Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 25

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 25
FRÆÐIGREINAR / ÖLDRUNARÞJÓNUSTA Mikið hefur verið um það rætt hvort unnt sé að nota starfstitil kvenna sem mælikvarða á ójafnræði í heilsufari eins og reynst hefur haldgott þegar um karla er að ræða. Þegar konur voru yfirleitt heima- vinnandi var starf eiginmanns/sambúðarmanns bæði mælikvarði á vinnuaðstæður hans og efnahag heimil- isins (8). Vegna þessa var starf eiginmannsins talið svo mikilvægt fyrir heilsu konunnar að sú siðvenja komst á að flokka konur með eiginmönnum sínum þegar skipað var niður í þjóðfélags- og starfshópa. Þar sem atvinnuþátttaka kvenna er orðin veruleg og hjúskaparstaða breytileg í nútímanum má við því búast að starf konunnar tengist heilsufari hennar (8). Þessi tilgáta reyndist rétt þegar heilsa kvenna í Bret- landi og Finnlandi var borin saman (19) og endur- speglast í niðurstöðum þessarar rannsóknar. Atvinnu- þátttaka kvenna á Islandi er veruleg. Árið 2000 voru 79% íslenskra kvenna á aldrinum 16-74 ára í launaðri vinnu. Atvinnuleysi var lítið, aðeins 2,9% meðal kvenna árið 2000 (20). Þótt þessi rannsókn sýni að starf kvenna og menntun hefur forspárgildi fyrir líðan er rétt að hafa í huga að áhrif efnahags heimilisins og stöðu maka gætu einnig verið mikil. Um þessi atriði var ekki spurt. Rannsóknir hafa sýnt að aðstæður maka hafa gagnverkandi áhrif á heilsu beggja (8). Mikil atvinnuþátttaka kvenna á íslandi gæti sett mark sitt á það sem kallað er áhrif hraustra starfs- manna en þau áhrif eru meðal annars fólgin í því að þeir sem eru í vinnu eru frískari en aðrir (21). Áhrifa hraustra starfsmanna gætir oftast verulega í rann- sóknum þar sem starfsmannahópar eru bornir saman við þjóðarheild. Það var ekki gert í þessari rannsókn. Á hinn bóginn gæti áhrifa hraustra starfsmanna gætt að því leyti að allar konurnar í rannsóknarhópnum verða að hafa nógu góða heilsu til að vera færar um að vinna þessi andlega og líkamlega erfiðu störf. Þannig eru þær að nokkru útvalinn hópur. Þetta ætti þó fremur að draga úr mismuninum milli hópanna. Það kann að vekja furðu að aldursbilið er 14-79 ára. Það bendir til þess að skólastúlkur vinni í öldrun- arþjónustu að einhverju leyti og að konur sem komn- ar eru á eftirlaunaaldur geti annaðhvort ekki hætt að vinna vegna þess að eftirlaunin eru of lág eða að þær kjósa að halda áfram að vinna ef tækifæri býðst. Rannsóknir hafa sýnt að atvinnuþátttaka fólks á eftirlaunaaldri er mun hærri hér en annars staðar á Vesturlöndum (22). Það styrkir niðurstöður þessarar rannsóknar að hún náði um allt land, þátttakendur voru margir og svörunin mikil. Alls var 1886 manns boðin þátttaka í könnuninni. Ef gert er ráð fyrir að karlar hafi verið 4,5% í heildarhópnum, eins og var meðal svarenda, fór spurningalistinn til 1801 konu sem er um 2,5% allra starfandi kvenna á aldrinum 16-74 ára á landinu árið 2000 (20). Niðurstöður rannsóknarinnar eru því þýðingarmiklar fyrir stóra starfshópa og afleiðingar vanlíðanar þeirra geta orðið þjóðfélaginu þungur baggi þegar fram í sækir. Því hefur verið haldið fram að fáar rannsóknir hafi verið gerðar á vellíðan í vinnunni og heilsu sjúkraliða og ófaglærðra í umönnun (9). Við leit í nokkrum gagnabönkum fundum við engar rannsóknir þar sem vinnutengd líðan og heilsa sjúkraliða, ófaglærðra og hjúkrunarfræðinga í öldrunarþjónustu var könnuð með þeim hætti sem hér er gert. Þegar þess er gætt að öldruðum fer fjölgandi og þörf fyrir umönnun vex stöðugt sýnist vert að huga að starfstengdri líðan þeirra sem starfa á þessum vettvangi. Líðan og heilsa þeirra er líkleg til að skipta máli fyrir þá sem þjón- ustunnar eiga að njóta. