Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2003, Qupperneq 51

Læknablaðið - 15.12.2003, Qupperneq 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝR LEIÐTOGI HEIMILISLÆKNA stofnana heilbrigðisþjónustunnar, netpóst og heima- síðu, ný rekstrarform og kennslu og gæðaþróun. Petta er nauðsynlegt að ræða svo við getum áttað okkur betur á því hvað við viljum. Félagið hefur lengi verið mjög virkt í fræðslu- og símenntunarmálum heimilislækna. Það átti frum- kvæði að því að koma á prófessorsstöðu í heimilis- lækningum við Háskóla íslands 1991og greiddi hluta af henni. Það vann að marklýsingu fyrir framhalds- nám í heimilislækningum sem gefin var út 1995. Við eigum líka skráningarkerfi fyrir símenntun. En eins og ég sagði hefur félagið verið mjög upptekið af kjaramálunum en nú ætlum við að breyta um áhersl- ur. Það ríkir meiri bjartsýni nú meðal heimilislækna en verið hefur í mörg ár.“ - En það hefur ýmislegt verið að gerast í kjara- málunum. Þið voruð til dæmis að fara undan kjara- nefnd og endurheimta samningsréttinn. Hvernig er staðan í kjaramálunum? „Það ríkir almenn ánægja með að við skulum loksins vera komin með sambærileg laun og sérfræð- ingar á sjúkrahúsum en það komst í gegn fyrir rúmu ári. Það á hins vegar enn eftir að taka á réttindum okkar. Við erum enn innan girðingar og getum bara unnið á einum vinnustað, það er innan heilsugæsl- unnar. Kerfi lækna utan heilsugæslunnar hefur verið lokað í 15 ár og enginn komist inn í það. Yngstu læknarnir sem starfa sjálfstætt eru komnir á sextugs- aldur. Samt hefur ríkt miklu meiri friður um það kerfi en heilsugæsluna og það segir sína sögu.“ Sjálfsagður valkostur Viljayfirlýsingu ráðherra frá því fyrir réttu ári ber oft á góma í máli heimilislækna enda telja þeir hana skipta sköpum um framtíð greinarinnar. Um hana er fjallað sérstaklega hér í opnunni en ég spurði Elín- borgu hvaða augum heimilislæknar litu baráttuna fyrir því að fá ráðherra til að standa við orð sín. „Við lítum ekki á þessa baráttu fyrir leyfi til að starfa sjálfstætt sem baráttu fyrir hærri launum. Slík þjónusta á ekki að vera dýrari en sú sem veitt er á heilsugæslustöðvunum. Þetta á að vera valkostur fyrir heimilislækna því það hentar ekki öllum að vinna í kerfi eins og heilsugæslunni. Innan stéttar- innar ber töluvert á útbruna og menn hafa verið að skipta yfir í aðrar sérgreinar. Menn gefast upp og hluti af ástæðunni fyrir því er að þeim finnst þeir vera bundnir á bás. Reynsla kollega okkar á Norðurlöndum sýnir að menn þrífast betur þar sem þeir hafa val um það hvernig þeir haga vinnu sinni. í Danmörku starfa heimilislæknar sjálfstætt, hafa sitt samlag og ráða hvernig þeir starfa, og þar er starfsánægjan mest. í Noregi var tekið upp nýtt kerfi sem byggir á því að heimilislæknar geta valið hvernig þeir starfa og þar hefur starfsánægjan aukist. “ - Þið eruð sem sagt ekki að biðja um leyfi til að fara út og mjólka kerfið að vild? „Nei, ef einhver er ólíklegur til þess þá er það heimilislæknirinn," sagði Elínborg Bárðardóttir for- maður FÍH. Hvað líður viljayfirlýsingu heilbrigðisráðherra? Eins og fram kemur í viðtalinu við Elínborgu var samþykkt ályktun á að- alfundi FIH þar sem fundurinn lýsir ánægju sinni með viljayfirlýsingu heil- brigðisráðherra enda er það „skoðun FÍH að slík uppbygging sé forsenda þess að sérgreinin heimilislækningar standi jafnfætis öðrum sérgreinum. Aðalfundurinn mótmælir þeirri töf sem orðið hefur á að samningavið- ræður um þjónustu sjálfstætt starfandi heimilislækna hefjist. Fundurinn telur brýnt að strax verði gengið til samn- ingaviðræðna þannig að trúverðug- leiki viljayfirlýsingar heilbrigðisráð- herra skaðist ekki.“ En hver er staðan í málinu núna að mati Elínborgar? „Eftir viljayfirlýsingu ráðherra skip- aði LÍ - sem er okkar stéttarfélag - samninganefnd og hún kom saman í janúar. Hún fundaði með ráðuneytis- mönnum í vor og þar var ákveðið að nefndin setti fram kröfugerð í málinu. Hún var lögð fram í ágúst og síðan hef- ur ekkert gerst. Það hefur enginn talað við þessa samninganefnd. Þess vegna fórum við þrjú frá FÍH á fund ráðherra um miðjan nóvember til að ýta á eftir því að eitthvað gerðist í málinu. Þar kom fram að ráðuneytismenn töldu sig þurfa að bíða eftir úttekt heilsugæsl- unnar á þörfinni fyrir heimilislækna. Sú úttekt lá fyrir í september en samt gerðist ekkert. Þeir töluðu líka um að ekki væri til neitt fé á fjárlögum til að semja um en við bentum þeim á að samkomulagið hefði verið alveg óháð því hvort til væru peningar eða ekki, þetta væri réttlætismál sem brýnt væri að vinna í. Lágmarkið væri að menn ræddu saman. Niðurstaðan varð sú að ráðherra beindi því til samninganefndar sinnar að halda fund með okkur. Vonandi verður sá fundur haldinn fyrr en síðar því ef ekkert gerist í málinu hljótum við að velta því fyrir okkur hvort ráð- herra hafi yfirleilt meint nokkuð með þessari viljayfirlýsingu. Það er ekki gott ef ekki er hægt að treysta orðum ráðherra,“ sagði Elínborg. Umræöur á alþingi Þann 12. nóvember síðastliðinn, dag- inn fyrir fund FÍH með ráðherra, urðu nokkrar umræður um stöðu rnáls- ins á alþingi þegar Margrét Frímanns- dóttir spurði Jón Kristjánsson hvort búið væri að semja við heimilislækna um sjálfstæðan rekstur heilsugæslu- stöðva og ef ekki, hvenær þess væri að vænta. f svari sínu rakti ráðherra gang málsins með svipuðum hætti og Elín- borg gerði hér að framan en greindi einnig frá úttekt heilsugæslunnar á þörfinni fyrir heimilislækningar á höf- uðborgarsvæðinu. Þar kom fram að þörf er fyrir 20-21 lækni í viðbót við þá sem nú eru að störfum í heilsu- gæslunni. Fyrirhugað er að bæta við 16 læknum á næstu árum - sex í Kópavogi, fimm í nýrri stöð í Voga- og Heimahverfi, þremur í Árbæ og tveimur í Grafarvogi. Þá þarf að bæta við fimm heimilislæknum og það er væntanlega það sem ráðherra ætlar að vinda sér í á næstunni. Læknablaðið 2003/89 967
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.