Nató,
herinn burt!