Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2003, Side 53

Læknablaðið - 15.12.2003, Side 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STARFSUMHVERFI LÆKNA refsað fyrir að benda ráðherranum ekki á að hann væri að brjóta lög á fólkinu og fyrir að benda fólkinu ekki á hver réttur þeirra væri. I máli Bryndísar kom einnig fram að evrópskir dómar hefðu breyst á tíunda áratugnum frá því að vernda rétt ríkisins til þess að halda hlutum leyndum fyrir almenningi yfir í að tryggja rétt manna til að koma mikilvægum upplýsingum á framfæri við al- menning. Fundarmenn veltu einnig fyrir sér hvernig farið væri að því að takmarka tjáningarfrelsi háskóla- manna og komust að því að sjaldnast væri það gert með beinum hætti. Hins vegar væru óbeinar hömlur á tjáningarfrelsinu fjölbreyttar og útbreiddar. Kunnu margir deiii á slíku, allt frá því að mönnum væri látið skiljast að tiltekin sjónarmið væru ekki heppileg fyrir starfsframann yfir í það að menn beittu áhrifum sínum innan fjölmiðla til að koma í veg fyrir að starfsmenn komi sjónarmiðum sínum á framfæri við almenning. Óánægjan kemur ekki á óvart Hér er ekki rúm til þess að gera ráðstefnunni tæm- andi skil en efni hennar mun eflaust síast inn í skrif undirritaðs á næstunni. Hins vegar kom það ekki á óvart eftir þessa ráðstefnu að fá í hendur skýrslu frá Vinnueftirliti ríkisins um vinnu og vinnuumhverfi lækna á Landspítalanum en það sem upp úr stendur í henni er að tveir af hverjum þremur læknum eru óánægðir með stjórn spítalans. Skýrslan byggist á rannsókn sem gerð var með því að leggja spurningar fyrir alla lækna Landspítalans. Þótt skýrsluhöfundar bendi á að slæleg þátttaka ung- lækna dragi nokkuð úr gildi könnunarinnar þá er margt í niðurstöðum þeirra sem vert er að staldra við. Skýrslan staðfestir það sem flestir vita: læknar vinna langan vinnudag og karla lengri en konur. Sumir vinna meira en aðrir og þannig vinnur fjórð- ungur lækna meira en 60 stundir á viku að jafnaði fyrir utan vaktir. Vinnuálag er mikið og það er „frem- ur undantekning en regla að læknar LSH taki sér eðlilega matartíma", eins og segir í skýrslunni. Margir læknar kvarta yfir lélegri vinnuaðstöðu, bæði til að sinna sjúklingum og ekki síður skrifstofu- störfum. Einnig er kvartað yfir því að skipulag starfs- ins sé ekki nægilega gott og að upplýsingaflæðið frá stjórninni sé tregt. En þrátt fyrir vonda stjórn, mikið vinnuálag og lélega vinnuaðstöðu eru flestir læknar spítalans ánægðir í starfi og telja sig ráða vel við þau verkefni sem því fylgja. Þeir telja sig almennt eiga gott samstarf við aðrar starfsstéttir innan spítalans og segja að þar ríki góður starfsandi. Þó töldu sjö af hverjum tíu læknum „tvískiptingu stjórnunar í lækn- ingar og hjúkrun ekki vera til góðs fyrir sjúklinga". Átta af hverjum tíu töldu þátt lækna í stjórn spítalans ekki nógu mikinn. 80 70- 60- 50 40 30- 20- 10- 0 Spurt um áhrif læknaráðs á stjórnun Landspítala 76 61 13 Engin/ekkert Lítil Nokkur/nokkurt Mikil Aiger/algert □ Hver eru núverandi áhrif læknaráðs á stjórnun Landspítala? ■ Hvert á hlutverk læknaráðs að vera í stjórnun Landspítala? 80 70 60 50 40' 30 20 10' 0' Attu kost á að hafa áhrif á mikilvægar ákvarðanir sem varða starf þitt og starfsumhverfi? 31 24 10 22 13 Mjög oft eða alltaf Frekar oft Stundum Frekar sjaldan Mjög sjaldan eða aldrei 80 70 60 50 40 30 20 10 0 Væri hægt að bæta eða auka vinnuframlag þitt með betra skipulagi vinnunnar? 35 10 27 20 Alls ekki Lítillega Nokkuð Mikiö Mjög mikið Skýrsluhöfundum kom á óvart „hve sjálfræði í starfi er takmarkað að mati sérfræðinga og aðstoðar- lækna og hluta yfirmanna". Niðurstaða þeirra er sú að þessi útbreidda óánægja meðal lækna sé áhyggju- efni „þar sem verulegur hluti starfsmanna mælir ekki með LSH sem vinnustað og er ekki tilbúinn til að leggja á sig vinnu aukalega vegna vinnustaðarins ... Því má telja eitt af brýnustu verkefnum stjórnenda LSH að glæða áhuga lækna á vinnustaðnum enn frekar og hrinda úr vör aðgerðum til þess að bæta vinnuumhverfið og það með líðan starfsfólksins." Skýrsla Vinnueftirlitsins er allnokkur að vöxtum og hana má finna á heimasíðu LÍ á slóðinni www. lis. is/AT.asp ?action=Viewltem&atID=l 70 Myndirnar hér að ofan sýna viðhorf lœkna sem þátt tóku í könnun Vinnu- eftirlitsins til þess hve mikil - eða lítil - áhrif læknar hafa á starfsumhverfi sitt. Læknablaðið 2003/89 969

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.