Læknablaðið - 15.06.2002, Qupperneq 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNABLAÐIÐ
Læknablaðið á netinu
Þannig birtist
Lœknablaðið þegar farið
er inn á heimasíðu þess um
slóðina http://lb.icemed.is
í hartnær heila öld hafa Læknafélag íslands og
Læknafélag Reykjavíkur gefið í sameiningu út
Læknablaðið, eða allt frá árinu 1915. Aldrei hefur
orðið hlé á þeirri útgáfu og í takt við tímana hefur
blaðið eflst og stækkað á síðustu áratugum. Innihald
þess og kröfur hafa einnig aukist og þróast og einn
þáttur í þeirri viðleitni að halda vöku sinni er að vera
með í rafrænni þróun fjölmiðla. Eftir nokkrar til-
raunir í þá átt á síðustu árum er blaðið nú komið í
nokkuð fastar skorður á netinu og er á slóðinni:
http://lb.icenied.is
Þar er allt ritstjórnarefni blaðsins birt, ritstjórnar-
greinar og fræðigreinar, og allt myndefni, gröf, töflur
) LœknobloAir
lilfc
3
J® Mtp://»».to*«*4J»/v*b/
© Lhft Homt Ptgt © Appl» © ITooli © Appl» Suppwt © Appl* St«r* © Microtoft t-UcTopu © MSN © Oífic* tor t-Ue«rtoth © kit*rn*t Explor*r
Læknablaðið
LaknabUðið
Hlídatmára 8 - 201 Kópavogi
Slmli 564 4104 - Faxi 564 4106
EFNISYFIRUT | ELDRI TOLUBlOD
Li£tamaður-fnánflð.flrin$
Flýtileit
aoslýjmg
LÆKNAFÉLAGID
FRÁGANGUR FRÆDIGREINA I UM BLAOIÐ : TENGLAR
5. tbl. 88. Árg. 2002
Ritstjómargreinðr
Konur í vítindum
ólöf Sigurðardóttir
Hcllflhlmnubólqð af yöldum bflktcria f bömum
HaraldurBriem
Frœðigrelnar
* Hcilahlmnubélqa af völdum bakteria hié elns mýnaðar tll T6 óra
qdmlum bömum é bremur bamadeildum á fslandi
Ingo María Jóhannsdóttir, Þórólfur Guðnason, Pétur Lúðvígsson, Þröstur
Laxdal, Magnús Stefónsson, Hjördís Hardardóttir, Ásgeir Haraldsson,
- Brennsla I lunonabléaeðum sem meðferð vló oáttatlfi
Davið O. Amar Gizur Gottskálksson
Starfthacfnl cftir ftarffcndurhagfJnau-á.ycfluni.TrygBlnqflitofnunflr.
riklslns
Sigurður Thoriacius, Gunnar Kr. Guðmundsson, Friðrik H. Jónsson,
rlíniskar Iriðbeininnar
Urnrœða & fréttir
• Kamfídatsári^menntun-sðajnönnun?.
Oddur Steinarsson
Helmlllsleeknar ólvkta um vottorðaméllð
taunakcrfl fiukrahúflsknfl flð brcytaft
Þröstur Haraldsson
Bcriumft..ncan-flfcldi-B.fl-flúkdóínum
Sigurbjörn Sveinsson
EFNISYHRLIT | fclDRI TOLUBlOD | LfclT |
RÁGANGUR FRÆDIGRfclNA ! UM ÖIADID I IfcNGl AR |
Leit
. eita
eita
»3 Intmwt n
og ljósmyndir. Búið er að setja þrjú síðustu tölublöð
á netið og á næstu vikum bætast við tveir síðustu ár-
gangar blaðsins, árin 2000 og 2001. Jafnframt verða
fylgirit blaðsins sett á netið jafnharðan og þau koma
út.
Hægt er að leita að efni í blöðunum eftir höfund-
um og efnisatriðum, slá inn hvort heldur er íslenskt
leitarorð eða enskt, enda eru ensku ágripin við fræði-
greinarnar birtar á netinu, og er hin öfluga leitarvél
sem fylgir vef blaðsins helsta nýmælið við þessa út-
gáfu. Þetta hefur ótvírætt gildi fyrir lækna og lækna-
nema og aðra þá sem vilja sækja sér vísindalegan
fróðleik í blaðið, en jafnframt er hægt að leita í öllu
fréttatengdu efni blaðsins.
Þá er hægt að kalla á stakar greinar á svonefndu
PDF-formi og birtast þær þá eins og þær eru í prent-
uðu útgáfunni og hægt er að prenta þær út.
Hönnun netútgáfu blaðsins var í höndum marg-
miðlunarfyrirtækisins Gagarín ehf. og var Hringur
Hafsteinsson verkefnisstjóri útgáfunnar. Gengið var
til samstarfs við Gagarín að undangengnu útboði þar
sem nokkrir aðilar í þessum geira svöruðu kalli blaðs-
ins um tilboð í gerð netútgáfu fyrir það. Það sem
reyndist þyngst í vöfum við gerð vefsins var að smíða
lausn sem gæti fært efnið úr Quark-forriti Macintosh-
hugbúnaðarins yfir á netið vandræðalaust, en það
tókst að lokum.
í ritstjórn Læknablaðsins sitja Emil L. Sigurðsson,
Hannes Petersen, Hildur Harðardóttir og Karl And-
ersen. Ábyrgðarmaður blaðsins er Vilhjálmur Rafns-
son.
Skrifstofa Læknablaðsins er að Hlíðasmára 8,201
Kópavogi og starfsmenn þess eru Védís Skarphéðins-
dóttir ritstjómarfulltrúi, Þröstur Haraldsson blaða-
maður og Ragnheiður K. Thorarensen auglýsinga-
stjóri.
Védís
Hœgt er að leita í öllu efni blaðsins eftir einstökum orðum,
nafni höfundar, titli greinar eða lykilorðum.
512 Læknablaðið 2002/88