Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2003, Síða 19

Læknablaðið - 15.12.2003, Síða 19
FRÆÐIGREINAR / OFNÆMISLOST við manninn og ræktarlönd hans, einkum þar sem ár- risular víðitegundir, eins og alaskavíðir, eru ræktaðar. Alibýfluga (Ap'ismellifera) (mynd4) hefur verið flutt til landsins af og til vegna hunangssöfnunar. Ekki eru líkur til þess að tegundin geti þraukað yfir vetur án aðstoðar manna. Þótt býflugur og humlur hafi stungugadda er árásar- hneigð lítil. Þær leggja sjaldnast til atlögu nema til- neyddar eða ef farið er afar óvarlega við bú þeirra. Það sama verður ekki sagt um geitungana, en þolin- mæði þeirra gagnvart áreiti er mun minni en hjá bý- flugur og humlum. Einungis kvendýr (drottningar og þernur) stinga, enda er gaddurinn að uppruna til varppípa. Einstaklingar geta fengið ofnæmi fyrir einni eða fleiri tegundum eða jafnvel fyrir þeim öllum. Því er mikilvægt að bera kennsl á þá tegund sem menn verða fyrir stungu af og greina ofnæmið með sértæku húðprófi. Einfalt er að greina á milli geitunga annars vegar og býflugna og humla hins vegar. Geitungar eru mun minna hærðir og litur skeljar ræður yfirbragðinu. Allar tegundimar eru áþekkar, gul- og svartröndóttar. Bý- flugur og humlur eru áberandi loðnar, býflugur gul- brúnar en humlur röndóttar, svartar og gular. Þær síð- arnefndu eru auk þess afar bústnar og þunglamalegar. Skordýrastungur verða yfirleitt að degi til en bit (til dæmis moskító) hvenær sem er sólarhrings. Ef gaddurinn er enn til staðar á stungustað eru líkur á því að um alibýflugu sé að ræða en þær skilja stund- um gaddinn eftir í stungusárinu (mynd 5), jafnvel áfastan eitursekk og fleiri líffæri. Aðrar tegundir gaddvespna hérlendis halda gaddinum. Geitungar valda oftast ofnæmi allra skordýra. í búum þeirra fjölgar þegar líður á sumar og nær fjöld- inn hámarki í ágúst eða september. Þá er árásargirn- in einnig mest og þeir geta stungið við minnsta áreiti. Því er hættan á stungum mest síðsumars og betra að fara varlega við garðvinnuna eða þar sem verið er að borða. Þeir eru sérstaklega sólgnir í sætindi, gos- drykki, bjór og vín. Verði menn fyrir stungu er æski- legt að fara með skordýrið til greiningar á Náttúru- fræðistofnun íslands (6). Skordýr sem bíta og valda ofnæmi Hér á landi finnast nokkrar tegundir skordýra sem bíta til að sjúga blóð úr mönnum. Um er að ræða teg- undir af fjórum ættbálkum. I flestum tilvikum eru óþægindin aðeins staðbundin en mjög sjaldan alvar- leg ofnæmisviðbrögð. Astæðan er sú að magn of- næmisvaka er mjög lítið í hverju biti. Sé sá bitni hins vegar með bráðaofnæmi fyrir bitvarginum og bitinn á mörgum stöðum getur það valdið ofnæmislosti (10, 11). Mynd 4. Alibýfluga fapis mellifera) er notuð erlendis til hunangssöfnunar og hefur verið flutt inn til landsins. Ekki eru líkur til þess að tegundin geti þraukað yfir vetur án aðkomu manna. Höfuðlús (Pedictilus humanus) og flatlús (Phthirus pubis) eru af ættbálki soglúsa (siphunculata). Þær valda óþægindum og jafnvel félagslegum vandamál- um en ekki ofnæmisviðbrögðum. Veggjalús (Cimex lectularius) af ættbálki skortítna (hemiptera) er mjög skæð blóðsuga sem leggst á fólk í svefni. Að morgni getur viðkomandi verið útbitinn og jafnvel blóðblettir í laki. Fló (Siphonaptera) er mjög sérhæfð blóðsuga og myndar sérstakan ættbálk. Alls hafa fundist tíu teg- undir flóa hér á landi. Ein tegund, mannafló (Pulex irritans) var viðloðandi hér áður fyrr og ef til vill til vandræða innan dyra. Hún bar sýkingar, samanber svartadauða á miðöldum. Tegundin virðist nú með öllu horfin hér á landi en dæmi er um innflutning með ferðamönnum. Nú á tímum er hænsnafló (Cerato- phyllus gallinae), stundum nefnd starafló, til mestra vandræða. Hún er fastur fylgikvilli starahreiðra í húsþökum og slæðist því gjarnan inn í hús. Músafló (Ctenophthalmus nobilis) getur fylgt bælum músa í húsum og sumarbústöðum og lagst á fólk. Bit af völd- um flóa geta verið afar óþægileg og áhrifin varað í umtalsverðan tíma. Mynd 5. Alibýflugur hafa göddóttan brodd (a). Ef gaddur situr eftir á stungu- stað eru líkur á því að um alibýflugu sé að rœða. Eitursekkur og fleiri líjfœri fylgja stundum broddi í stungusári. Geitungar (b) geta stungið fórnarlambið allt að 20-30 sinnum. Gaddurinn verður yfirleitl ekki eftir á stungustað. Mývargur eða bitmý (Simulium vittatum) af ættbálki tvívængna (Diptera) er algengt við straumvötn um land allt, en lirfurnar alast upp á steinum í iðuföllum straumvatna. Moskítófluga eða stungumý (Culicidae). ísland er eitt örfárra landa þar sem stungumý hefur ekki fund- ist í náttúrunni. Ekki hefur fengist skýring á því Læknablaðið 2003/89 935
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.