Læknablaðið - 15.03.2001, Page 67
TILKYNNINGAR
TILMÆLI U\NDLÆKNIS
nr. 1/2001
Möguleg áhætta af notkun catgut
sauma sem framleiddir eru úr görnum
nautgripa
Catgut er framleitt úr smáþörmum
nautgripa (og stundum geita). Naut-
gripagarnir flokkast nú undir afurðir
sem taldar geta borið kúariðu, sé
þeirra neytt (sbr. tilmæli Evrópusam-
bandsins CD 2000/418/EU og CD
2001/2/EU.
Eftirlitsnefnd um lækningatæki á
vegum Evrópusambandsins hefur
komist að þeirri niðurstöðu að áhætta
á Creutzfeldt-Jacobs sjúkdómi af
notkun catgut sauma í skurðaðgerðum
sé mögulega hærri en 1/106 sem talin
eru viðmiðunarmörk. Tekið skal þó
fram að ekki eru til dæmi um smit
sjúkdómsins af þessum völdum.
Saumar eru hins vegar framleiddir úr
öðrum ólífrænum efnum sem geta í
öllum tilvikum komið í stað catgut
(sbr. skýrslu um önnur efni en
dýraþarma til framleiðslu á saumum
frá vísindanefnd Evrópuráðsins um
lækningatæki frá 16. september 1998).
I ljósi þessa er því ekki heimilt
lengur að nota catgut unnið úr naut-
gripaþörmum við skurðaðgerðir og
sárameðferð á íslandi. Mælst er til að
birgðum verði eytt og þar fylgt reglum
um eyðingu lífræns úrgangs.
Landlæknir beinir þeim tilmælum
til forstöðumanna að þeir komi þessum
ábendingum til hlutaðeigandi aðila,
þ.e. lækna, tannlækna, ljósmæðra,
hjúkrunarfræðinga, yfirmanna inn-
kaupa og birgðastjóra á stofnunum.
Til forstöðumanna heilbrigðis-
stofnana, yfirmanna innkaupa/birgða-
stjóra, heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytis, héraðslœkna, Félags
íslenskra hjúkrunarfrœðinga, Ljós-
mœðrafélags íslands, Lœknafélags
íslands, Tannlœknafélags íslands.
27. febrúar 2001
Tilkynnið
aðsetursskipti!
Áskrifendur Læknablaðsins eru vinsamlega beðnir að tilkynna
aðsetursskipti. Tilkynnið breytingar á heimilisfangi í síma 564
4104 eða í netfang: ragnh@icemed.is
Við flutning
til útlanda
Við flutning til útlanda fellur niður áskrift að Læknablaðinu sem
greidd er með félagsgjöldum til LÍ. Læknar sem vilja halda áskrift
að blaðinu þurfa að æskja þess sérstaklega. Áskriftargjald er kr.
6.000 án virðisaukaskatts og ber að greiða fyrirfram. Sími vegna
áskriftar Læknablaðsins er 564 4104; netfang: ragnh@icemed.is
Við rúmstokkinn
Sjúkratilfellafundur Fræðslustofnunar lækna
verður haldinn laugardaginn 31. mars á Hótel
Loftleiðum. Fundurinn hefst kl. 9:15 með kaffi
og meðlæti en umfjöllun um sjúkratilfelli hefst
kl. 10:10 og lýkur kl. 11:30.
Tilfelli þessa fundar er:
Tuttugu og níu ára karlmaður með bakverk,
hækkað kalk í blóði og miklar úrátur í
beinum.
Þátttakendur: Sigurður Björnsson krabba-
meinssérfræðingur, mun spreita sig á úrlausn
vandamálsins.
Aðrir þátttakendur verða tilkynntir síðar.
Félagsskírteini LÍ
Gefin hafa verið út félagsskírteini LÍ. Þetta er
nýmæli sem vonandi mun mælast vel fyrir hjá
félagsmönnum. Á skírteininu kemur fram nafn
viðkomandi félagsmanns og kennitala, auk merkis
Læknafélags íslands. Gegn framvísun skírteinisins
mun fást afsláttur á ýmiss konar vöru og þjónustu
sem samið hefur verið um.
Skírteinin verða send út í byrjun mars og með
þeim listi yfir fyrirtæki sem veita munu afslátt.
Læknafélag íslands
lcelandic Medical Association
Félagsskírteini
Naih:
Kennitala:
Framvisið pcrsónuskilríkjum
Formannaráðstefna
og aðalfundur LÍ
Formannaráðstefna LÍ verður haldin í
Reykjavík 11. maí næstkomandi.
Aðalfundur LÍ árið 2001 verður haldinn í
Reykjavík dagana 12. og 13. október
næstkomandi.
Stjórnin
Læknablaðið 2001/87 259