Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Síða 23

Læknablaðið - 15.03.2001, Síða 23
FRÆÐIGREINAR / GÓÐKYNJA STÆKKUN HVEKKS skrár tveggja hópa karla sem farið höfðu í slíkar aðgerðir yfirfarnar. Farið var yfir tvö tveggja ára tímabil sjúkraskráa allra karla sem fóru í brott- námsaðgerð á Landakotsspítala og Borgarspitala á árunum 1988 og 1989 annars vegar og á Sjúkrahúsi Reykjavíkur árin 1998 og 1999 hins vegar. Petta var gert að fengnum leyfum siðanefndar Sjúkrahúss Reykjavíkur og Tölvunefndar. Ekki urðu fullar heimtur sjúkraskráa en upplýsingar um 29 aðgerðir af 448 vantaði á fyrra tímabilinu og níu af 177 á því seinna. Eftirfarandi þættir voru kannaðir í sjúkraskrám og skráðir í tölvuforritið Microsoft Excel: fæðingarár sjúklings, fjöldi legudaga, ábendingar aðgerðar og hvort þær voru algjörar eða afstæðar (relative) (tafla I). Auk þess voru skráðir fylgikvillar, það er aðgerð eða endurinnlögn, innan mánaðar frá aðgerðardegi og hvort viðkomandi hafði farið áður í brottnáms- aðgerð hvekks um þvagrás eða verið á lyfjameðferð með 5-a redúktasablokkara og/eða a^-viðtækja- blokkara fyrir aðgerðina. Einnig voru skráðar meina- fræðiniðurstöður úr smásjárskoðunarsvörum frá Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði. Tölfræðilegur samanburður milli hópa var gerður með samanburði á hlutföllum eða t-prófi eftir því sem við átti. Marktækur munur var skilgreindur sem p<0,05. Upphaflega var fyrirhugað að fá kostnað brottnámsaðgerða hvekks um þvagrás uppgefinn frá spítölunum. Fljótlega varð ljóst að engar slíkar kostnaðartölur liggja fyrir hér á landi og voru því notaðar kostnaðartölur fyrir sams konar aðgerðir og tilheyrandi sjúkrahúslegu frá Noregi. Norðmenn hafa um árabil reiknað nákvæmlega út kostnað hvers kyns læknisverka samkvæmt DRG (diagnosis related group) flokkun (10). I þeirri flokkun eru sjúkrahús- legur sjúklinga verðlagðar og meðaltalskostnaður sérhverrar skurðaðgerðar er reiknaður út. Sjúklingar eru flokkaðir eftir sjúkdómsgreiningum ICD-10 og norrænni aðgerðarflokkun, Nordisk prosedyrekode- verk (NCSP). Þegar um brottnámsaðgerð hvekks um þvagrás er að ræða er tekið tillit til þess hvort aðgerðin er framkvæmd í kjölfar annarrar innlagnar- ástæðu en góðkynja hvekksstækkunar eða hvort sjúklingurinn kemur sérstaklega á sjúkrahúsið til að fara í aðgerðina. I fyrrgreinda tilvikinu er aðgerðin flokkuð sem DRG 336 og kostar um 294.000 íslenskar krónur en þessi flokkur inniheldur einnig þær aðgerðir þar sem einhveijir fylgikvillar verða. Þegar brottnámsaðgerð hvekks um þvagrás er hins vegar gerð ein og sér og engir fylgikvillar eiga sér stað flokkast hún sem DRG 337 og kostar um 227.000 íslenskar krónur. Tölumar gilda fyrir árið 1999 (10). Samkvæmt úrtaki okkar er hlutfall þessara flokka hér á landi á báðum tímabilunum nálægt 1:3 og meðaltalskostnaður aðgerða því um 244.000 krónur. Tafla 1. Yfirfarnar voru sjúkraskrár tæplega 600 karla, sem höfðu farið í brottnámsaðgerðir hvekks um þvagrás á tveimur tímabilum og ástæður aðgerðanna flokkaðar í algjörar og afstæðar ábendingar. Algjörar ábendingar Afstæöar ábendingar Blóðmiga Ertingseinkenni Þvagfærasýkingar Bráðamiga Blöðrusteinar Næturþvaglát Þvagstopp Tíð þvaglát Blöðrupokar (diverticle) og fleira Tregðueinkenni Bunuþið Slöpp buna Lengdur tími Ónóg tæming og fleira Þessi tala var síðan notuð við nánari útreikninga kostnaðar. Ekki voru teknir inn í útreikning á kostnaði þættir eins og vinnutap eða kostnaður við eftirfylgni hjá heimilislækni eða þvagfæraskurðlækni. Upplýsingar um lyfjanotkun og kostnað hennar voru fengnar frá Tryggingastofnun ríkisins (TR). Norsku kostnaðartölurnar fyrir brottnámsaðgerð hvekks um þvagrás voru síðan notaðar í samanburði við kostnaðartölur lyfjanotkunar TR við útreikninga á heildarkostnaði og breytingar á kostnaði með- ferðar góðkynja hvekksstækkunar. Niðurstöður Brottnámsaðgerðum hvekks um þvagrás vegna góðkynja hvekksstækkunar hefur fækkað um rúm- lega 50% á Islandi frá því þær náðu hámarki árið 1992. Það ár voru aðgerðirnar um 560 en á síðasta ári voru þær um 270 talsins. Þessi fækkun aðgerða hefst um svipað leyti og lyfjameðferð með 5-a redúktasa- blokkurum og a.j-viðtækjablokkurum byrjar hér á landi eins og glögglega má sjá á myndum 1 og 2. Frá árinu 1984 til 1989 var fjöldi aðgerða þó svipaður og hann hefur verið á undanförnum árum. Fjöldi þeirra sem fær einhvers konar meðferð vegna góðkynja hvekksstækkunar hefur aukist margfalt frá 1984 en árið 1999 samsvaraði lyfja- notkun því að 1200 manns tækju lyf daglega í heilt ár. Við yfirferð sjúkraskráa frá árunum 1988-1989 annars vegar og 1998-1999 hins vegar fengust ýmsar niðurstöður (tafla II). Fjölgun á hlutfalli þeirra sem áður hafa farið í brottnámsaðgerð hvekks um þvagrás breytist úr 15,0% á fyrra tímabilinu í 23,8% á því seinna. Einnig sést fækkun á þeim tilvikum að krabbameinsvöxtur í hvekk greinist óvænt í kjölfar aðgerðar (úr 21,0% í 17,1%). Abendingar aðgerða hafa breyst á þann veg að hlutfallslega fleiri fóru í aðgerð vegna algjörra ábend- inga á seinna tímabilinu þó sá munur sé ekki tölfræði- lega marktækur (mynd 3). Þrátt fyrir miklar breytingar á meðferð við góðkynja hvekksstækkun frá 1992 hefur kostnaður haldist nokkurn veginn óbreyttur eftir að hann náði hámarki það árið. Kostnaður hefur hins vegar nánast tvöfaldast frá 1984 (mynd 4). Samkvæmt útreikn- Læknablaðið 2001/87 215

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.