Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 15
FRÆÐIGREINAR / ÖRORKA
jafnt og 1 er algengi örorku það sama árið 1976 og
árið 1996. Ef staðlaða áhættuhlutfallið er stærra en 1
var örorka tíðari árið 1996 en árið 1976, en fátíðara ef
áhættuhlutfallið er minna en 1. Af 95% öryggismörk-
unum má lesa hvort áhættuhlutfallið er tölfræðilega
marktækt á 5% stigi eins og kallað er. Ef bæði efri og
neðri mörkin falla sömu megin við töluna 1 er
áhættuhlutfallið tölfræðilega marktækt á 5% stigi.
I örorkuskránni, sem gögnin voru unnin úr, eru
upplýsingar um kyn, aldur, örorkumat og sjúkdóms-
greiningar, en hvorki nöfn né kennitölur viðkomandi
einstaklinga. Því var ekki ástæða til að sækja um leyfi
fyrir rannsókninni hjá Tölvunefnd eða Vísindasiða-
nefnd.
Niðurstöður
Tafla I sýnir fjölda þeirra sem metnir höfðu verið til
örorkubóta 1. desember árin 1976 og 1996. Þar sést
að örorkubótaþegum fjölgaði á milli áranna úr 6773 í
8714 eða um 28,7%. Á sama tíma fjölgaði íslend-
ingum á aldrinum 16-66 ára úr 134.027 í 174.008 eða
um 29,8% (5). Þegar bornar eru saman hrá
algengitölur (bæði kynin saman og ekki tekið tillit til
mismunadi aldursdreifingar þjóðarinnar árin 1976 og
1996) fyrir alla örorkubótaþega var ekki marktæk
breyting milli áranna (p=0,06). Hins vegar varð
marktæk hækkun á hrá algengitölu fyrir örorku-
bótaþega sem metnir höfðu verið til örorku yfir 75%
og marktæk lækkun á hrá algengitölu fyrir örorku-
bótaþega sem metnir höfðu verið til 50% eða 65%
örorku (p<0,0001). Hjá konum varð aukning á
örorku yfir 75% í öllum aldursflokkum og hjá
körlum í öllum aldursflokkum nema 60-66 ára, en í
þeim aldurshópi hafði algengið lækkað lítillega (tafla
II).
Tafla III sýnir aldursstaðlað áhættuhlutfall fyrir
örorku yfir 75% milli áranna 1976 og 1996 vegna
allra sjúkdómsgreininga og vegna nokkurra
aðalgreiningarflokka samkvæmt Hinni alþjóðlegu
sjúkdóma- og dánarmeinaskrá. Þegar litið er á allar
sjúkdómsgreiningar, það er alla sem metnir hafa
verið til örorku yfir 75%, varð marktæk aukning hjá
báðum kynjum. Marktæk aukning varð hjá báðum
kynjum á örorku vegna geðraskana, stoðkerfis-
sjúkdóma, krabbameina, langvinnra teppusjúkdóma
í öndunarfærum, innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma,
meðfæddra veilna og húðsjúkdóma, en marktæk
minnkun á örorku vegna smitsjúkdóma og sjúkdóma
í meltingarfærum. Við nánari skoðun á smitsjúk-
dómunum kom í ljós að örorka vegna berkla og
mænusóttar var miklu fátíðari árið 1996 en 1976.
Nánari skoðun á sjúkdómum í meltingarfærum sýndi
að örorka vegna sjúkdóma í vélinda, maga og
skeifugöm var einnig miklu fátíðari árið 1996 en
1976. Hjá konum varð marktæk aukning á örorku
vegna sjúkdóma í taugakerfi og skynfærum og vegna
Table I. Number of persons with disability pension in lceland in 1976 and 1996.
Level of disability pension 1976 1996
Women Men Total Women Men Total
Full disability pension (assessed disability >75%) 2378 1730 4108 4286 3029 7315
Reduced disability pension (assessed disability 50-65%) 1647 1018 2665 914 485 1399
All disability pension 4025 2748 6773 5200 3514 8714
Table II. Prevalence (%) offull disability pension (assessed disability more than 75%) by age groups in lceland in 1976 and 1996.
Women Men
Age in years 1976 1996 1976 1996
16-19 0.2 1.0 0.5 1.0
20-24 0.6 1.4 0.8 1.8
25-29 1.1 1.9 1.0 2.0
30-34 1.5 3.0 1.2 2.4
35-39 1.9 3.9 1.5 2.5
40-44 3.1 4.2 2.1 2.9
45-49 3.6 5.2 2.9 3.6
50-54 5.4 7.0 3.7 4.5
55-59 9.4 10.3 5.1 6.3
60-66 16.4 18.5 12.1 11.6
16-66 3.6 5.0 2.5 3.4
Table III. Standardized risk ratio (SRR) and 95% confidence intervals (Cl) for full
disability pension (assessed disability more than 75%) in 1976 and 1996 according to
selected main groups ofdiseases (ICD)*.
Groups of diseases Women SRR 95% Cl Men SRR 95% Cl
Infections 0.13 (0.09:0.19) 0.14 (0.09 ;0.22)
Malignant neoplasms 1.46 (1.12:1.89) 3.47 (2.27:5.32)
Endocrine, nutritional and
metabolic diseases 1.76 (1.29;2.41) 2.54 (1.70:3.80)
Mental disorders 1.23 (1.11;1.34) 1.27 (1.14;1.41)
Diseases of the nervous
system and sense organs 1.31 (1.12:1.54) 1.08 (0.91;1.29)
Diseases of the circulatory system 1.01 (0.87;1.17) 0.89 (0.75:1.06)
Chronic obstructive pulmonary diseases 1.69 (1.30:2.19) 1.95 (1.47:2.60)
Diseases of the digestive system 0.48 (0.34;0.69) 0.58 (0.36:0.92)
Diseases of the skin and
subcutaneous tissue 10.38 (4.75:22.67) 8.35 (4.00;17.39)
Diseases of the musculoskeletal
system and connective tissue 2.04 (1.81:2.30) 1.69 (1.46:1.95)
Congenital anomalies 2.96 (2.14;4.10) 3.01 (2.10;4.31)
Injury and poisoning 2.59 (1.94;3.45) 1.14 (0.87;1.51)
Other diagnoses 0.78 (0.62:0.99) 0.81 (0.57:1.14)
All diseases 1.32 (1.27:1.40) 1.29 (1.22:1.37)
* International Classification of Diseases
slysa og eitrana, en þar varð ekki marktæk breyting
hjá körlum.
Tafla IV sýnir aldursstaðlað áhættuhlutfall fyrir
alla örorkubótaþega (metna til 50%, 65% og örorku
yfir 75%) milli áranna 1976 og 1996 vegna allra
sjúkdómsgreininga og vegna nokkurra aðalgrein-
ingarflokka. Þegar Mtið er á allar sjúkdómsgreiningar,
það er alla sem metnir hafa verið til örorku, var
marktæk lækkun á algengi örorku þar sem aldurs-
Læknablaðið 2001/87 207