Læknablaðið - 15.12.2003, Side 8
RITSTJÚRIUARGREIIUAR
(20-40 mg) af NovoSeven í fyrirbyggjandi skyni og 12
sjúklingum lyfleysu. Blóðtap minnkaði marktækt
sem og blóðhlutagjöf sem fór úr 60% í lyfleysu hóp
niður í 0% eftir 40 mg skammt af NovoSeven. Engar
alvarlegar aukaverkanir komu fram í þessum rann-
sóknum. Þótt þessar rannsóknir gefi vissulega fyrir-
heit er þörf frekari og stærri rannsókna áður en ráð-
lagt verður að nota NovoSeven í fyrirbyggjandi skyni
fyrir skurðaðgerðir hjá einstaklingum sem ekki hafa
blóðstorkumein.
Samkvæmt upplýsingum framleiðenda eru alvar-
legar aukaverkanir tengdar gjöf NovoSeven mjög
sjaldgæfar (<1%). Þannig hefur afar sjaldan (<1%
skráðra tilfella) verið lýst blóðsegamyndun við notk-
un lyfsins og þá yfirleitt hjá eldri sjúklingum með
þekkta æðakölkun eða sykursýki. Afar áhugavert er
að lyfið hefur verið gefið sjúklingum með blóð-
storkusótt (,,D.I.C.“) án versnunar.
Á Landspítala gilda strangar reglur um notkun
NovoSeven vegna mikils kostnaðar og þeirrar stað-
reyndar að ábendingar eru enn óljósar. Engu að síður
hefur NovoSeven verið notað í völdum tilfellum þótt
ekki hafi verið um dreyrasýki að ræða en áunnin
storkumein eru alltaf leiðrétt samhliða samkvæmt
mælingum. Dæmi um árangursríka viðbótarmeðferð
með NovoSeven á Landspítala eru meðal annars hjá
sjúklingi með blóðflagnafækkun í bráðahvítblæði og
þar af leiðandi blæðingar inn á heilahimnur og í lungu,
hjá sjúklingum með afbrigðilegar blæðingar við opn-
ar hjartaaðgerðir, hjá sjúklingi með óstöðvandi blæð-
ingu eftir umferðarslys og hjá sjúklingi með svæsna
lungnablæðingu í tengslum við blóðstorkusótt eftir
nærdrukknun og kólnun.
Byggt á reynslu birtra sjúkratilfella er nú unnið
austanhafs og vestan að samanburðarrannsóknum á
notkun NovoSeven við blóðflagnafækkun í bein-
mergsflutningum, við blæðingar frá efri hluta melt-
ingarvegs, fyrirbyggjandi í lifrarskiptaaðgerðum, og
við heilablæðingum. Það er hins vegar ekki siðferði-
lega réttlætanlegt að gera samanburðarrannsóknir á
notkun NovoSeven hjá sjúklingum sem eru í stór-
felldri lífshættu vegna blæðingar, til dæmis eftir slys,
enda hafa dönsk heilbrigðisyfirvöld á þessu ári vakið
athygli á þessum meðferðarkosti fyrir sjúklinga sem
að mati lækna eru við það að blæða út (8). Taka ber
fram að NovoSeven er viðbót sem kemur ekki í stað
hefðbundinnar meðferðar eins og fíbrínógens, blóð-
vatns eða blóðflögugjafar.
Niðurstaöa
í dreyrasýki og í ákveðnum storkumeinum er enginn
vafi um notagildi NovoSeven. Að auki ætti ætíð að
íhuga notkun lyfsins ef talið er að sjúklingi sé að blæða
út þrátt fyrir fulla meðferð en skilyrði er að batamögu-
leikar séu að öðru leyti taldir vera sæmilegir.
Heimildir
1. Mannucci PM. Drug therapy. Hemostatic drugs. N Eng J Med
1998: 339; 245-53.
2. Hoffman M, Monroe DM, Roberts HR. Activated factor VII
activates factors IX and X on the surface of activated platelets:
thoughts on the mechanism of action of high-dose activated
factor VII. Blood Coagul Fibrinolysis 1998; 9: S61-65.
3. Key NS, Aledort LM, Beardsly D, Cooper HA, Davignon,
Ewenstein BM, et al. Home treatment of mild to moderate
bleeding episodes using recombinant factor Vlla (Novo-
Seven) in haemophiliacs with inhibitors. Thromb Haemost
1998; 80: 912-8.
4. Shapiro AD, Gilchrist GS, Hoots WK, Cooper HA, Gastineau
DA. Prospective, randomised trial of two doses of rFVIIa
(NovoSeven) in haemophilia patients with inhibitors under-
going surgery. Thromb Haemost 1998; 80: 773-8.
5. Erhardtsen E. To general haemostasis - the evidence-based
route. Pathophysiol Haemost Thromb 2002; 32: 47-5.
6. Hendriks HG, Meijer K, de Wolf JT, Klompmaker IJ, Porte
RJ, de Kam PJ, et al. Reduced transfusion requirements by
recombinant factor Vlla in orthotopic liver transplantation: a
pilot study. Transplantation 2001; 71: 402-5.
7. Friederich PW, Henny CP, Messelink EJ, Geerdink MG,
Keller T, Kruth KH, et al. Effect of recombinant activated
factor VII on perioperative blood loss in patients undergoing
retropubic prostatectomy: a double-blind placebo-controlled
randomised trial. Lancet 2003; 361: 201-5.
8. www.dacehta.dk Danish National Board of Health - Danish
Centre for Evaluation and Health Technology Assessment.
Health Technology Alert. April 2003; 2 (1). NovoSeven for
massive, uncontrollable, life-threatening haemorrhage in non-
haemophiliacs.
I
924 Læknablaðið 2003/89