Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2003, Page 59

Læknablaðið - 15.12.2003, Page 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STEFNUMÓTUN CPME ■ telur að ein leið til þess sé að beita eftirfarandi megin- reglum: 1. Heilbrigðisþjónusta verður að tryggja starfs- mönnum sínum sama aðgang að heilbrigðis- kerfinu og almenningi. 2. Öllum sjúklingum þurfa á meðferð að halda er trúnaður mikilvægur, en sérstaklega þarf að huga að trúnaði gagnvart heilbrigðisstarfsfólki sem nýtur meðferðar, einkum þegar um geð- sjúkdóma er að ræða eða ávana/fíkn því þeim fylgja enn fordómar. 3. Koma þarf á fót nægri þjónustu bæði á sérhæfð- um göngudeildum og inni á sjúkrahúsum til þess að fagfólk fái viðeigandi meðferð undir réttum kringumstæðum og njóti algjörs trúnaðar, sér- hæfðrar sálfræðiþjónustu og læknisþjónustu, stutt sé við velferð fjölskyldunnar, séð fyrir iðju- þjálfun og lögfræðiaðstoð til þess að þeir geti þjálfað sig aftur í fagi sínu með aðstoð, eftirliti og mati á frammistöðu. 4. Læknafélögin svo og önnur samtök lækna eða annars fagfólks í heilbrigðisþjónustu ættu að leika lykilhlutverk í því að skipuleggja, reka og stýra gæðum þeirra meðferðarprógramma sem sett verða af stað. 5. Það er nauðsynlegt að grípa til þessara úrræða til að bæta heilsu lækna og annarra heilbrigðis- starfsmanna, en einnig til að auka gæði heil- brigðisþjónustu og sér í lagi að verja heilsu al- mennings. 6. Vegna þess að markmiðið er að auka gæði heil- brigðisþjónustu og verja heilsu almennings er eðlileg að verkefnið sé fjármagnað af opinber- um aðilum. 7. Prógrömmin þurfa að stuðla að forvörnum og leitast við að skapa öllum heilbrigðisstarfsmönn- um, hvort sem þeir eru veikir eða ekki, ákjós- anlegar aðstæður til að takast á við vandamálin svo greina megi þau eins snemma og kostur er og á sem áhrifaríkastan hátt. 8. Þróa verður rannsóknastarf, sérstaklega við- víkjandi geðheilsu lækna og starfsaðstöðu þeirra. 9. Sinna þarf heilsu lækna bæði á einstaklings- grunni og gegnum samtök þeirra, og leggja sér- staka áherslu á geðheilsu. 10. Til að ná ofangreindum markmiðum þarf að setja á stofn nefnd til þess að hjálpa veikum læknum, fela henni að starfa stöðugt og í sam- ræmi við gildandi siðareglur. Stefna Samtaka evrópskra lækna í málefnum lækna með geðræn vandamál og/eða ávana- og fíkni- efnavanda var samþykkt á fundi í Brussel 30. ágúst sl. fyrir tilstilli danska læknafélagsins. Ég vil hér með hvetja stjórn Læknafélags Islands til að gera stefnu samtakanna að sinni og leita leiða til að rétta íslensku heilbrigðisstarfsfólki sem býr við umræddan vanda hjálparhönd í samstarfi við landlækni og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Ráðstefna á aldarafmæli Jóns Steffensen Eftir rúmt ár, eða þann 15. febrúar 2005, verða liðin eitt hundrað ár frá fæð- ingu Jóns Steffensen læknis og fyrrum pró- fessors við læknadeild Háskóla Islands. Jón var afkastamikill fræðimaður á mörg- um sviðum og lét eftir sig merk ritverk um heilbrigðismál, sögu læknisfræðinnar, upp- haf landnáms á íslandi, mannfræði íslands og íslensk fomrit, svo fátt eitt sé nefnt. Jón ánafnaði Háskólabókasafni og Þjóðminja- safni eignir sínar, bækur og handrit í því skyni að auðvelda rannsóknir á þeim svið- um sem áhugi hans hafði beinst að. Það þykir því við hæfi að efna til ráð- stefnu í minningu hans og verður hún haldin 18. og 19. febrúar 2005. Að ráð- stefnunni standa læknasamtökin, Þjóðar- bókhlaða, Þjóðminjasafn, Hollvinasamtök læknadeildar, læknadeild og mannfræði- og þjóðfræðiskor Háskóla íslands. Ætlun- in er að hún endurspegli fjölbreytnina í rannsóknum Jóns og verða því haldin mörg stutt erindi um þau viðfangsefni sem honum voru hugleikin. Verða þau síðan gefin út á prenti. í Þjóðdeild Landsbókasafns fslands- Háskólabókasafns í kjallara Þjóðarbók- hlöðu eru bækur Jóns, tímarit, bréf, hand- rit og fleiri munir varðveittir í sérsafni sem við hann er kennl. Hefur verið unnið að því að gera safn hans aðgengilegt fræði- mönnum og almenningi og verður nánar greint frá því hér í blaðinu eftir áramót. Þeir læknar sem hafa hug á að flytja erindi á ráðstefnunni eru beðnir að senda titil og sluttan útdrátt (um það bil 100 orð) til Tómasar Zoéga, Viðjugerði 8, 108 Reykjavík fyrir 15. janúar 2004. Læknablaðið 2003/89 975

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.