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að vert væri fyrir heilbrigðisyfirvöld að huga sérstaklega að heilsuvernd þeirra sem bera hitann og þungann af umönnun aldraðra hérlendis. Þakkir Eftirfarandi aðilar styrktu könnunina og eru þeim veittar þakkir: Efling stéttarfélag, Elli- og hjúkrunar- heimilið Grund, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Sjúkraliðafélags Islands, heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið, Hrafnista - DAS, Landspítali. Þátttakendur í könnuninni eiga sérstakar þakkir skildar. Heimildir I. Sörenson S. Ensk-íslensk orðabók. Reykjavík: Mál og menning, 1999. 2. Lynch J, Kaplan G. Socioeconomic Position. In: Berkman LF, Kawachi I, ed. Social Epidemiology. New York: Oxford Uni- versity Press, 2000:13-35. 3. Moss NE. Socioeconomic inequalities in women's health. In: Goldman MB, Hatch MC, ed. Women & Health. San Diego: Academic Press, 2000: 541-52. 4. Adler NE, Ostrove JM. Socioeconomic status and health: what we know and what we don't. Ann N Y Acad Sci 1999; 896:3-15. 5. Kunst AE, Mackenbach JP. Measuring socioeconomic inequa- lities in health. Copenhagen: WHO, Regional Office for Europe, 1995. 6. Lynge E, Thygesen L. Occupational cancer in Denmark. Cancer incidence in the 1970 census population. Scand J Work Environ Health 1990; 16(Suppl. 2): 35. 7. Sacker A, Firth D, Fitzpatrick R, Lynch K, Bartley M. Com- paring health inequality in men and women: prospective study of mortality 1986-96. Br Med J 2000; 320:1303-7. 8. Arber S. Comparing inequalities in women's and men's health: Britain in the 1990s. Soc Sci Med 1997; 44: 773-87. 9. Fahlström. G. Ytterst i organisationen. Om undersköterskor, várd- och sjukvárdsbitráden i áldreomsorg (doktorsavhand- ling). Uppsala: Uppsala universitet, 1999. 10. Sankila R, Karjalainen S, Laara E, Pukkala E, Teppo L. Cancer risk among health care personnel in Finland, 1971- 1980. Scand J Work Environ Health 1990; 16:252-7. II. Cox T, Griffiths A, Cox S. Work-related stress in nursing: Con- trolling the risk to health. Working paper. Geneva: ILO (Inter- national Labour Office), 1996. 12. Franssén A. Omsorg i tanke och handling, en studie av kvin- nors arbete i várden (doktorsavhandling). Lund: University of Lund, 1997. 13. Karasek R, Theorell T. Healthy work-stress, productivity, and the reconstruction of working life. New York: Basic Books, 1990. 14. Helgadóttir B, Rafnsdóttir GL, Gunnarsdóttir HK, Hrafns- dóttir KÓ, Tómasson K, Jónsdóttir S, et al. Könnun á heilsu- fari, líðan og vinnuumhverfi starfsfólks í öldrunarþjónustu (skýrsla). Reykjavík: Vinnueftirlitið, 2001. www.vinnueftirlit.is /page/research Læknablaðið 2004/90 221

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.