Læknablaðið - 15.12.2003, Side 13
Læknadagar
RITSTJÓRniARGREIIUAR
— fyrir hverja?
Enn á ný er kominn desember. Jól og áramót fram-
undan en undanfarin ár hefur þessi tími ársins einnig
markað önnur tímamót í mínum huga: Undanfari
Læknadaga. Nú veit ég að fáir aðrir hugsa á þessum
nótum í desember og er það gott og rétt. Samt vona
ég að allmargir læknar muni eyða nokkrum mínútum
í jólamánuðinum til að hugleiða ofangreindan titil:
Fyrir hverja eru Læknadagar?
Fræðsla og menntun eru þættir svo samofnir lækn-
isstarfinu að flestum kollegum þykir óhugsandi ann-
að en að vera síleitandi að nýrri þekkingu. Ég fullyrði
að sú virðing sem almennt er borin fyrir læknum í
samfélaginu er ekki síst tilkomin vegna þeirrar löng-
unar flestra lækna að reyna ætíð að veita skjólstæð-
ingum sínum þá bestu mögulegu læknisþjónustu sem
þekking hvers tíma býður upp á. Sú árþúsunda þróun
fræðslustarfsemi lækna sem kannski hófst með
Flippókratesi 400 árum fyrir Kristsburð og lifir enn
dágóðu lffi er mögnuð og ótrúleg saga og til þess fall-
in að gera mann hreykinn af því að tilheyra þessari
stétt fræðara. Manni finnst á stundum að þessi þörf
lækna til að fræðast og miðla þekkingu sinni til ann-
arra hljóti að vera greypt í einhver „fræðslugen" sem
hafi þróast á þessu tímabili. Engu að síður hefur ýms-
um samtökum lækna þótt tilhlýðilegt að setja þetta
augljósa mikilvægi fræðslustarfsemi í lög og reglur.
Til dæmis segir í Codex Ethicus, 3. gr: „Læknir skal
líta á fræðslustarf sem Ijúfa og sjálfsagða skyldu.“ og
í lögum Læknafélags íslands er einn megintilgangur
félagsins sagður vera að „stuðla að aukinni menntun
lækna“ meðal annars með Fræðslustofnun lækna sem
skal „styrkja símenntun og fræðslustarf lækna“.
En hvernig skyldu nútímalæknar standa sig í þessu
hlutverki sínu? Það er fljótsagt að flestir læknar rækja
skyldu sína um að fræða aðra með miklum sóma.
Vilji lækna til þátttöku í fræðslustarfsemi er oft á
tíðum aðdáunarverður. Mig undrar hvað læknar taka
almennt vel í að halda fyrirlestra á Læknadögum þar
sem aðalþóknunin felst í að miðla þekkingu og vera
þátttakendur í að ... taka þátt í umræðu um „ ... “.
Þriðja grein Codex Ethicus á sannanlega við hér.
Læknar hafa yfirleitt einnig staðið sig vel í að auka
við eigin þekkingu með því að sækja fræðslufundi og
fræðsluþing. Sérfræðifélag heimilislækna hefur um
árabil skipulagt fræðslustarfsemi á innlendum vett-
vangi fyrir félagsmenn sína sem tekur fram sambæri-
legri starfsemi flestra annarra sérfræðilæknafélaga á
Islandi. Vettvangur fræðsluþinga annarra sérfræði-
lækna hefur í mun ríkari mæli verið á erlendri grundu.
Kannski er það mjög eðlilegt þar sem fámenni ís-
lands og fjarlægð frá öðrum löndum býður ekki oft
upp á hágæðaþing í undirsérgreinum lækna. Auk
þess hefur framboð á læknaþingum erlendis aldrei
verið jafn mikið og nú. Því tel ég víst að hvort sem
læknar sækja formlega símenntun á Islandi eða er-
lendis sinni þeir símenntun á fullnægjandi hátt hvað
varðar sérfræðisvið sitt. En dugir það til? Það er álit
samtaka sérfræðilækna í Evrópu að þriðjung sí-
menntunareininga sérfræðilækna skuli nýta til sí-
menntunar í almennri læknisfræði. Með aukinni sér-
hæfingu í læknisstörfum vex þörfin fyrir að viðhalda
almennri kunnáttu í læknisfræði.
Og þá komum við aftur að spurningunni: Lækna-
dagar- fyrir hverja? Það er útbreiddur misskilningur
á meðal margra sérfræðilækna að Læknadagar séu
fyrst og fremst fræðsludagar fyrir unglækna og heim-
ilislækna. Vissulega þróuðust fræðsludagarnir upp úr
framhaldsmenntunarnámskeiði fyrir reynda aðstoð-
arlækna á sjúkrahúsunum en það var fyrir allmörgum
árum síðan, reyndar á síðustu öld. Sá tími á að vera
liðinn að sjúkrahúslæknar líti á það sem sitt aðalhlut-
verk á Læknadögum að miðla öðrum. Framkvæmda-
nefnd Læknadaga hefur einsett sér að skapa fjöl-
breytta dagskrá þar sem allir læknar geta fundið mál-
þing sem vekja áhuga, ýmist á eigin sérfræðisviði eða
á öðru sviði. Þó að vissulega megi finna að dagskrá
Læknadaga er óhugsandi annað en að hver og einn
finni þar eitthvað við sitt hæfi.
Á Læknadögum 2004 verður tekin upp sú ný-
breytni að óska eftir fyrirframskráningu á ráðstefn-
una. Auk þess að auðvelda undirbúning og skipulag
þingsins er það von okkar að þetta fyrirkomulag leiði
til þess að þeir læknar sem telja Læknadaga líka vera
fyrir sig, geri nauðsynlegar ráðstafanir á vinnustað
svo að þeim gefist kostur á að sækja málþing, eitt eða
fleiri. Það eru nefnilega gömul sannindi og ný að án
slíkra ráðstafana reynist mörgum erfitt að sækja ráð-
stefnur í sinni heimabyggð, þegar krefjandi sjúklinga-
skyldur eru annars vegar. Eða er það óhagganlegt
lögmál að læknar megi einungis skipuleggja námsfrí
þegar þeir sækja ráðstefnur erlendis?
Arnór
Víkingsson
Höfundur er sérfræðingur
í almennum lyflækningum
og gigllækningum. Hann er
formaður Fræðslustofnunar
Læknafélags íslands.
arnor@lcmdspitali.is
Læknablaðið 2003/89 929