Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2001, Side 57

Læknablaðið - 15.03.2001, Side 57
Íðorðapístlar Lækna- blaðsins gefnir út Íðorðapistlar Jóhanns Heiðars Jóhanns- sonar læknis hafa birst í Læknablaðinu í liðlega áratug. Nú hafa fyrstu 130 pistlarnir verið gefnir út sem Fylgirit með blaðinu (41/2001) og er ritið án efa til mikils gagns fyrir lækna og annað áhugafólk um heilbrigðismál. ítarleg orða- og nafnaskrá gerir notkun pistlanna auðvelda og aðgengilega. Fyrsti pistill Jóhanns Heiðars birtist í Læknablaðinu/Fréttabréfi lækna, 5. tölublaði árið 1989 en pistlarnir hafa birst reglubundið í blaðinu frá því í ársbyrjun 1990. Örn Bjamason, fyrrverandi ritstjóri Læknablaðs- ins, fylgir pistlunum úr hlaði í Fylgiritinu og segir meðal þar meðal annars: „ ... sífelh bœtast við erlend hugtök og heiti. Það er í Ijósi þessa, sem mat verður lagt á framlag Jóhanns Heiðars. Mikilvœgi þess felst í því, að hann veitir okkur innsýn í umrœðu um íðorðasmíð í lœknisfrœði og við frœðumst um það, hvernig má mynda ný íðorð og hvaða aðferðum er hœgt að beita. ... Það var ekki fyrr en ég las yfir liandritið í heild, að ég gerði mér grein fyrir því, hvílíka feiknavinnu Jóhann Heiðar hefir þegar lagt í verkið." Umfang ritsins staðfestir þessi orð, því það er 164 síður að stærð og spannar nánast öll svið læknisfræðinnar auk þarfra pistla um framburð orða, ráðstefnumál og fleira sem tengist íðorðum lækna. Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL íðorðapistlar Læknablaðsins 1-130 Með ítarlegri orða- og nafnaskrá Höfundur Jóhann Heiðar Jóhannsson Fylgirit 41/2001 Framlag Jóhanns verður sennilega seint fullmetið, en með útgáfu pistlanna er gerð tilraun til að sýna vinnu hans þann sóma sem ástæða er til. Áskrifendur Læknablaðsins hafa þegar fengið Fylgiritið í hendur en auk þess er hægt að nálgast ritið hjá Lækna- blaðinu, Hlíðasmára 8, Kópavogi. Framhaldsnám við Háskóla íslands Fimmtudaginn 8. MARS næstkomandi kl. 16:00-19:00 mun Háskóli íslands efna til kynningar á framhaldsnámi við skólann. Allar deildir Háskólans, að lagadeild einni undanskilinni, munu taka þátt og kynna yfir 70 námsleiðir sem hægt er að velja um á framhaldsstigi. Kynningin er bæði ætluð þeim sem eru að ljúka fyrstu prófgráðu við háskóla auk þess sem allir, er lokið hafa einhverju námi við háskóla, eru hvattir til að mæta og kanna möguleikana. Gefin verður út sérstök námsskrá fyrir framhaldsnámið og verður hægt að nálgast hana á heimasíðu Háskólans www.hi.is er nær dregur kynningunni. Auk deilda og skora Háskólans er kynna munu það framhaldsnám sem þær hafa upp á að bjóða munu ýmsir aðilar svo sem Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Endur- menntunarstofnun Háskólans og Rann- sóknanámssjóður kynna þjónustu sína. Framkvæmdastjórn námskynningarinnar verður í höndum Halldóru Tómasdóttur kynningarfulltrúa, netfang: halldto@hi.is; sími: 525 4207. Námskynningin verður haldin í hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla íslands og fordyri hans og eru allir, er áhuga hafa á að kynna sér því sem næst óþrjótandi möguleika til framhaldsnáms við Háskóla íslands, boðnir velkomnir.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.