Læknablaðið - 15.06.2002, Qupperneq 15
FRÆÐIGREINAR / RISTILKRABBAMEIN
Ristilkrabbamein á íslandi 1955-1989
Rannsókn á lifun með tilliti til meinafræðilegra þátta
Lárus Jónasson'
Jónas
Hallgrímsson1
Þorvaldur
Jónsson2
Páll Helgi Möller2
Ásgeir Theodórs3
Helgi Sigvaldason’
Jón Gunnlaugur
Jónasson11
'Rannsóknastofu Háskólans í
meinafræði, 2Landspítala-
háskólasjúkrahúsi,
3St. Jósefsspítala Hafnarfirði,
og 4Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags íslands
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Jón Gunnlaugur Jónasson,
Rannsóknastofu Háskólans í
meinafræði, Landspítala við
Hringbraut, Pósthólf 1465,
121 Reykjavík. Sími: 560 1922,
bréfsími: 560 1904,
jongj@landspitali.is
Lykilorð: ristilkrabbamein,
meinafrœði, lifun, Kaplan-
Meier lifunarlínurit.
Ágrip
Markmið: Tilgangur þessarar rannsóknar var að
kanna ýmsa meinafræðilega þætti krabbameins í ristli
á 35 ára tímabili með tilliti til áhrifa þeirra á lifun
sjúklinga.
Efni og aðferðir: Öll vefjasýni úr sjúklingum sem
greindust með ristilkrabbamein á íslandi á árunum
1955-1989 voru endurskoðuð og metin með tilliti til
eftirfarandi meinafræðilegra þátta: stærð æxlis, útlit,
vefjagerð, gráða, Dukes-flokkun, sogæða- og eða
blóðæðaíferð, æxli með tilliti til hliðarbrúnar skurð-
sýnis, Jass-flokkar, eitilfrumuíferð í umhverfi æxlis,
hvort æxli var innan ristilveggjar eða vaxið út fyrir
hann, meinvörp í eitla, vaxtarháttur æxlisjaðars og
slímæxlisútlit. Auk þessa var eftirfarandi athugað:
aldur við greiningu, kyn, greiningarár og staðsetning
æxlis innan ristils. Allir þessir þættir voru metnir með
tilliti til lifunar sjúklinga.
Niðurstöður: Alls greindust 1265 einstaklingar á
rannsóknartímabilinu með ristilkrabbamein sam-
kvæmt Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags ís-
lands, en eftir endurmat voru 1205 þeirra taldir vera
með æxli upprunnið í ristli. Unnt var að endurmeta
vefjasýni frá 1109 þessara sjúklinga út frá meina-
fræðilegum þáttum. Við einþátta greiningu reyndust
allflestir þeir þættir sem athugaðir voru marktækir
áhættuþættir lifunar. Þetta átti þó ekki við um kyn,
staðsetningu æxlis innan ristils og hlutfall slímæxlis-
útlits. Við fjölþátta greiningu kom fram að dánarlíkur
jukust marktækt með hækkandi aldri við greiningu
og greiningarár/tímabil greiningar hafði einnig áhrif.
Eftirfarandi meinafræðilegir þættir höfðu sjálfstætt
forspárgildi fyrir lifun: gráða æxlis, Dukes-flokkur,
fjöldi eitla með meinvörpum, eitilfrumuíferð í um-
hverfi æxlis, hliðarbrún sýnis og vaxtarháttur æxlis-
jaðars.
Alyktanir: Margir meinafræðilegir þættir hafa for-
ENGLISH SUMMARY
Jónasson L, Hallgrímsson J, Jónsson Þ, Möller PH,
Theodórs Á, Sigvaldason H, Jónasson JG
Carcinoma of the colon in lceland 1955-1989
An investigation of survival according to various
pathological parameters
Læknablaðið 2002; 88: 479-87
Objective: The purpose of this study was to estimate
various pathological parameters of colon carcinoma over a
35 year time period and evaluate their effect on survival of
the patients.
Material and methods: All pathological specimens from
patients diagnosed with colon carcinoma in lceland in the
period 1955 to 1989 were re-evaluated in order to
determine the following pathological parameters: Tumour
size, gross appearance, tissue type, grade, Dukes stage,
lymphatic and/or blood vessel invasion, lateral margin
involvement, Jass-group of tumour, peritumoural
lymphocytic infiltrate, limitation of tumour growth to bowel
wall, lymph node metastases, invasive tumour margin and
colloid component in adenocarcinoma. Also the following
parameters were determined in every case: Age at
diagnosis, sex, year of diagnosis and tumour location
within the bowel. All these parameters were evaluated with
respect to survival of the patients.
Results: According to the lcelandic Cancer Registry 1265
patients were diagnosed with colon cancer in lceland in
the period under investigation. After re-evaluation 1205
patients fulfilled the criteria of a primary colon cancer and
of those we were able to re-evaluate specimens from 1109
patients to determine histopathological parameters. In a
univariable analysis most of the parameters investigated
proved significant with respect to survival, except sex,
anatomical location of tumour within the bowel, and the
proportion of colloid component of tumour. In a
multivariable analysis the age at diagnosis proved
important as well as the year/period of diagnosis. The
following pathological parameters evaluated had a
significant prognostic input with regard to survival: Tumour
grade, Dukes stage, number of lymph nodes with
metastases, peritumoral lymphocytic infiltrate, lateral
margin involvement in the surgical specimen and invasive
growth pattern of tumour margin.
Conclusions: Many pathological parameters are
important in regard with prognostic evaluation of patients
diagnosed with colon cancer. We suggest that pathologists
should include in their surgical pathology specimen reports
of colon cancer, in addition to traditional parameters, an
evaluation of peritumoral lymphocytic infiltrate, lateral
margin involvement with tumour and the growth pattern of
tumour at the invasive margin.
Key words: colon cancer, pathology, survival, Kaplan-
Meier survival curves.
Correspondance: Jón Gunnlaugur Jónasson,
jongj@landspitali.is
Læknablaðið 2002/88 479