Fréttablaðið - 14.12.2013, Síða 126

Fréttablaðið - 14.12.2013, Síða 126
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 98 400.000 EINTÖK ÁRIÐ 1993 70% erlendar plötur og 30% íslenskar plötur. 644.000 EINTÖK ÁRIÐ 2001 820.000 EINTÖK ÁRIÐ 2005 45% erlendar plötur og 55% íslenskar plötur. 300.000 EINTÖK ÁRIÐ 2012 20% erlendar plötur og 80% íslenskar plötur. ~450.000 EINTÖK ÁRIÐ 2013 20% erlendar og 80% íslenskar plötur Plötusala á Íslandi hefur verið reikandi á milli ára en þó hefur sala á íslenskum titlum að mestu haldist óbreytt undanfarin ár. Fréttablaðið fór á stúfana og kannaði plötusölu á Íslandi síð- astliðin tuttugu ár. Fyrir tuttugu árum var tón- listarlífið á Íslandi virkilega blómlegt og fjölbreytt. Fjöl- margar tímamótaplötur komu út og margar þeirra hafa staðist tímans tönn með miklum sóma. Stærsta nafn íslenskrar tónlist- arsögu á alþjóðavísu, Björk, gaf árið 1993 út sína fyrstu stóru plötu sem ber nafnið Debut og fór hún sigurför um heiminn. Bubbi Morthens var ákaflega virkur og gaf út plötuna Lífið er ljúft, ásamt því að gefa út plötuna Svefnvana með hljóm- sveit sinni og Rúnars Júlíusson- ar, GCD. Landslið poppara var einnig afkastamikið á árinu en Páll Óskar, Stjórnin, Todmobile, Ný dönsk og fleiri gáfu út plötur þetta ár. „Það sem er forvitnilegt er það að plötusala er mjög svipuð í dag og árið 1993 en hún náði hámarki árið 2005,“ segir Jónatan Garð- arsson tónlistarsérfræðingur og rokksögukennari. Sala á plöt- um, til dæmis árið 2011 og 2012 er ekki jafn dreifð og hún var á árum áður, líkt og Mugison og Ásgeir Trausti sanna. Árið 1993 var algengt að lista- menn væru að selja um fimm þús- und eintök, sem gefur gullplötur. „Þetta ár fóru ellefu plötur í gull,“ bætir Jónatan við. Heildarplötu- salan var um þrjú hundruð þúsund eintök en einungis þrjátíu prósent af sölunni voru íslenskar plötur. Kristján Jóhannsson seldi flest eintök af plötunni sinni, Af lífi og sál, þetta ár eða um fimmtán þús- und eintök en rétt á eftir honum kom Bubbi Morthens með þrettán þúsund eintök seld af plötunni Lífið er ljúft. Plöturnar Debut með Björk, Spillt með Todmobile, Desember með Siggu Beinteins og Ekki þessi leiðindi með Bogomil Font og Milljónamæringunum seldust í um sjö þúsund eintökum þetta ár. Árið 2005 var metsöluár í plötu- sölu á Íslandi, en þá var heildar- plötusalan 820 þúsund eintök og hlutfallið af því var 55 prósent íslenskt efni og 45 prósent erlent efni. Mest seldu plöturnar voru plata Garðars Thors Cortes, sem er honum samnefnd, og platan Þú átt mig ein með Óskari Péturssyni Álftagerðisbróður, en þær seldust báðar í fimmtán þúsund eintökum. Björgvin Halldórsson seldi tólf þúsund eintök af plötunni Ár og öld og þá seldi Sigur Rós tíu þús- und eintök af plötunni Takk. Árið 2012 var heildarplötusalan um þrjú hundruð þúsund eintök sem telst ansi lítið, en með til- komu Spotify og annarra tónlist- arveitna hefur plötusala dregist mikið saman. Íslensk tónlist var rúmlega áttatíu prósent seldrar tónlistar. Ásgeir Trausti seldi 23 þúsund eintök af plötu sinni Dýrð í dauða- þögn en hún er komin vel yfir þrjátíu þúsund eintök í dag. Of Monsters and Men seldi ellefu þús- und eintök af plötunni My Head Is an Animal en það er þó athyglis- vert að hún kom út árið 2011. Retro Stefson seldi 7.500 eintök af samnefndri plötu og Helgi Björns- son seldi fimm þúsund eintök af plötunni Heim í Heiðardalinn. Í ár tróna Baggalútsmenn á toppnum með plötuna Mamma þarf að djamma, en sem stendur hafa um sex þúsund eintök selst. Plötur Of Monsters and Men og Ásgeirs Trausta eru komnar yfir fimm þúsund seld eintök á árinu. Aðrar plötur sem nálgast gullplötu í ár eru platan Jólakveðja sem Sigríður Thorlacius sendi frá sér, Kaleo með samnefndri hljómsveit og Helgi syngur Hauk með Helga Björnssyni. gunnarleo@frettabladid.is Tuttugu ár af tónlist Plötusala á Íslandi hefur breyst mikið á undanförnum árum. Plötusalan á Íslandi er þó svipuð í dag og hún var árið 1993. Tónlistarveitur á netinu hafa áhrif. HEILDARPLÖTUSALA Á ÍSLANDI EFTIR ÁRI MEST SELDU PLÖTUR Á ÁRI Bubbi Morthens Lífið er ljúft 13.000 eintök ÁR 2011 2012 1993 Haglél Mugison 32.000 eintök Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 23.000 eintök Garðar Thor Cortes Cortes 15.000 eintök Kristján Jóhannsson Af lífi og sál 15.000 eintök KK band Hotel Föroyar 6.000 eintök Todmobile Spillt Björk Debut Sigga Beinteins Desember Bogomil Font og Milljónamæringarnir Ekki þessi leiðindi Saman um 7.000 eintök Óskar Pétursson Þú átt mig ein 15.000 eintök Björgvin Halldórsson Ár og öld 12.000 eintök Sigur Rós Takk 10.000 eintök Helgi Björns Yfir Esjuna 10.000 eintök Baggalútur Mamma þarf að djamma 6.000 eintök 2013ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU Of Monsters and Men My Head Is an Animal 11.000 eintök Retro Stefson Retro Stefson 7.500 eintök Helgi Björns Heim í heiðardalinn 5.000 eintök Of Monsters and Men og Ásgeir Trausti Báðar komnar vel yfir 5.000 eintök Sigga Thorlacius Jólakveðja, Kaleo Kaleo, Helgi Björns Helgi syngur Hauk. Nálgast allar 5.000 eintök Komin vel yfir 30.000 eintök í dag Platan kom út árið 2011 en er samt næstmest selda platan árið 2012 Endar líklega í kringum 8.000 2005 Auður Karlsdottir, er komin á 101 Hárhönnun Skólavörðustíg 8. Svanhildur Ósk Guðjónsdóttir, er komin aftur til starfa eftir fæðingarorlof. Verið velkomin. S:551-3130 GLEÐILEG JÓL Allar vörur á 2000kr. Siðasti dagur á morgun Mind OUTLET.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.